24 stundir - 01.03.2008, Blaðsíða 8

24 stundir - 01.03.2008, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 1. MARS 2008 24stundir Jóhannes S. Guðmundsson, varðstjóri á einni vakt snjó- ruðningsdeildar flugstjórn- arinnar, segir moksturinn ganga betur nú eftir að herinn fór. „ Nú get ég haft mennina óskipta í snjóruðningi, hálku- vörnum og öðru slíku,“ segir Jóhannes og bætir við að áður hafi mennirnir sinnt ýmsum öðrum verkefnum. Jafnframt segir hann að nú sé hægt að fjölga starfsfólki á vakt því alltaf séu einhverjir starfs- menn á bakvakt. þkþ Keflavíkurflugvöllur Mokstur geng- ur betur nú STUTT ● Nýr stjóri Lilja Þorgeirsdóttir hefur verið ráðin fram- kvæmdastjóri Öryrkjabanda- lags Íslands. Lilja hefur m.a. starfað sem verkefnastjóri á skrifstofu mannauðsmála LSH, á starfsmannasviði HÍ og sem félagsmálafulltrúi Sjálfsbjargar. Lilja er með meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu, MBA frá Háskóla Íslands 2007 og fíl.kand.-próf í félagsfræði frá Stokkhólmsháskóla 1988, með áherslu á mannauðsstjórnun, fræðslu og starfsþróun. Lilja byrjar í hálfu starfi á mánudag en fer í fullt starf frá 1. apríl. Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@24stundir.is „Staða og þörf hvers barns fyrir sig er metin og sérstaklega er leitað af- stöðu barnsins. Í mörgum tilfellum hefur það gengið að vista þau á meðferðarheimilum en í sumum ekki,“ segir Hrefna Friðriksdóttir, lögfræðingur hjá Barnaverndar- stofu. Stefán Blackburn, sextán ára, var á fimmtudag dæmdur í fjög- urra ára fangelsi, en hann hefur setið í gæsluvarðhaldi frá 27. apríl þegar hann réðst lífshættulega að leigubílstjóra. Þrátt fyrir að samn- ingur um vistun fanga undir átján ára aldri hefur verið í gildi milli Barnaverndarstofu og Fangelsis- málayfirvalda frá árinu 1998 hefur Stefán dvalið allan þann tíma í fangelsum, þ.e. í tíu mánuði. Eðli brota skiptir ekki máli Hrefna segir ekki sérstaklega horft til eðlis þeirra brota sem börnin fremji þegar ákveðið er hvar skuli vista þau. Aðrir þættir skipti þar meira máli. „Við útilok- um ekki fyrir fram að vista barn á meðferðarheimili þótt það hafi framið alvarlegt brot. En það verð- ur að segjast alveg eins og er að í sumum tilvikum eru börn sem hljóta fangelsisdóma þegar með talsverða reynslu af meðferðar- kerfinu og búið að reyna til hlítar meðferðir fyrir þau áður en komist er að ákveðnum endapunkti. Það þjónar í raun og veru ekki hags- munum barnsins að þröngva því aftur inn í slíkt kerfi.“ Stórhættuleg árás Árás Stefáns á leigubílstjórann var mjög alvarleg. Hann sló leigu- bílstjórann tvívegis með klauf- hamri í höfuðið og reyndi í kjölfar- ið að ræna hann. Bílstjórinn hlaut skurð á hnakka og innkýlt höfuð- kúpubrot. Hann komst út úr bif- reiðinni en sagði fyrir dómi að Stefán hefði gert sig líklegan til að fara á eftir honum. Þegar hann spurði Stefán hvað hann væri að gera svaraði hann: „Þegiðu og komdu með peninganna, helvítis fíflið þitt.“ Vitni sem komu fyrir dóminn sögðu Stefán hafa rætt það nokkrum dögum fyrir árásina að hann hyggðist ræna leigubílstjóra. Skömmu eftir að komið var með leigubílstjórann á sjúkrahús fékk hann alvarlegan krampa og var sendur í aðgerð. Fyrir héraðsdómi sagðist hann hafa orðið fyrir minn- isskerðinu vegna áverkanna og fengi enn höfuðverki og svima vegna þeirra. Hluti af Árnesgenginu Í júlí síðastliðnum hlutu þrettán ungmenni dóm fyrir sinn þátt í af- brotahrinu sem kennd hefur verið við Árnesgengið. Tíu hlutu óskil- orðsbundna dóma, en ákæruliðir málsins voru alls 76 talsins. Meðal þeirra var Stefán, sem hlaut dóm fyrir að taka þátt í tilraun til að stela hraðbanka í heilu lagi, að ræna verslun 10-11 þar sem hann réðst inn við annan mann með hulið andlit og vopnaður dúkahníf og fyrir að ræna tvo blaðbera. Barn hefur setið í fangelsi í tæpt ár  Ekki sjálfgefið að brotamenn yngri en átján ára séu vistaðir á meðferðarheimilum Hegningarhúsið Stefán dvelst sem stendur í Hegn- ingarhúsinu en hefur einnig verið á Kvíabryggju. ➤ Stefán dvelst sem stendur íHegningarhúsinu á Skóla- vörðustíg. ➤ Nefnd Evrópuráðsinsgegn pyntingum og ómann- úðlegri meðferð í fangelsum hefur ítrekað gert athuga- semdir við fangelsið. ➤ Það er á undanþágu frá heil-brigðisnefnd Reykjavíkur sem rennur út árið 2010. HEGNINGARHÚSIÐ Salmonella hefur ekki fundist í alifuglum á Íslandi síðan 2004 og hefur undanfarin 11 ár verið undir 1 prósenti, samkvæmt upp- lýsingum á fréttavef Mat- vælastofnunar. Tíðni campylo- bacter-mengaðra ferskra kjúklinga á markaði var 2,3 pró- sent á ársgrundvelli í fyrra. Í Nor- egi var tíðnin um 6 prósent, í Danmörku um 30 prósent en víða í Evrópu er vitað um 50 til 70 prósent á ársgrundvelli. ibs Kjúklingar á markaði Engin salmon- ella í 3 ár Konur athugið! Inn við beinin eru viðkvæm líffæri sem vert er að vernda. Þriggja punkta öryggisbelti í rútum eru bylting í öryggismálum. Hafðu samband og sérpantaðu einn slíkan fyrir þá sem þér þykir vænt um. www.gtyrfingsson.is - S. 568 1410 / 482 1210 - Grænir og góðir ;) Um helmingur skólastjóra í grunnskólum borgarinnar er karl- kyns, eða 45%, en aðeins 2 af hverj- um tíu grunnskólakennurum eru karlar. Þó verða skólastjórar að hafa kennsluréttindi og eru því lík- lega flestir ef ekki allir fyrrverandi kennarar. „Margir skýra lágt hlutfall karl- kyns kennara með því að karlar séu fljótari að fara þegar launin lækka. Varðandi skólastjórana þá er það söguleg hefð að karlar sækist frekar eftir stjórnunarstöðum. Hins vegar hefur kvenkyns skólastjórum fjölg- að, t.d. voru sjö konur í hópi þeirra tíu sem ráðnir voru í stöður skóla- stjóra í fyrra,“ segir Valgerður Ja- nusdóttir, starfsmannastjóri á menntasviði Reykjavíkurborgar. þkþ Grunnskólakennarar og skólastjórnendur Karlar stýra átján skólum af fjörutíu Búnaðarþing verður sett á Hótel Sögu á morgun. Haraldur Bene- diktsson, formað- ur Bændasamtak- anna, segist búast við því að meg- inþema þingsins verði sú breytta heimsmynd sem horfir við bænd- um. „Þær gríð- arlegu hækkanir sem orðið hafa á aðföngum og hækkanir á búvöru erlendis verða meginumræðuefn- ið. Ég vona að okkur takist að vekja skilning allra á því hvernig staðan er. Við erum í þeim spor- um að þurfa að velta hækkunum út í verðlagið, eins og fleiri.“ Har- aldur telur jafnframt að umræða á þinginu muni snúast um það hvaða möguleika íslenskur land- búnaður hafi til að halda aftur af hækkunum sem eru í undirbún- ingi. Búnaðarþing Ný heimsmynd
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.