24 stundir - 01.03.2008, Side 50
50 LAUGARDAGUR 1. MARS 2008 24stundir
10-50%
Vaxtalaus lán í 6 mánuði
Verslunin Rúmgott · smiðjuvegi 2 · Kópavogi · sími 544 2121. Opið virka daga frá kl. 10-18 - laugardaga kl. 11-16
www.rumgott.is
Vinsælu
Gel/ethanOl
eldstæðin
KOmin aftuR
BYltinG í sVefnlausnum
eitt Besta úRVal landsins á heilsudýnum
feRminGaR-
tilBOð
Frí legugreining
og fagleg ráðgjöf
á heilsudýnum.
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hilduredda@24stundir.is
Írska myndlistarkonan Fiona
Cribben opnar í kvöld málverka-
sýningu í Gallerí Geli við Hverf-
isgötu, en þetta er í fyrsta skipti
sem hún sýnir hér á landi. Fiona
hefur verið búsett á Íslandi frá
árinu 2006 og hefur fengist við
myndlist í sjö ár. „Reyndar lærði
ég fatahönnun í listaháskóla í Du-
blin og starfaði við hönnun í
nokkur ár. En hugur minn var þó
alltaf við myndlistina, sem er mín
ástríða, og ég myndi hiklaust segja
að ég væri á réttri hillu þegar ég
vinn í henni,“ segir hún, og bætir
því við að innblásturinn komi víða
að. „Stundum sæki ég myndefnið í
drauma mína frá því nóttinni áður
og stundum sæki ég innblástur í
trúna. Svo mála ég stundum sjálfs-
myndir þannig að það er óhætt að
segja að verkin mín séu oft á tíð-
um mjög persónuleg. En þó svo að
ég sé almennt hrifin af mjög skær-
um og sterkum litum tel ég mig
ekki mjög bundna af neinum
ákveðnum „stíl“ sem margir
spyrja mig út í. Reyndar held ég að
þeir sem til þekkja kannist við
handbragð mitt í öllum mínum
myndum, en þrátt fyrir það ein-
skorða ég mig hvorki við ákveðin
myndefni né ákveðna liti.“
Flott gallerí
Eins og fyrr segir er þetta fyrsta
sýning Fionu hér á landi, en hún
hefur áður haldið tvær sýningar í
London. Hún segist hafa haft
augastað á Gallerí Geli um nokk-
urn tíma. „Ég kynntist því fyrst
þegar ég fór þangað í hárgreiðslu
stuttu eftir að ég flutti til Íslands
og svo þegar ég frétti að til stæði
að gera það jafnframt að galleríi
hafði ég samband og athugaði
hvort það væri einhver möguleiki
að fá að sýna þarna. Þetta er ekki
stórt gallerí og þar sem ég er með
16 myndir munu þær hanga mjög
þétt, en það verður bara ákveðin
áskorun að raða þeim upp.
Stendur í mánuð
Formleg opnun á sýningu Fionu
verður klukkan 20 í kvöld og eru
allir velkomnir. „Það verða léttar
veitingar í boði og mjög óformleg
og létt stemning,“ segir hún. Sýn-
ingin stendur fram í lok mars.
Írsk listakona sýnir í Gallerí Geli við Hverfisgötu
Sækir innblástur í drauma,
trúna og daglegt líf
Myndlistarkonan Fiona
Cribben féll fyrst fyrir
Gallerí Geli þegar hún fór
í hárgreiðslu þar stuttu
eftir að hún flutti til
landsins.
Fiona Cribben Opnar
sína fyrstu einkasýningu
á Íslandi í kvöld.
➤ Er lærður fatahönnuður ogfæst ennþá við hönnun sam-
hliða myndlistinni.
➤ Verkin á sýningunni í GalleríGeli eru öll unnin á síðast-
liðnum tveimur árum.
LISTAKONAN
Nemendur við Tónlistarskólann í
Reykjavík spila á tónleikum í
Norræna húsinu í dag, og hefjast
þeir klukkan 14. Þema tón-
leikanna að þessu sinni er Vín-
arklassík og meðal flytjenda eru
Ragnheiður Gröndal sem spilar á
píanó. Aðgangur er ókeypis og
allir velkomnir.
Nemar á
tónleikum
Erna Blöndal
syngur á tón-
leikum í Lang-
holtskirkju ann-
að kvöld klukkan
20. Tónleikarnir
eru liður í verk-
efni Ernu, „Sorg-
in og lífið“, sem
hún hefur unnið að undanfarin
þrjú ár og miðar að því að nota
tónlist til að hjálpa syrgjendum
og fólki í erfiðleikum. Með henni
spila Gunnar Gunnarsson, Jón
Rafnsson og Örn Arnarsson.
Tónleikar fyrir
syrgjendur
MENNING
menning@24stundir.is a
En hugur minn var þó alltaf við
myndlistina, sem er mín ástríða, og
ég myndi hiklaust segja að ég væri á
réttri hillu þegar ég vinn í henni.