24 stundir - 01.03.2008, Blaðsíða 64
24stundir
ATHUGIÐ! TAKMARKAÐAR BIRGÐIR
Í VERSLUN OKKAR Á AKUREYRI
VEGNA BREYTINGA.
SKOÐAÐU NÝJA
GARDÍNU- OG
HEIMILISVÖRU-
BÆKLINGINN
OKKAR!
FERÐATÖSKUSETT
Nýkomnar þessar flottu ferða-
töskur, fást í rauðu eða gráu.
3 töskur saman í setti.
HNÍFAPARASETT
Hnífapör fyrir fjóra. 16 stk. í pakka.
„POLO” HILLUR
Nýkomin sending af þessum vinsælu
vegghillum. Fást í hvítu og eik.
Nokkrar mismunandi breiddir.
Hvítar hillur: 60 sm, verð 1.290,-
80 sm, verð 1.990,- 100 sm,
verð 2.490,- Eikarhillur: 60
sm, verð 1.990,- 80 sm,
verð 2.490,- 100 sm, verð
2.990,-
„FIREFLY“ SPARPERUR
Nýkomnar sparperur á frábæru verði.
Fást 9 og 11 vött.
„KRONBORG COMFORT“
Koddi með blöndu af dún og fiðri. Þægilegur
koddi með hvítu áklæði. Gott verð!
„KENDALL” BARSTÓLAR
Flottir barstólar sem passa
hvar sem er. Fást í svörtum
eða hvítum lit og eru með
krómuðum fæti. Komdu í
Rúmfatalagerinn og gerðu góð
kaup!
5.990,-
6.990,-
3.990,-
1.490,-
1.290,-
7.990,-
990,-
1.490,-
3 STK.
16 STK.
VERÐ FRÁ:
„POLO”
HILLUR 4 STK.
Flottar, hvítar hillur
til að festa á vegg
eða hafa á gólfi.
4 stk. saman
í einum pakka.
4 STK. SAMAN
3 STK.HILLUR 3 STK. Í SETTI
Fallegar ferhyrndar hillur til að
festa á vegg. Fást í hvítu og
svörtu. 3 stk. saman í setti á
frábæru verði!
299,-
VERÐ FRÁ:
www.rumfatalagerinn.is
„KRONBORG
LUX“ ANDA-
DÚNSSÆNG
Frábær gæðadúnsæng,
fyllt með 100% hvítum
andadúni. Þyngd fyllingar
700 gr. Stærð 135 x
200 sm. Sængurtaska fylgir.
9.990,-
? Núna grassera kjaftasögur sem aldreifyrr. Hvar sem maður fer talar fólk umað nýríku bankaplebbarnir séu einn aföðrum að lýsa yfir gjaldþroti og að hálfsárs gamlir Range Roverar fáist fyrir slikkenda sé nú verið að selja þá grimmt uppí skuldir. „Hefurðu frétt hvernig fór fyrirFL-gæjanum? Hann var gíraður upp fyr-
ir haus og skuldar víst svo mikið núna að
hann á ekki einu sinni fyrir klósettpappír
til að skafa skítinn af bakinu á sér,“ segir
fólk og það hlakkar svo í því að veggirnir
í herberginu nötra.
Þórðargleðin yfir hinu háa falli hinna
vægðarlausu hrokagikkja er slík að sum-
ir ganga um göturnar fagnandi eins og
þeir hafi unnið Ólympíuleikana. Ég er
einn þeirra. Ég hef verið svo æstur und-
anfarnar vikur að ég hef viljandi farið
óþarflega oft í klippingu til að heyra nýj-
ar og ferskar slúðursögur af falli banka-
plebbaveldisins. Ég nærist á þessu.
En innst inni veit ég að þetta er bæði
ósatt og ósanngjarnt. Fjármálamarkaðir
munu ná sér að nýju og áður en við vit-
um af fáum við nýja kynslóð af smekk-
lausum graðfolum spólandi upp drullu á
bökkum Rangár eystri á brakandi nýjum
Hummer-jeppum. Og eftir því sem ég
hugsa meira um það því frábærara finnst
mér það. Næsta uppsveifla verður nefni-
lega enn rosalegri og fallið sem kemur í
kjölfarið verður líka ennþá meira kon-
fekt fyrir kjaftagemlinga sem fyllast gleði
við að horfa upp á ófarir annarra. Einka-
þotur á útsölu. Ég er strax farinn að
hlakka til.
Einkaþotur á útsölu
Bergur Ebbi
Benediktsson
skrifar um nýríka fólkið
YFIR STRIKIÐ
Kemur
góðærið
aftur?
24 LÍFIÐ
„Ég meinti aldrei að hann væri ras-
isti,“ segir Gaukur Úlfarsson sem
tjáir sig um umdeildan
dóm vegna bloggfærslu.
Gaukur tjáir sig um
meiðyrðadóminn
»62
Fyrirsætan Ásdís Rán komst í
fyrsta sæti í netkosningu Savvy-
.com í gær. Enn er tví-
sýnt um hvort hún sigri.
Ásdís komst í fyrsta
sæti keppninnar
»62
Hin íturvaxna Trish Stratus, sjö-
faldur bandarískur fjölbragða-
glímumeistari, er á leiðinni hingað
til lands til að etja kappi
við glímudrottningu.
Glímugella gegn
glímudrottningu
»58
● Fagna bjórnum
Félag ungra sjálf-
stæðismanna,
Heimdallur, mun
fagna afmæli
bjórsins í kvöld,
en þá verða 19 ár
liðin frá afnámi
sölubanns á bjór á
Íslandi. „Við fögnum í kvöld
klukkan átta á Ölstofunni, líkt og í
fyrra. Þessum merka áfanga mun-
um við síðan fagna um ókomin ár,
sérstaklega meðan sala áfengis er
ríkisbundin ennþá, en vonandi
verður frumvarp þess efnis að leyfa
frjálsa sölu áfengis samþykkt sem
fyrst,“ segir Erla Ósk Ásgeirs-
dóttir, formaður Heimdallar.
● Ítölsk tryggð
„Ítalar treysta sínu
fólki mjög vel og
þegar maður hef-
ur unnið dyggi-
lega fyrir eitt
ítalskt fyrirtæki þá
opnast dyrnar inn
í annað.“ Þetta
segir almannatengillinn Ómar R.
Valdimarsson sem hefur samið við
ítalska fyrirtækið Becromal um að
sinna samskiptum fyrirtækisins við
íslenska fjölmiðla. Ómar var, eins
og kunnugt er, upplýsingafulltrúi
ítalska verktakafyrirtækisins Imp-
regilo sem byggði m.a. Kára-
hnjúkastíflu. Fyrirtækið mun á
næstunni byggja aflþynnuverk-
smiðju á Akureyri.
● Á Syðri-Á
„Það eru nokkrir
söngvarar sem
hafa sungið með
okkur: Geir
Haarde, Bubbi
Morthens, Björg-
vin Halldórsson
og Felix Bergsson.
Ef einhverjir þeirra mæta koma
þeir bara upp og taka sitt lag,“ seg-
ir Ólafur Þórðarson um tónleika
sem hann og frændur hans í South
River Band halda í Iðnó í dag kl.
16. „Við höfum gert þetta áður á
þessum tíma og þá var troðfullt
hús.“
Ritstjórn
Sími: 510 3700
ritstjorn@24stundir.is
Auglýsingar
Sími: 510 3700
auglysingar@24stundir.is
Hvað ætlar þú að
gera í dag?
- kemur þér við