24 stundir - 01.03.2008, Page 37
24stundir LAUGARDAGUR 1. MARS 2008 37
Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur
dista@24stundir.is
Hvaða lifandi manneskju líturðu upp til og
hvers vegna?
Haraldur Jónsson gefur lýsingarorðinu
„sposkur“ nýja vídd.
Hver er þín fyrsta minning?
Abba í Eurovision.
Hver eru helstu vonbrigðin hingað til?
Ég trúi almennt ekki á að sjá eftir því sem er
liðið en ég man eftir því að hafa verið von-
svikinn yfir því þegar Dr. Spock tapaði fyrir
Sigur Rós á Íslensku tónlistarverðlaununum
um árið. Þá varð til lýsing sem hefur loðað
við okkur í Bandaríkjunum: „Great, but not
as great as Sigur Ros“.
Hvað í samfélaginu gerir þig dapran?
Að fullkomlega eðlilegt fólki skuli leyfa sér
að haga sér eins og fávitar og ekki síður þeg-
ar fávitar gera sér far um að hegða sér eins
og „eðlilegt“ fólk.
Leiðinlegasta vinnan?
Hef gaman af öllum störfum sem ég hef
komist í nema það var helvíti lýjandi að
vinna á loftpressu neðanjarðar.
Uppáhaldsbókin þín?
The Lives of the Monster Dogs eftir Kirsten
Bakis.
Hvað eldarðu hversdags, ertu góður kokk-
ur?
Er lítill kokkur því mér hugkvæmist sjaldn-
ast matseld fyrr enn komið er í óefni, allir
glorsoltnir og enginn tími til stefnu. Þyki
annars helvíti góður í villtum sósum.
Hver myndi leika þig í kvikmynd byggðri á
ævi þinni?
Errol Flynn eða Sonny Bono (ef það þyrfti
að vera núlifandi leikari væri Cher sennilega
besti kosturinn).
Að frátalinni húseign, hvað er það dýrasta
sem þú hefur fest kaup á?
Rándýr Range Rover, 1981 módel, sem var
gallagripur, alltaf bilaður en alveg geðveik-
islega kúl þangað til hann datt í sundur á
Lindargötunni.
Mesta skammarstrikið?
Þegar ég gekk milli búða í New York og seldi
hnossgætið „Hardfiskur and hrutspungar“
sem hnossgæti framtíðarinnar. Tók niður fullt
af pöntunum en afgreiddi enga þeirra.
Hvað er hamingja að þínu mati?
Hávaði og rólegheit.
Hvaða galla hefurðu?
Man ekki neitt, veit ekki neitt, get voða fátt.
Ef þú byggir yfir ofurmannlegum hæfi-
leikum, hverjir væru þeir?
Að geta sungið eins og Freddie Mercury og/
eða synt eins og Guðlaugur sundhetja.
Hvernig tilfinning er ástin?
Funheit.
Hvað grætir þig?
Þegar hlutirnir mistakast að óþörfu.
Hefurðu einhvern tímann lent í lífshættu?
Eflaust, tek slíkt ekki of nærri mér. Það er
órjúfanlegur hluti af því að vera lifandi.
Hvaða hluti í eigu þinni meturðu mest?
Það eru nokkrar dýrmætar og ófáanlegar ís-
lenskar LP-plötur frá áttunda áratugnum.
Hvað gerirðu til að láta þér líða vel?
Heimsæki frændur mína.
Hverjir eru styrkleikar þínir?
Límheili, undurfögur söngrödd og næmt
auga fyrir settlegum litasamsetningum
Hvað langaði þig að verða þegar þú varst lít-
ill?
Bóksali og rokkari, eða róbóti
Er gott að búa á Íslandi?
Það er æðislegt nema stundum er erfitt að búa
innan um alla þessa Íslendinga.
Hefurðu einhvern tímann bjargað lífi ein-
hvers?
Ekki veit ég til þess. Vona þó að Dr. Spock hafi
einhvern tímann komið í veg fyrir að einhver
dræpist úr leiðindum. Það er allavega yfirlýst
markmið okkar.
Hvert er draumastarfið?
Dreymdi lengi vel um að verða lagermaður í
álverinu í Straumsvík en í dag dreymir mig
um að verða geimfari.
Hvað ertu að gera núna?
Ég er að gera talningu í búninga og lausa-
munageymslu Dr. Spock í Skuggahverfinu.
Það er skemmtilegur starfi sem býr bæði yfir
mýkt og list.
Óttarr Proppé er sennilega einn
rokkglaðasti maður Íslands.
Hann klæðir sig venjulega upp á
fyrir tónleika og rokktaktarnir
eru öllum sýnilegir. Frægur er
hann fyrir að skarta háhæluðum
skóm og þröngum, glitrandi
buxum og auðvitað gulum
gúmmíhönskum.
Óttarr og félagar hans í hljóm-
sveitinni Dr. Spock spila þétt og
líflegt rokk á mörkum þunga-
rokks og teljast ein þéttasta
rokksveit landsins í dag. Óttarr,
Spockliðar og gulu hanskarnir
slógu rækilega í gegn í nýaf-
stöðnum og ævintýralegum
Eurovision-slag.
a
Gerir mig dapran að fullkomlega eðlilegt fólki skuli leyfa sér að
haga sér eins og fávitar og ekki síður þegar fávitar gera sér far
um að hegða sér eins og „eðlilegt“ fólk.
Árvakur/Eggert
Óttarr Proppé
24spurningar
PRÚTTAÐU
í BYKO BREIDD
prúttsala á heimil
istækjum
í glerhýsinu í BYK
O Breidd
Fyrstir koma
fyrstir fá
Þar sem fagmennirnir versla er þér óhætt!
Til sölu er 7.3 brl. bátur,
8.6 metrar að lengd og
2.8 á breidd. Smíðaður úr
plasti og með Mermaid 77
hestafla vél. Vagn fylgir
með. Báturinn er dekk-
aður og með perustefni
og hefur verið notaður til
fiskveiða en selst án kvóta
en hefur heimild til þess
að fá veiðileyfi í aflamarkskerfi. Grásleppuleyfi getur fylgt með.
Eggert Sk. Jóhannesson, Jóhannes Eggertsson, Ólafur Thoroddsen hdl.
Nánari upplýsingar veitir
Fasteignasalan Eignaver
Sími 553-2222 • eignaver.is
Síðumúli 13 • 108 Reykjavík
Bátur til sölu