24 stundir - 23.02.2008, Qupperneq 10
10 LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 2008 24stundir
Stundum þarf
maður hjálp til
að halda áfram
Það er góð regla að lesa vel tryggingaskilmálana, þeir eru sá grundvöllur sem samskipti þín og TM byggjast á.
Hringdu í síma 515 2000 eða farðu á www.tm.is og fáðu skýr svör.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/T
M
I
41
09
8
02
/0
8
Áfallahjálp TM
Áfallahjálp hjá TM
Þeir sem eru vel tryggðir fá efnisleg verðmæti sín bætt, en eftir stendur oft tilfinningatjón
sem ekki verður metið til fjár. Það er vel þekkt staðreynd að áföll eða slys geta haft í för
með sér áfallastreitu og leitt til langvarandi áfallaröskunar ef ekki er gripið í taumana.
TM gengur nú skrefinu lengra í þjónustu sinni og er eina tryggingafélagið á Íslandi
sem býður tjónþolendum upp á áfallahjálp.
Áfallahjálpin er veitt af sálfræðingi og er innifalin í Heimatryggingu TM.
Þannig vinnum við saman úr áfallinu og stuðlum að því að það hafi ekki neikvæðar
afleiðingar til lengri tíma fyrir viðskiptavini okkar.
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN / Sími 515 2000 / tm@tm.is / www.tm.is
STUTT
● Ramos Horta vaknar Forseti
Austur-Tímor vaknaði í gær af
dái sem hann hefur verið í und-
anfarna tíu daga, síðan hann
varð fyrir morðtilræði. Telja
læknar að hann muni ná full-
um bata, þótt það geti tekið
nokkra mánuði.
● Lífstíðardómur Steve
Wright var á fimmtudag fund-
inn sekur um að hafa myrt
fimm vændiskonur í austur-
hluta Englands í lok 2006. Í
gær kvað dómari upp lífstíð-
ardóm yfir honum.
● Verðbólgumet Samkvæmt
áætlunum ríkisstjórnar náði
verðbólga í Simbabve
100.000% í janúarmánuði.
Segja sérfræðingar seðlabank-
ans erfitt að meta verðbólgu
nákvæmlega vegna viðvarandi
vöruskorts í landinu.
Eftir Andrés Inga Jónsson
andresingi@24stundir.is
Ofbeldisfullur breskur kokkur með
kynlífsþráhyggju var í gær dæmdur
í lífstíðarfangelsi fyrir að myrða 18
ára stúlku á hrottafenginn hátt í
september 2005.
Við uppkvaðningu dómsins var
Mark Dixie sagt að hann mætti
ekki eiga von á reynslulausn fyrr en
eftir 34 ár.
Skelfileg aðkoma
Lík Sally Anne Bowman fannst
illa til reika og atað blóði fyrir utan
heimili hennar í suðurhluta Lund-
úna. Hún hafði hlotið sjö hníf-
stungur og verið nauðgað. Rann-
sókn réttarmeinafræðings leiddi í
ljós að nauðgunin hefði sennilega
átt sér stað eftir að Bowman lést.
Viðurkenndi Dixie að hafa haft
mök við lík Bowman, en bar því
við að hann hefði ekki vitað að
hún væri látin. Sagðist hann hafa
gengið fram á líkið og talið Bowm-
an vera meðvitundarlausa.
Með fjölda dóma á bakinu
Dixie hafði ótal sinnum komist í
kast við lögin vegna kynferðisbrota
og rannsóknaraðilar telja líkur á
því að hann hafi myrt konu þegar
hann bjó í Ástralíu á tíunda ára-
tugnum.
Bresk og áströlsk lögregla leitar
nú að óupplýstum glæpum í fortíð
Dixies, sem flutti oft og gekk undir
mörgum dulnefnum.
Sýndi enga iðrun
Gerald Gordon, sem kvað upp
dóminn yfir Dixie, vandaði hon-
um ekki kveðjurnar. „Ég ætla bara
að segja að það sem þú gerðir þetta
kvöld var svo hræðilegt og viður-
styggilegt að ég ætla ekki að reyna
að hafa það eftir. Hegðun þín í
framhaldinu sýnir að þú iðraðist
ekki gjörða þinna.“
Þegar dómur lá fyrir las faðir
Bowman yfirlýsingu fyrir fjöl-
miðla. „Síðustu tvö og hálft ár hafa
verið óhemju sársaukafull og gíf-
urlega erfið og ég held ekki að við
hefðum komist í gegnum þetta án
ástar og stuðnings sem við höfum
notið frá fjölskyldu og vinum. Ég
vona að Sally Anne geti nú hvílt í
friði og þeir sem ótímabær og
hrottalegur dauði hennar hafði
áhrif á geti nú byrjað að syrgja af
alvöru.“
Morðingi
í steininn
Sekur um hrottalegt morð og nauðgun
➤ Er 35 ára og hlaut fyrst dómfyrir kynferðisbrot árið 1986.
➤ Var handsamaður níu mán-uðum eftir morðið. Lögregla
tók úr honum DNA-sýni
vegna áfloga. Þá kom í ljós að
hann hafði verið á vettvangi
morðsins.
MARK DIXIE
ReutersFaðir Sally Anne Las yfirlýsingu fjölskyldu hennar þegar dómur lá fyrir.
Ný skýrsla breskra yfirvalda sýnir
að fjórðungur fimm ára barna og
þriðjungur 10 ára barna er of
þungur. Voru ríflega 800.000
börn vegin, um 80% þeirra ald-
urshópa sem skoðaðir voru.
Er varað við því að vandinn gæti
verið vanmetinn, þar sem þátt-
taka í mælingum var frjáls. Hafi
þyngstu börnin því getað skorast
undan þátttöku.
„Rannsóknin sýnir umfang of-
fituvandans sem heil kynslóð
barna okkar stendur frammi fyr-
ir,“ segir einn skýrsluhöfunda.
Fjöldi breskra
barna of þungur