24 stundir - 01.03.2008, Blaðsíða 6

24 stundir - 01.03.2008, Blaðsíða 6
„Við höfum gert allt sem í okkar valdi stendur til að tryggja velferð þeirra unglinga sem koma á okkar atburði og höfum við verið í sam- starfi við bæði Rauða kross Ís- lands og lögregluna í Reykjavík,“ segir í yfirlýsingu frá Techno.is vegna fréttar í 24 stundum 28. febrúar. Þar er ítrekað að Techno- .is hafi ekki haft áfengissölu í sín- um höndum og hafi ekki óskað eftir því. Þá er tekið fram að þau kvöld sem haldin eru skemmtanir fyrir tvo aldurshópa hafi alltaf ver- ið tryggt að aldurshóparnir tveir blönduðust ekki saman. hos Techno.is svarar ásökunum 6 LAUGARDAGUR 1. MARS 2008 24stundir Skipulags- og byggingarnefnd Seltjarnarness hefur úrskurðað að Jón Sigurðsson, forstjóri FL group, fái að rífa húsið sem hann hefur keypt á Unnarbraut 19 en ekki reisa húsið sem hann vildi byggja á lóð- inni. Íbúar á Unnarbraut 17, þar sem Jón býr einnig, kærðu fyrirhugaða byggingu m.a. á þeim forsendum að hún myndi minnka útsýni þeirra. Úrskurðurinn styður þessa niður- stöðu og segir þar að bygging húss- ins feli í sér verulega breytingu og að „hún hafi umtalsverð grenndaráhrif á eign kærenda, bæði hvað varðar rými, útsýni og skuggavarp.“ þkþ Forstjóra FL Group bannað að byggja Niðurrif leyft en ekki bygging Bæta hefur þurft við einangrun í hluta útveggja 12 íbúða í nokkrum húsum á Vallarheiði í Reykjanesbæ vegna myglu og sveppa. Jófríður Leifsdóttir, umsjónar- maður fasteigna hjá Keili, kveðst ekki geta staðfest frétt Víkurfrétta þess efnis að leigutakar hafi veikst sökum ástandsins. Hún segir framkvæmdir við lag- færingar, sem skipulagðar voru í samvinnu við sérfræðinga frá Heil- brigðiseftirliti Suðurnesja og Nátt- úrufræðistofnun Íslands auk verk- fræðistofa, hafnar af fullum krafti. „Það var rakaleiðni meðfram lista sem tengir útvegg og gifsplötu þar sem heitt og kalt loft mætast. Þetta var mjög staðbundið og með- færilegt,“ segir Jófríður og bætir við að við lagfæringarnar séu not- uð sérstök efni sem eru sótthreins- andi og sveppadrepandi. Hún segir menn hafa full tök á ástandinu sem ekki sé talið varasamt. Um 400 íbúðir eru nú í útleigu á Vallarheiði. ibs Laga þarf útveggi í íbúðum á Vallarheiði Mygla í veggjum Flutningur fanga af öðru þjóðerni en litháísku til af- plánunar í ættlandi sínu stjórnast af því hvernig þær þjóðir sem eru aðilar að samningi Evrópuráðsins um flutning dæmdra manna full- gilda hann, að sögn Þórunnar Hafstein, skrifstofustjóra í dómsmálaráðuneytinu. Í við- ræðum Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra í gær við dómsmálaráðherra Litháens, samþykkti sá síðarnefndi að Litháar, sem hlotið hafa dóma hér, yrðu fluttir til afplánunar í heimalandi sínu ef farið yrði að ákvæðum samnings Evr- ópuráðsins um fangaflutning. Hafinn er undirbúningur að flutningi tveggja Litháa sem afplána dóm á Litla-Hrauni. Fangar fluttir heim Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur hilduredda@24stundir.is 08.00 Mætti þreytt ogósofin í vinnuna í Alþjóðahúsinu. Ég hafði lítið náð að sofa um nóttina enda bæði spennt og stressuð fyrir fundinn í bæjarstjórn. 11.30 Fór heim á leið ogbyrjaði að undirbúa mig fyrir fundinn. Ég las yfir er- indið sem ég ætlaði að halda, fór í sturtu, málaði mig og fór í fína dragt. 14.00 Fundurinn í bæj-arstjórn Hafn- arfjarðar hófst. Ég var mjög stress- uð til að byrja með en fólk úr öllum flokkum tók vel á móti mér, tók í höndina á mér og bauð mig hjartanlega velkomna. Við þessar góðu móttökur róuðust taugarnar og ég náði aðeins að slaka á. Nokkrir bæjarfulltrúar héldu sín erindi á undan mér og ég var því búin að sjá hvernig þetta gekk fyrir sig þegar komið var að mér að flytja mitt erindi. Í því lagði ég meðal annars til bætta þjónustu við innflytjendur í bænum, til dæmis með því að ráða sérfræðing sem aðstoðaði innflytjendur við allt það sem sneri að réttindum þeirra og skyldum gagnvart bæn- um. Þjónustan er þegar góð en hana þarf að sækja á marga mis- munandi staði og það er ekki alltaf víst að innflytjendur viti hvert þeir eigi að snúa sér. Svona starfsmaður gæti auðveldað þeim mjög að fóta sig í bænum. Hugmyndinni var vel tekið enda er mikill vilji innan allra flokkanna til að bæta þjónustu við innflytjendur. 18.00 Fundinum var lokiðog ég fór þreytt en ánægð heim til mín. Það er alltaf stressandi að takast á við ný verk- efni en ég var ánægð með hversu vel gekk. 20.30 Ég fór í félagsmið-stöð í Kópavogi á vegum Alþjóðahússins vegna fræðslufundar. 22.00 Kom aftur heim tilmín og tók því ró- lega það sem eftir lifði kvölds. Allir tóku vel á móti mér 24stundir með Amal Tamimi, fræðslufulltrúa Alþjóðahúss og fyrsta innflytjandanum sem tekur sæti í bæjarstjórn Hafnarfjarðar ➤ Amal Tamimi er fædd og upp-alin í Palestínu en kom til Ís- lands árið 1995 og hlaut ís- lenskan ríkisborgararétt árið 2002. ➤ Amal hefur búið í Hafnarfirðifrá árinu 2005. ➤ Starfar sem fræðslufulltrúi íAlþjóðahúsinu ásamt því sem hún hefur gegnt for- mennsku í lýðræðis- og jafn- réttisnefnd Hafnarfjarðar í eitt og hálft ár. AMAL TAMIMI Árvakur/Ómar Amal Tamimi varð síðast- liðinn þriðjudag fyrsti innflytjandinn sem tekur sæti í bæjarstjórn Hafn- arfjarðar, en hún var í 10. sæti á lista Samfylking- arinnar fyrir síðustu bæj- arstjórnarkosningar. Amal Tamimi Var stressuð fyrir fyrsta fundinn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar. FRÁBÆ RT PÁSKATILBO ! Vikuna 3.-8. mars bjóðum við upp á 20% AFSLÁTT af verði 10-vikna námskeiðagjalda sem byrja 2. APRÍL. Skráning er hafin og fjöldatakamarkanir í hvern tíma. Mæðrafimi• ® Bumbufimi• ®+ Meðgöngujóga Salsa-leikfimi fyrir fullorðnar konur• FitKid• ®-sporteróbikk Hreyfifimi• ® fyrir börn 1-3 ára Gþ-fimi• ® fyrir börn 3-5 ára 20% AFSLÁTTUR Allar upplýsingar í síma 577 2555 og á www.hreyfiland.is Vallý s.510 3728 Böddi s.510 3726 ÐI Ð AL B U N NI VTA atvinna@24stundir.is PANTIÐ GOTT PLÁSS Í TÍMA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.