24 stundir - 01.03.2008, Qupperneq 14
14 LAUGARDAGUR 1. MARS 2008 24stundir
24stundir
Útgáfufélag:
Ritstjóri:
Fréttastjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Árvakur hf.
Ólafur Þ. Stephensen
Björg Eva Erlendsdóttir
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Þröstur Emilsson
Elín Albertsdóttir
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2, 110 Reykjavík
Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: 24stundir@24stundir.is, frettir@24stundir.is, auglysingar@24stundir.is
Prentun: Landsprent ehf.
Í nýrri skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, er for-
vitnilegur kafli um heilbrigðismál. Stofnunin bendir á að heilbrigðis-
ástand á Íslandi sé mjög gott. Hins vegar kosti heilbrigðiskerfið þjóðina nú
þegar of mikið, í samanburði við önnur lönd OECD og miðað við að ald-
urssamsetning þjóðarinnar sé fremur hagstæð. Horfur séu á því að vegna
þess að þjóðin eldist á næstu áratugum, verði útgjöldin til heilbrigðismála
um 15% af landsframleiðslu um miðja öldina, verði ekkert að gert.
Tillögur stofnunarinnar til úrbóta eru m.a. að afnema hömlur á þjón-
ustu einkaaðila í heilbrigðiskerfinu, opna heilbrigðisgeirann fyrir sam-
keppni og fjármagna spítala á grundvelli verkefna, þ.e. að fé fylgi sjúkling-
um og spítalarnir fái greitt fyrir hverja aðgerð.
Að flestu leyti eru þetta markmið, sem ríkisstjórnin vinnur að nú þegar.
OECD gengur heldur lengra, ef eitthvað er. M.a. leggur stofnunin til að
um leið og samkeppni verði aukin í heilbrigðiskerfinu, verði kostnaðar-
þátttaka sjúklinga aukin til að koma í veg fyrir að of mikil eftirspurn verði
eftir heilbrigðisþjónustu. Um slíkt er vafalaust snúið að ná pólitískri sam-
stöðu.
OECD stillir málinu í raun þannig upp að það sé skárra að fólk borgi
eitthvað beint fyrir heilbrigðisþjónustu, sem verður skilvirkari og ódýrari
fyrir tilstuðlan einkarekstrar og samkeppni, en að stjórvöld neyðist til að
hækka skatta vegna óskilvirkrar og dýrrar heilbrigðisþjónustu.
Hitt fer ekki á milli mála að full þörf er á að efla einkarekstur og sam-
keppni í heilbrigðiskerfinu. Það er jákvætt að núver-
andi stjórnarflokkar hafa náð saman um það mál,
þótt útfærslan sé eftir. Hins vegar er aldrei neinn
skortur á fólki, sem hrópar að nú eigi að afhenda
„gróðaöflunum“ heilbrigðiskerfið þegar einkarekstur
og samkeppni ber á góma. Þeir hinir sömu þurfa að
svara þeirri spurningu, hvernig koma eigi í veg fyrir
að kostnaður við heilbrigðiskerfið vaxi okkur einfald-
lega yfir höfuð. Hvernig getum við tryggt að búa
áfram við jafngóða heilsu, en helzt fyrir sambærilegt
verð og þau ríki, sem við berum okkur saman við,
borga fyrir sitt heilbrigðiskerfi? Getum við sagt að nú-
verandi heilbrigðiskerfi sé það bezta, sem kostur er á?
Góð heilsa fyrir
lægra verð
SÆKTU LEIÐARANN Á WWW.MBL.IS/PODCAST
Það ákvæði laganna að þriggja
mánaða rétturinn sé ekki yfirfær-
anlegur þykir mjög smart. Þetta
er það sem kallast
hér: Use it or lose
it.
Það eru allir sam-
mála um að rann-
sóknir þurfi að
fara fram á því
hvaða áhrif fæð-
ingarorlofslögin
muni hafa. Sér-
staklega er áhugavert að kanna
hver áhrifin verða á börnin.
Í gærkveldi bar það helst til tíð-
inda að íslensku þingkonurnar og
Ingi Valur festust inni í lyftu
ásamt Matthildi. Það liðu u.þ.b.
20 mínútur þar til tókst að ná
okkur út og var þá sumum farið
að líða frekar illa.
Valgerður Sverrisdóttir
valgerdur.is
BLOGGARINN
Föst í lyftu
Það á að teljast til mannréttinda á
Íslandi að þurfa ekki að borga
nema 2% vexti ofan á verðbólgu.
Og að verðbólgan
sé ekki nema
önnur 2% ... Þar
á ofan heimtar
villta hægrið, að
Íbúðalánasjóður
verði lagður nið-
ur. Í staðinn eiga
að koma bankar,
sem eru svo illa
reknir, að þeir geta ekki fengið er-
lent lánsfé. Þeir verða að taka ok-
urlán Seðlabanka og geta ekki
notað slíkt fé til að lána húsbyggj-
endum. Okurvextir og verðbólga
gera villta hægrinu ókleift að loka
Íbúðalánasjóði. Meðan ríkisvald-
inu og bönkunum og Seðlabank-
anum er svona illa stjórnað.
Jónas Kristjánsson
jonas.is
Illa stjórnað
Undarlegra er að heyra vel
menntaða Pakistana fordæma
myndbirtinguna.
Furðulegast er
svo að sjá hvað
enska pressan í
Pakistan ýtir
undir mótmæli
sem virðast nú-
orðið miðast
gegn heilu landi.
Í gær taldi ég
þrjár burð-
armyndir af æstum mótmæl-
endum á mismunandi stöðum í
dagblaðinu The Nation. Er frétta-
gildið virkilega svona mikið? Mér
skildist á blaðamönnum í Kar-
achi að kvikmyndagerðarmaður í
Hollywood hygðist birta mynd
um Múhameð spámann á Netinu
einhvern tímann í mars.
Egill Bjarnason
austurlandaegill.blog.is
Mótmæla áfram
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@24stundir.is
Gísli Marteinn Baldursson
„liggur í pólitísku blóði sínu fyr-
ir eigin tilverknað og á varla afturkvæmt nema krafta-
verk gerist.“ … „hann er eins og dautt hross“. Svo
mæltist Össuri Skarphéðinssyni á einni vinsælustu
bloggsíðu landsins. Sjálfur gerir Össur sér mjög vel
grein fyrir því að lesendur vilja sjá blóð renna og því
bloggaði hann um þær vangaveltur sínar hvort Gísla-
greinin ætti ekki nokkurn þátt í vaxandi vinsældum
netmiðilsins Eyjunnar. Eftir niðurstöðu héraðsdóms í
vikunni kemur hins vegar upp spurning um hvort
bloggarar eigi á hættu að falla fyrir eigin hendi og liggja
í pólitísku blóði sínu.
Unaðslegt orðahunang
Um blogg almennt segir ráðherrann:
„Fyrir utan fjölbreytta bloggara sem spretta skeiðið,
og reiða sína Rimmugýgi að mönnum og málefnum –
séu þeir pólitískt þenkjandi – eru allskonar flottir
bloggarar sem láta orðahunang drjúpa úr blóm-
krónum tölva sinna svo unun er oft að lesa.“
Nú hefur fallið meiðyrðadómur og pólitísk stóryrði
á bloggi verið dæmd dauð og ómerk. Hvorki voru þau
sérstaklega flott né orðahunang. Maður sakaði annan
um að vera „aðalrasisti landsins“. En þau voru pólitísk
gífuryrði og þar kemur líkingin við orðfæri ráðherrans.
Ragnar Aðalsteinsson lagaprófessor segir meiðyrða-
mál fá á Íslandi miðað við hvað þau gætu verið mörg.
„Stjórnmálamenn voru lengst af kallaðir land-
ráðamenn með jöfnu millibili, án þess þeir höfðuðu
nein mál. Helst neyddust menn til að fara í mál ef þeir
voru sakaðir um fjárdrátt, eða ráðist væri að einkalífi
þeirra og persónufrelsi.“ Ragnar á ekki von á því að
bloggdómurinn verði fordæmi, en dómur Hæstaréttar
verði forvitnilegur.
Lög um stjórnlaust samfélag
Ragnar segir tvær hliðar á málinu. Á netinu ríki
stjórnleysi, því netverjar telji sig vera þar á frísvæði,
bæði hvað varðar höfundarrétt og ábyrgð eigin orða.
„En ég tel engu máli skipta hvar ummæli falla, ábyrgð-
in er söm.“ En á netinu er oft erfitt að finna þann sem
ber ábyrgðina og fjölmörg ummæli, oft þau algrófustu,
eru nafnlaus. Spyrja má hvort hægt verði að kalla net-
Bloggarar í pólitísku blóði sínu?
SKÝRING