24 stundir - 23.02.2008, Síða 8
8 LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 2008 24stundir
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@24stundir.is
Bárður Jónsson, sem skrásetti sögu
Páls Elísonar í bókinni Breiðavík-
urdrengur, kveðst fagna því að í
skýrslu nefndar um starfsemi í
Breiðavík skuli ekki vera um hvít-
þvott að ræða.
„Miðað við það sem ég hef heyrt
af innihaldi skýrslunnar verður ekki
vikist undan því að horfast í augu
við það sem gerðist. Það finnst mér
það merkilegasta við starf nefndar-
innar. Jafnframt finnst mér merki-
legt að skoða eigi starfsemi fleiri
heimila sem börn voru vistuð á,“
segir Bárður.
Sjálfur dvaldi hann tvisvar í
Breiðavík. Hann var 10 ára þegar
hann kom þangað í fyrra skiptið og
dvaldi þá á staðnum í 15 mánuði. Í
seinna skiptið dvaldi hann sumar-
langt, þá á 13. ári.
Bárður, sem var barinn og beitt-
ur vissu kynferðislegu ofbeldi, eins
og hann orðar það, kveðst aldrei
hafa gert ráð fyrir bótum en
ríkisstjórnin hefur ákveðið að
láta semja drög að frumvarpi um
greiðslu bóta til fórnarlamba of-
beldis á vistunarheimilum.
„Samkvæmt almennum reglum
eru hugsanleg brot fyrnd en við telj-
um að aðstæður geti vel réttlætt
einhverja bótagreiðslu af hálfu rík-
isins vegna aðstæðna sem þessir að-
ilar lentu í. Ég vara hins vegar menn
við að vera með of háar hugmyndir
um slíkar greiðslur,“ segir Geir.
Lög myndu ekki bara taka til
greiðslna vegna brota í Breiðavík,
heldur einnig á öðrum vistunar-
heimilum ef um slíkt væri að ræða,
að sögn forsætisráðherra.
Í skýrslu nefndarinnar sem
kannaði starfsemi Breiðavíkur-
heimilisins segir að ljóst sé að fátt ef
nokkuð geti í reynd bætt þann
skaða sem margir vistmenn urðu
sýnilega fyrir. Nefndin lagði þó til
að stjórnvöld legðu mat á hvort
hlutur vistmanna yrði réttur með
fjárgreiðslu.
Horfst í augu
við staðreyndir
Bárður Jónsson sem dvaldi á Breiðavík fagnar því að skýrslan
um starfsemina skuli ekki vera hvítþvottur Frumvarp um bætur
➤ Í upphafi árs 2007 greindueinstaklingar sem vistaðir
voru sem börn á vistheim-
ilinu Breiðavík frá því í fjöl-
miðlum að þeir hefðu orðið
fyrir ofbeldi þar.
➤ Forsætisráðherra skipaði ífyrra nefnd sem kanna átti
starfsemi heimilisins.
BREIÐAVÍKURHEIMILIÐ
Skýrslan kynnt Í henni
segir að fátt ef nokkuð
geti bætt skaðann sem
vistmenn urðu fyrir.
Árvakur/Ómar
„Bæjarstjórn Fjarðabyggðar lýsir
þungum áhyggjum af bágbornu
ástandi og viðhaldsskorti á Norð-
fjarðarflugvelli,“ segir í nýlegri
bókun bæjarstjórnarinnar. Hún
skorar á heilbrigðis- og samgöngu-
yfirvöld að sameinast um nauðsyn-
legar úrbætur á flugvellinum sem
gegni lykilhlutverki í þjónustu
Fjórðungssjúkrahúss Austurlands.
„Ekkert hefur verið gert við völl-
inn í mörg ár og oft er ekki hægt að
nota hann vegna steinkasts og aurs.
Það þarf að hækka brautina upp,
malbika og setja lýsingu,“ segir
Guðmundur Helgi Sigfússon,
slökkviliðsstjóri í Fjarðabyggð.
Hann segir farþegafjölda sem fer-
um völlinn hafa tvöfaldast síðan
2005. „Þetta hefur verið í athugun
en engir peningar eru ætlaðir í
þetta núna. Í upphafi var aðeins
talað um slitlag en það þarf að gera
meira,“ segir Kristján L. Möller
samgönguráðherra. þkþ
Bágborið ástand á flugbrautinni í Norðfirði
Þarfnast úrbóta
Árvakur/Sverrir
Reykjavíkurborg keypti nýverið
húsið og lóðina á Einimel 19 fyrir
82,5 milljónir.
Þetta var sam-
þykkt á fundi
stjórnar eigna-
sjóðs Reykjavík-
ur 11. febrúar
síðastliðinn.
Að sögn Hrólfs
Jónssonar skrif-
stofustjóra eigna-
sjóðs borgarinnar snýst málið um
að laga til í skipulagi en landið er
erfðafestuland og ná ýmsar bygg-
ingar í kring inn á lóðina. Hrólf-
ur segir að samið hafi verið við
eigendur um að borgin leysti
landið til sín en mat þriggja fast-
eignasala ákvarðaði kaupverðið.
Húsið verður selt. aak
Borgin kaupir hús
Skipulagstiltekt
fyrir 80 milljónir
Neytendasamtökin fagna til-
mælum Björgvins G. Sigurðs-
sonar viðskiptaráðherra til fjár-
málafyrirtækja um að þau bjóði
ekki kröfuhöfum sem nýta sér
innheimtuþjónustu þeirra að
bæta við seðilgjöldum eða sam-
bærilegum fylgikröfum við að-
alkröfu sem greidd er á gjald-
daga. Segja samtökin tilmælin
réttarbætur.
Á fréttavef samtakanna er bent á
að algengt sé að seðilgjaldið sé
200 til 300 krónur. ibs
Tilmæli um seðilgjöld
Réttarbætur
Konur athugið!
Bylting í öryggismálum!
Líkt og með menn þá eru rútur einfaldlega ekki allar jafn
öruggar. Bjóðum á þriðja tug af nýjum og góðum bílum
með þriggja punkta öryggisbeltum í öllum sætum. Hafðu
samband og sérpantaðu einn slíkan fyrir þá sem þér þykir
vænt um.
www.gtyrfingsson.is - S. 568 1410 / 482 1210 - Grænir og góðir ;)