24 stundir - 01.03.2008, Side 40

24 stundir - 01.03.2008, Side 40
40 LAUGARDAGUR 1. MARS 2008 24stundir vera sonur Hermanns. Þessar bar- smíðar skiluðu litlum árangri því ég var klæddur í mikinn galla sem tók höggin af mér. Ég færði mig hægt og rólega nær Steingrími og dró hægri fótinn aftur eins og menn gera í fótbolta. Þegar ég var í góðu færi sparkaði ég í legginn á honum eins fast og ég gat. „Þú fót- braust mig,“ sagði hann en þegar hann sá að svo var ekki sagði hann: „Þú hefðir allavega getað fótbrotið mig.“ Svo litum við upp og þá stóð Hermann yfir okkur. Hann hafði komið út til að bjarga mér en sá svo að þess þurfti ekki. Hann sagði við mig: „Fjandi ertu harður að slást svona pínulítill eins og þú ert.“ Hann rétti mér fimmkall og sagði: „Þetta eru verðlaun fyrir að slást svona vel.“ Steingrímur reif fimm- kallinn af mér og neitaði að af- henda hann nema hann fengi fimmkall sjálfur. Þá var samið um að við fengum tvær og fimmtíu hvor. Við skiptum fimmkallinum úti í mjólkurbúð. Mamma hafði alltaf sagt mér að Hermann væri faðir minn. Þennan dag sannfærðist ég um að svo væri. Ég hafði heyrt Vigdísi segja að ég væri alveg eins og Hermann og Hermann hafði verið ákaflega föð- urlegur við mig þegar hann gaf mér fimmkallinn. Faðerni mitt prent- aðist inn í huga minn. Þegar fólk spurði hver ég væri svaraði ég: „Ég er Lúðvík Gizurarson“ en ég vissi að ég væri að segja ósatt. Ég var Hermannsson.“ Hittust þið Steingrímur ekkert eftir slagsmálin milli ykkar? „Eftir slagsmálin gekk ég stund- um framhjá Ráðherrabústaðnum og þá kallaði Steingrímur til mín: „Lúðvík, viltu ekki tala við mig.“ En ég var svo móðgaður eftir slags- málin að ég gekk framhjá. Einn daginn kallaði hann: „Lúðvík, ég á svo stóra og fína rottu, viltu ekki koma í kjallarann og sjá hana, hún er í gildru?“ „Ég vil ekkert sjá rott- ur,“ svaraði ég. Þá sagði hann: „Þú verður að koma, frændi minn“ og ég fór með honum og skoðaði rott- una sem var stór og fín.“ Pálmi rektor á vaktinni Hafði Hermann samband við þig? „Árin liðu og ég fór í mennta- skóla og þar var altalað að ég væri sonur Hermanns. Einn daginn hringdi Hermann í Pálma Hann- esson rektor og sagðist gera hann ábyrgan fyrir því að ekki væri níðst á mér vegna faðernis míns. Ef ein- hver slagsmál voru sem ég tók þátt í þá fór dyravörður upp á skrifstofu til Pálma. Pálmi kom svo út og spurði hvort ég væri meiddur. „Nei,“ sagði ég alltaf. „Hvað með ykkur?“ spurði Pálmi hina strák- ana. Þeir svöruðu: „Lúðvík barði okkur.“ Hermann var alltaf öðru hverju að reyna að finna flöt á þessu máli. Mamma og Hermann skrifuðust á. Hún bauð mér eitt sinn bréfin, þetta var stór bunki, en ég var svo vitlaus að taka ekki við þeim. Hún fargaði bréfunum áður en hún dó. Ég sé mjög eftir því að hafa ekki þegið þau. Hermann talaði við aðra í fjölskyldunni um mig og velti því fyrir sér hvernig hann gæti stutt mig og hjálpað mér. Einn dag- inn sendi hann til mín mann, Jón Sigtryggsson, sem vann í Hæsta- rétti. Jón fór með mig heim til Her- manns sem bjó þá á Skothúsvegi. Jón hafði hringt á undan okkur og fullvissaði mig um að vel yrði tekið á móti okkur. Ég hringdi dyrabjöllunni á Skot- húsvegi og heyrði um leið óminn af samtali Hermanns og Vigdísar. Hermann vildi opna fyrir mér en hún bannaði honum það. Þá sagði hann: „Ég bauð Lúðvíki að koma.“ Vigdís svaraði: „Á þetta að verða eins og á Tjarnargötunni þegar hann gekk þar daglega út og inn?“ Loks opnaði Vigdís dyrnar. Hún horfði á mig. Ég var mjög líkur Hermanni og ég held að þar sem hún stóð þarna í dyrunum hafi hún séð mig sem ungan Hermann. Hún varð eins og frosin, ætlaði að segja eitthvað en kom ekki upp orði. Ég sagði við hana: „Vigdís mín, ég kem ekki hér inn“ og kvaddi hana kurteislega. Jón Sig- tryggsson keyrði mig síðan heim. Hann hafði keyrt bílinn upp á gangstétt, skrúfað niður gluggann og hlustað á allt sem sagt var. Hann þagði eins og hann hefði glatað málinu. Svo sagði hann: „Það er bara svona!“ Svo liðu aftur nokkrar mínútur í þögn og hann sagði aft- ur: „Það er bara svona!“ Eftir að hafa hitt Vigdísi þarna gerði ég mér grein fyrir því hversu mjög hún þáðist vegna þessa máls alls. Það þjakaði hana alla ævi og móður mína líka. Ég ber engan kala til Vigdísar. Hún var góð kona í erfiðum aðstæðum. Hvað mig varðar þá er það þungur kross að bera að vera launsonur. Ég var lát- inn gjalda þess. Ef ég fékk góða stöðu sögðu menn: „Hann er bara sonur Hermanns.“ Stundum hef ég hugsað með mér að ég hefði mátt vera móttæki- legri gagnvart Hermanni því hann reyndi að nálgast mig eins og hann gat en aðstæður hans voru erfiðar vegna viðhorfs Vigdísar. Ég vissi ekki alltaf hvernig ég ætti að bregð- ast við og var oft gramur vegna þessara aðstæðna.“ Þegar þú lítur yfir liðinn veg, ertu bitur vegna alls þessa? „Nei. Þegar móðir mín lá bana- leguna sat ég við sjúkrabeð hennar á heimili hennar í nokkrar vikur um sumarið. Hún dó síðan um haustið. Einn daginn sagði hún: „Þetta hefur stundum verið erfitt hjá okkur.“ „Já,“ sagði ég, því ég mótmælti henni aldrei. Hún sagði: „Ég er þakklát þér, Lúðvík minn, að þú hefur aldrei ásakað mig þeg- ar vandræði hafa verið eða kennt mér um þau.“ Svo sagði hún setn- ingu sem ég get tekið undir. Hún sagði: „Ég hefði ekki viljað missa af þessu.““ Málaferlin „Þetta var oft hræðilegt og ég óska engum þess að þurfa að ganga í gegnum mál eins og þetta." a Mamma og Her- mann skrifuðust á. Hún bauð mér eitt sinn bréfin, þetta var stór bunki, en ég var svo vitlaus að taka ekki við þeim. Hún fargaði bréf- unum áður en hún dó. a Móðir mín sagði við mig: Þú stendur í ómældri þakkarskuld við Gizur og þú skuldar hon- um fulla kurteisi og vin- áttu til æviloka. 24stundiir/Kristinn

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.