24 stundir - 23.02.2008, Page 6

24 stundir - 23.02.2008, Page 6
6 LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 2008 24stundir „Meðan við vitum ekki hvaðan kvikasilfrið í Þingvallaurriðanum er upprunnið, liggur Nesjavalla- virkjun undir grun,“ segir Guðjón Atli Auðunsson hjá Nýsköpunar- miðstöð Íslands, sem hefur haft umsjón með styrksumsóknum nokkurra stofnana til að rannsaka betur hátt kvikasilfursmagn í stór- urriðanum í Þingvallavatni. „Því má segja að Orkuveitunni renni blóð til skyldunnar að fá svör við þessu,“ bætir Guðjón við, en eftir að umsókn stofnananna til Orkusjóðs var neitað í tvígang skil- uðu stofnanirnar umsókninni inn til Landsvirkjunar og munu brátt senda hana til Orkuveitu Reykja- víkur. Stjórn Orkusjóðs tekur ákvörð- un um hvaða umsóknir hljóta styrki úr sjóðnum, en Orkusjóður heyrir undir Orkustofnun sem heyrir undir iðnaðarráðuneytið. „Mér finnst þetta verðugt rann- sóknarverkefni, og mun síður en svo beita mér gegn því að fé verði veitt til þess í framtíðinni,“ segir Össur Skarphéðinsson iðnaðarráð- herra. Engin tækifæri fengið „Við viljum skoða hvort Þing- vallavatn sé sérstakt á Íslandi og þá hvers vegna,“ segir Guðjón, sem nefnir þrjá þætti sem gætu skýrt kvikasilfursmagnið. Í fyrsta lagi gæti sú staðreynd að Ísland sé eld- fjallaeyja skýrt kvikasilfursmagnið að hluta. Í öðru lagi sé vel þekkt að í gufu úr heitavatnsvirkjunum sé kvikasilfur, sem gæti þannig borist úr Nesjavallavirkjun í vatnið. Í þriðja lagi myndist gjarnan ákveðin tegund kvikasilfurs í uppistöðu- lónum sem mælist hátt í lífverum. Þá sé líklegt að staða Þingvallaurr- iðans í fæðukeðjunni hafi áhrif. „Við höfum nær engin tækifæri fengið til að skoða efnabúskap ís- lenskra vatna. Skortur hefur verið á styrkjum og áhugi í vísindasam- félaginu lítill. Þá virðast Íslending- ar almennt ekki hafa litið á meng- un í vatni sem vandamál.“ hlynur@24stundir.is Ekki vitað hvaðan kvikasilfrið kemur Nesjavallavirkjun liggur undir grun Rúmlega 200 Skagfirðingar, 50 ára og eldri, hafa skrifað undir lista þar sem farið er fram á að bygging félagsmiðstöðvar fyrir aldraða verði hafin eins fljótt og auðið er. Listanum var skilað til skrifstofu sveitarfélagsins í vikunni. „Í skipulagi er gert ráð fyrir fé- lasgmiðstöð í grenndinni við þjón- ustuíbúðir sem hér er búið að byggja fyrir aldraða. Nú er hins vegar verið að gera upp hús sem keypt var hér út með sjó, svokallað Hús frítímans, sem á að hýsa fé- lagsstarf bæði eldri borgara og unglinga. Þetta tvennt á ekki sam- an auk þess sem margir telja húsið ónýtt,“ segir Svavar Jónsson, einn undirskrifenda.„Það er ekki í nú- verandi áætlunum að byggja sér fé- lagsmiðstöð fyrir eldri borgara.Það er ný hugmynd sem þarf þá að at- huga sérstaklega,“ segir Guðmund- ur Guðlaugsson, bæjarstjóri Skaga- fjarðar. Hann segir misskilning að Hús frítímans eigi að hýsa alla starfsemi eldri borgara, aðstaða fyrir söng sé t.d. í húsi frímúrara. Ennfremur segir hann húsið ekki vera ónýtt, verið sé að endurinn- rétta það fyrir starfsemina. þkþ Félagsmiðstöð fyrir eldri borgara í Skagafirði Skora á bæjarstjórn Eftir Írisi Ölmu Vilbergsdóttur iris@24stundir.is 07:30 Ég fer snemma áfætur og fæ mér skammt af Udos-olíu en hún inniheldur góðu fituna sem er meðal annars í fiski. Olían er sér- staklega góð fyrir frumurnar en ég kaupi hana í næstu heilsubúð. 08:00 Vinnudagurinnhefst við tölvuna heima þar sem ég fer í gegnum pantanir og póst sem þarf að svara. Einnig fer ég yfir markmið dagsins sem ég set mér á hverju kvöldi áður en ég fer að sofa. 09:00 Ég fer alltaf íblómaleiðangur í heildsöluna Grænn markaður áð- ur en ég mæti í búðina og ég tek tíma í að velja þau blóm sem vantar fyrir daginn. Þau eru til dæmis valin í tengslum við úti- standandi pöntun og einnig það sem þarf í daglega sölu. 10:00 Ég kem í versl-unina rétt fyrir tíu, tek blómin fram og set þau í fötu eða vasa. Það þarf að stilla þeim upp á hverjum degi vegna þess að við geymum þau í kæli á næt- urnar. Nýju blómin þarf að ská- skera áður en þeim er komið fyr- ir í vasana. 12:00 Ég þarf að sinnaýmsum erindum í tengslum við konudaginn en þá þurfum við að eiga nóg af róm- antískum tækifærisgjöfum. Kvöldið áður hafði ég farið á feng shui-námskeið og notaði því hluta af deginum til að taka til og endurskipuleggja verslunina með feng shui-hætti. 14:00 Ég reyni að setjastniður og fá mér hádegismat en það getur dregist til klukkan þrjú ef mikið er að gera. Ég er sérstaklega upptekin um þessar mundir þar sem ég er að undirbúa fjármálanámskeið. 19:00 Ég byrja að und-irbúa lokun rétt fyrir sjö en þá þarf ég að þrífa alla vasana og föturnar, þurrka af og þrífa gólfin. Einnig þarf ég að setja öll blóm inn í kæli. 20:00 Var komin á fundmeð garðyrkju- félaginu en við erum í stefnu- mótunarvinnu með fólki sem er að gera mastersritgerð um garð- yrkjufélagið. Ég var ekki komin heim fyrr en um 22:30. Rómantískur blómálfur ➤ Helga keypti versluna í rekstriog hafði þá aldrei unnið í blómabúð. ➤ Hún hefur hafið innflutning áblómum frá Hollandi vegna þess að ræktendur á Íslandi eru byrjaðir að skammta blóm vegna mikillar eft- irspurnar. ➤ Hægt er að nálgast allar upp-lýsingar um búðina á vefsíð- unni www.blomalfur.is. BLÓMÁLFURINN Árvakur/Ómar Konudagurinn er fram- undan og Valentínus- ardagurinn er nýliðinn. Það má því segja að þetta sé háannatími hjá blóma- sölunum. Helga Thorberg stendur vaktina í versl- uninni Blómálfinum. 24stundir með Helgu Thorberg blómasala Rómantíkin allsráðandi Helga er við öllu búin og bændurnir hafa úr nógu að velja í Blómálfinum. Stýrihópur um verkefnið Beint frá býli hefur skilað af sér skýrslu um verkefnið og boðað til stofn- fundar samtaka fólks í heima- vinnslu næstkomandi föstudag. „Samtökin veita upplýsingar varð- andi söluleiðir, vöruþróun, lög- gjöfina og munu hafa samskipti við hagsmunaaðilana. Svo er þetta auðvitað tengslanet þar sem menn læra hver af öðrum,“ segir Árni Jó- steinsson, nýsköpunarráðgjafi hjá Bændasamtökunum. Eitt af markmiðum félagsins er að ná samningum við Bændasam- tök Íslands um fóstrun á félaginu í gegnum átaksverkefni til þriggja ára. Stýrihópurinn hefur mótað til- lögur að stofnsamþykktum fé- lagsskaparins og verða þær kynntar á fyrirhuguðum stofnfundi. Hann verður haldinn í Fjallakaffi á Möðrudal á Fjöllum kl. 11. þkþ Stofnfundur félags um heimavinnslu Komið tengslanet www.ferdaval.is                 Weinsbergog McLouishúsbílar Sýning á laugardaginn frá kl. 13.00 til 16.00

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.