24 stundir - 01.03.2008, Síða 18

24 stundir - 01.03.2008, Síða 18
Það hefur vakið athygli hvað sjálfstæðismenn á Álftanesi hafa átt greiðan aðgang að fréttasíðum 24 stunda undanfarnar vikur. Er engu líkara en blaðið taki þátt í hat- rammri baráttu sjálfstæðismanna sem ætla seint að sætta sig við að hafa misst meirihluta á Álftanesi. Í blaðinu þann 27. febrúar keyrir þó úr hófi fram þegar forsíða blaðsins er lögð undir fréttir um starfsmannahald í sveitarfélaginu og stríðsletur notað í fyrirsögn. Mannabreytingar á skrifstofunum eru kallaðar flótti undan bæjar- stjóranum. Persónulegar ástæður Fréttin og uppsetning hennar segir mest um fréttastefnu blaðsins sem kýs að leggja forsíðu sína und- ir fréttaflutning af þessu tagi. Í fá- mennu sveitarfélagi eins og Álfta- nesi geta litlar mannabreytingar verið stórt hlutfall starfsmanna. Í Áhaldahúsi Álftaness starfa t.d. þrír fastir starfsmenn og ef einn kýs að hverfa til annarra starfa þá hefur þriðjungur starfsmanna sagt upp. Á bæjarskrifstofunum hafa verið auk bæjarstjóra u.þ.b. sjö stöðu- gildi og því miklar breytingar þegar t.d. tveir til þrír starfsmenn hætta störfum. Í greininni er þess sérstak- lega getið að fyrrverandi skrifstofu- stjóri sem er sérstaklega nafn- greindur, félagsmálastjóri og launafulltrúi hafi hætt eftir að skipt var um meirihluta í bæjarstjórn vorið 2006. Þetta er rétt en þess ekki getið að þessir starfsmenn hættu af per- sónulegum ástæðum og töldu tímabært að breyta um starfsvett- vang og takast á við ný verkefni. Það kom hins vegar ekki fram í fréttinni að fyrrverandi sveitar- stjóri hætti á síðasta valdaári D- listans eftir tólf ára starfsferil og kaus að hverfa til annarra starfa sem framkvæmdastjóri hjá einu af stærstu verktakafyrirtækjum lands- ins. Vill blaðið ef til vill álykta og þá með sama hætti og í gær að þessi uppsögn fyrrverandi sveitarstjóra 2006 hafi verið vegna yfirgangs oddvita D-listans? Það má svo fylgja þó það komi málinu ef til vill ekki við, að skrifstofustjórinn sem nafngreindur var í frétt 24 stunda og hætti skömmu eftir að nýr meirihluti tók við, fylgdi í spor sveitarstjórans, yfirmanns síns til margra ára, og réði sig í fjármála- stjórnun hjá sama verktakafyrir- tæki. Bætt þjónusta Í fréttinni er það gert ótrúverð- ugt að tveir hafi verið ráðnir til starfa á sviði félagsmála þegar fé- lagsmálastjóri lét af störfum á síð- asta ári. Hið rétta er að nýr meiri- hluti er að efla stjórnsýslu á þessu sviði og vill bæta þjónustu við íbúana og hefur m.a. þess vegna verið stofnað til velferðar- og skólasviðs sem verður þróað og eflt á næstu árum. Í fréttinni er sagt frá því að nýráðinn skrifstofustjóri hafi óskað eftir starfslokum en í samræmi við lög og samþykktir get ég hvorki né vil ræða ástæður upp- sagnar hans opinberlega. Bæjar- stjórn hefur hins vegar ákveðið, að nú þegar ráðið verður í starf skrif- stofustjóra, verði starfinu skipt í tvö embætti, skrifstofustjóra sem verði löglærður og fjármálastjóra með viðskiptafræðimenntun og er með þessari ákvörðun stefnt að bættri stjórnsýslu á Álftanesi og horft til þess að mikill vöxtur hefur verið og verður í sveitarfélaginu. Höfundur er bæjarstjóri á Álftanesi Eðlilegar mannabreytingar UMRÆÐAN aSigurður Magnússon Í fámennu sveitarfélagi eins og Álfta- nesi geta litl- ar manna- breytingar verið stórt hlutfall starfsmanna. Álftanes Litlar manna- breytingar geta verið stórt hlutfall starfsmanna. 18 LAUGARDAGUR 1. MARS 2008 24stundir F í t o n / S Í A N1 VERSLANIR WWW.N1.IS N1 býður úrval af legum og tengdum vörum fyrir iðnað, bifreiðar og sjávarútveg. Hafðu samband við fagmenn okkar í síma 440 1233. LEGUR Legur · Leguhús · Reimar · Tannhjól · Reimskífur Pakkdósir · Sérverkfæri · Legufeiti Á bæjarstjórnarfundi þann 19. febrúar sl. gerði Margrét Kristín Helgadóttir, formaður samfélags- og mannréttindaráðs Akureyrar, grein fyrir starfsáætlun ráðsins fyrir hönd meirihluta Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Samkvæmt þeirri áætlun er ráðgert að gera róttækar breytingar á ýmissi félagslegri starf- semi sem starfrækt hefur verið hér á Akureyri. Má í því sambandi nefna Menntsmiðju unga fólksins og Menntasmiðju kvenna. Menntasmiðja kvenna Ástæðulaust er að fara mörgum orðum um Menntasmiðju kvenna hér á Akureyri, jafn vel kynnt og viðurkennd sú starfsemi er. Menntasmiðja kvenna var stofnuð árið 1994 sem tilraunaverkefni en var fljót að skjóta rótum og hefur fyrir löngu fest sig í sessi. Hlutverk Menntasmiðjunnar er að bjóða upp á nám í lífsleikni fyrir bæjar- búa með það að markmiði að auka virkni samfélagsþegnanna og styrkja stöðu þeirra sem ýmissa hluta vegna þurfa stuðning. Menntasmiðja kvenna er fyrir- mynd annarrar starfsemi hér á Ak- ureyri, t.d. Menntasmiðju unga fólksins og starfsemi hennar hefur hlotið eftirtekt og viðurkenningu um land allt. Á þeim fjórtán árum sem Menntasmiðjan hefur verið starfrækt hefur orðið gjörbreyting á stöðu kvenna hér á Akureyri varðandi þau málefni sem Mennta- smiðjan stendur fyrir. Þar má þakka jafnt góðum hug aðstand- enda smiðjunnar, rekstraraðilum og ekki síst starfsfólki og stjórnend- um sem af miklum eldmóði hafa drifið starfsemina áfram allt frá fyrsta degi. Okkur vitanlega hefur ekki enn verið leitað álits starfsfólks eða stjórnenda Menntasmiðjunnar á þeim breytingum sem boðaðar hafa verið af hálfu meirihluta bæj- arstjórnar. Þvert á móti virðast fyr- irhugaðar breytingar vera í full- kominni andstöðu við starfsfólk og stjórnendur. Hvað ætlast meiri- hlutinn til með því að setja þessa merku starfsemi í slíkt uppnám og í engu samráði við það fólk sem hef- ur unnið ötullega að þessum mál- um? Hver eru hin faglegu rök fyrir þeim umbyltingum sem meirihlut- inn hefur boðað? Menntasmiðja unga fólksins Menntasmiðja unga fólksins er verkefni sem byggir á reynslunni úr Menntasmiðju kvenna og sömu hugmyndafræði. Menntasmiðja unga fólksins er ætluð ungu fólki sem af einhverjum ástæðum hefur ekki fundið sig í námi eða atvinnu. Í Menntasmiðju unga fólksins er leitast við að rífa ungmennin upp úr fari atvinnuleysis og almenns stefnuleysis í lífinu og gera þau hæfari til að takast á við þau verk- efni sem standa þeim til boða og/ eða búa þau undir að skapa sér verkefni sjálf. Menntasmiðja unga fólksins er ung að árum og líkt og með aðra starfsemi af þessu tagi þarf hún sinn tíma og rými til að skjóta rótum. Þann tíma ætlar nú- verandi meirihluti ekki að gefa Menntasmiðju unga fólksins og hefur tilkynnt að ætlunin sé að leggja starfsemina niður eða sam- eina öðrum. Samkvæmt því sem formaður samfélags- og mannrétt- indaráðs Akureyrar sagði á bæjar- stjórnarfundinum er árangur af starfsemi Menntasmiðjunnar ekki það góður að ástæða sé til að halda starfsemi hennar áfram. Enginn veit hins vegar með hvaða hætti formaðurinn lagði mat á starfsemi Menntasmiðjunnar eða hvernig mælingar á árangri starfseminnar fóru fram. Það er hins vegar vitað að ekki var leitað álits starfsfólks Menntasmiðjunnar eða notenda á starfseminni og formaðurinn hefur ekki lagt fram nein gögn máli sínu til stuðnings eða fært nein önnur haldföst rök fyrir því að starfsemin þar hafi verið árangurslítil. Til hvers er þá verið að ráðast með þessum hætti gegn Menntasmiðju unga fólksins? Hver er tilgangurinn með því að fara með þessum flumbrugangi gegn jafn mikilvægri og í leiðinni viðkvæmri starfsemi sem þarf fyrst og fremst að fá tíma og rými til að geta þjónustað ungt fólk og aðstoðað það við að ná fót- festu í lífinu að nýju? Bókun Vinstri grænna Hér hefur aðeins gefist rými til að nefna hluta af þessum boðuðu breytingum núverandi meirihluta. En þær eru flestir sama marki brenndar – meirihlutinn er að grafa undan mikilvægum félagsleg- um úrræðum á Akureyri. Fyrirætl- anirnar eru í hrópandi mótsögn við allt það góða starf sem unnið hefur verið í smiðjunum og þær ógna þeim fjölbreyttu félagslegu úrræð- um sem reynt hefur verið að byggja upp í bænum á mörgum undan- förnum árum og samstaða hefur verið um. Þar að auki hefur meiri- hlutinn ekkert haft fyrir því að koma á samráði um þessar breyt- ingar né ræða við starfsmenn þess- ara stofnana. Sú atlaga sem boðuð hefur verið af meirihluta bæjar- stjórnar Akureyrar verður ekki gerð með stuðningi Vinstri grænna. Um það vitnar bókun okkar á bæjarstjórnarfundinum 19. febrúar sl. Höfundar eru bæjarfulltrúar Vinstrihreyfingarinnar græns framboð á Akureyri Vegið að félags- legri aðstoð UMRÆÐAN aBaldvin Sigurðsson Kristín Sigfúsdóttir Sú atlaga sem boðuð hefur verið af meiri- hluta bæj- arstjórnar Ak- ureyrar verður ekki gerð með stuðningi Vinstri grænna. Akureyri „Meirihlutinn er að grafa undan mik- ilvægum félagslegum.“

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.