24 stundir - 01.03.2008, Blaðsíða 10

24 stundir - 01.03.2008, Blaðsíða 10
Eftir Andrés Inga Jónsson andresingi@24stundir.is Rússar kjósa á morgun nýjan for- seta í þriðja sinn frá falli Sovétríkj- anna. Vladimír Pútín hættir störf- um þar sem hann hefur setið tvö kjörtímabil, sem er lögboðinn há- markstími. Ekkert bendir til annars en að Dmítrí Medvedev beri sigur úr býtum, en hann hefur lengi unnið náið með Pútín og nýtur stuðnings hans í kosningabarátt- unni. Frambjóðendur ekki jafnir Í könnunum er Gennadí Zjúg- anov, frambjóðandi kommúnista- flokksins, annar í röð frambjóð- enda með ríflega 10% atkvæða. Hann segir að stjórnvöld í Kreml hafi leyft Medvedev að vera nánast einráður í kosningabaráttunni. „Það var einfaldlega enginn jöfn- uður með frambjóðendum,“ segir Zjúganov. Yfirkjörstjóri viðurkenndi í við- tali við blaðamann BBC að rúss- neskir fjölmiðlar hefðu verið hlut- drægir í umfjöllun sinni um forsetaframbjóðendurna fjóra. Vladimír Tsjurov telur þó að um- fjöllunin hafi verið sanngjörn, þótt ekki hafi hún verið jöfn. „Þetta er þekkt vandamál víðar en í okkar landi, en ég get tekið undir það að ekki hafi birst jafn- margar fréttagreinar um alla fram- bjóðendur,“ sagði Tsjurov. Pútín hefur hvatt Rússa til að flykkjast á kjörstað á sunnudag til að sigur Medvedevs sé sannfærandi og hafi lýðræðislegt yfirbragð. „Ég bið ykkur að taka þátt í kosning- unum á sunnudag og kjósa um framtíð okkar, framtíð Rússlands,“ sagði Pútín í sjónvarpsávarpi. Efnahagur ofarlega á lista Medvedev hefur verið einn dyggasti stuðningsmaður efna- hagsumbóta Pútíns. Hann segist munu halda áfram á svipaðri braut og minnka afskipti ríkisvaldsins af atvinnulífinu. Segir Medvedev jafnframt að Rússar þurfi að temja sér heilbrigt líferni og forðast óhóf í áfengis- drykkju til að snúa við fólksfækkun sem þjóðin stendur frammi fyrir. Rússar kjósa nýjan forseta  Kannanir benda til að Medvedev sigri með yfirburðum  Aðrir frambjóðendur saka stjórnvöld um að tryggja ekki jafnræði ➤ Fæddur í St. Pétursborg 1965.Útskrifaðist þar sem lögfræð- ingur árið 1987. ➤ Er fyrsti aðstoðarforsæt-isráðherra Rússlands og gegnir stjórnarformennsku hjá orkurisanum Gazprom. DMÍTRÍ MEDVEDEV NordicPhotos/AFP Stinga saman nefjum Vladimír Pútín spjallar við væntanlegan arftaka sinn 10 LAUGARDAGUR 1. MARS 2008 24stundir Sænskur karlmaður hefur bæst í hóp þeirra kynlegu kvista sem orðið hafa upp- vísir að því að misnota reiðhjól kynferðislega. Lögreglan í Ös- tersund hóf rannsókn máls- ins árið 2006, þegar tilkynn- ingar bárust um fjölda dömureiðhjóla með skorin dekk. Jafnframt fannst sæði á hnökkum margra hjólanna. Maðurinn neitaði í byrjun sök, en DNA-rannsókn á hjólunum leiddi hið sanna í ljós. aij Subbulegur Svíi Hafði mök við dömureiðhjól Kúba gerðist á fimmtudag aðili að tveimur alþjóðasamningum um mannréttindi. Fídel Kastró stóð í forsetatíð sinni gegn samn- ingunum, en hann sakaði Mann- réttindanefnd SÞ um að ganga er- inda Bandaríkjanna. Sagði Felipe Perez Roque utanríkisráðherra hægt að ganga til samninga nú þar sem sigur hefði unnist á Mannréttindanefndinni. aij Mannréttindi á Kúbu Skrifað undir Ríflega 600.000 Nýsjálendingar hafa skrifað sig á lista þar sem þess er krafist að þjóðaratkvæða- greiðsla verði haldin um að af- létta banni á rass- skellingum. Eru yfirvöld að fara yfir listana til að sannreyna að far- ið hafi verið yfir 10% þröskuldinn sem þarf til að knýja fram þjóðaratkvæði. Larry Baldock úr Kiwiflokknum er einn aðstandenda herferð- arinnar. Segist hann vilja gera lögreglu kleift að einbeita sér að rannsókn á misnotkun barna og ofbeldi í fjölskyldum. aij Nýsjálendingar Vilja rassskella Vísindamönnum sýnist stefna í marglyttuplágu undan ströndum Spánar í sumar. Hafa þeir undan- farna mánuði rannsakað hafið undan Costa Brava í Katalóníu og orðið varir við óvenjumargar mar- glyttur. Josep-María Gili, sem stýrir rannsókninni, segir helstu áhyggj- ur sínar ekki vera þau óþægindi sem sólardýrkendur gætu orðið fyrir. „Helsta áhyggjuefni okkar er ójafnvægið sem ofveiði hefur kom- ið höfum heimsins í,“ segir Gili. Mikil fiskveiði veldur að hans sögn því að náttúrulegum óvinum marglyttnanna hefur fækkað og þær þurfa ekki að keppa eins mikið um mat. Segir Gili ennfremur að hlýr sjór hafi skapað kjörin vaxt- arskilyrði fyrir marglytturnar. Árið 2006 hlúði Rauði krossinn í Katalóníu að 21.000 manns vegna brunasára af völdum marglyttna. aij Vísindamenn vara við innrás á Costa Brava Miðjarðarhafið fullt af marglyttum STUTT ● Aftaka ákveðin Dauðadómur yfir „Efnavopna-Ali“ hefur ver- ið staðfestur af yfirstjórn Íraks. Ali var dæmdur í júní 2007 fyr- ir glæpi gegn mannkyni, en hann stýrði morði á 100.000 Kúrdum árið 1988. ● Prinsinn kveður Harry Bretaprins hefur verið kall- aður heim frá Afganistan, þar sem hann starfaði sem her- maður. Óttuðust yfirmenn hans að fréttir af dvöl hans í landinu myndu tefla lífi hans og félaga hans í hættu. ● Horfið frá Írak Tyrkneskir hermenn hættu í gær bardög- um innan Íraks og héldu heim á leið. Utanríkisráðherra Íraks sagði að allir hermennirnir hefðu yfirgefið landið og fagn- aði þessari ákvörðun Tyrkja.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.