24 stundir - 01.03.2008, Page 55
ur verið okkar boðskapur og trú að
vænlegra sé að eyða milljón krón-
um í okkur og þar með forvarnir
en tíu milljónum í meðferðir og
önnur úrræði eftir á. Það liggur
fyrir að samfélagsleg áhrif íþrótta
eru gríðarleg og þar má vinna frek-
ara starf. Það má eiginlega segja
um alla hreyfinguna að sóknarfær-
in eru víða en við verðum að vinna
þetta eftir bestu getu og í góðri
samvinnu. Það hefur ekkert upp á
sig til langframa að snúa upp á sig
og heimta og krefjast meira fjár-
magns. Tel ég að slíkt þurfi að
vinna með skipulegum hætti.“
Hann vill þó ekki nefna eina tölu
sem nægja myndi hreyfingunni til
að sinna öllu því sem hún á að
gera. „Það er nú svo að það verða
alltaf kröfur um meira hversu vel
sem við gerum og ómögulegt að
skjóta fram einhverri einni töfra-
tölu um það. En til að svara spurn-
ingu þinni þá viljum við auðvitað
miklu meiri peninga en við fáum
nú.“
Ólympíuleikarnir framundan
Ólafur lýsir áhyggjum sínum af
fjölda íþróttamanna hérlendra sem
líklegir eru til að fara á Ólympíu-
leikana. Jafnvel bjartsýnustu menn
innan hreyfingarinnar sjá ekki
annað en að fækkun verði í íslenska
hópnum og er þá ekki litið til
landsliðsins í handbolta sem á enn
möguleika en þarf að mæta Pól-
landi, Svíþjóð og Argentínu í um-
spilsleikjum um tvö laus sæti á
leikunum í Kína. „Það er hugsan-
legt að við sendum færri keppend-
ur en áður sem vissulega er
áhyggjuefni. Við höfum bent á
þetta varðandi úthlutanir til afreks-
fólksins okkar sem er í höndum
ríkisins en samningur þar að lút-
andi rennur út á þessu ári. Þar vilj-
um við sjá verulega aukningu og
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra hefur áður
lýst yfir miklum vilja að koma að
því með myndarlegri hætti en
hingað til og um þetta verður sam-
ið síðar á árinu. En ljóst er að í ís-
lenska hópnum verða færri en áður
og það er miður enda Ólympíu-
leikar flaggskip íþróttahreyfingar-
innar í heiminum. Það skiptir líka
máli gagnvart næstu leikum á eftir
því að þátttaka á slíkum mótum er
kvótatengd og þó aðeins sé litið til
þess er mikilvægt að handboltalið-
ið okkar fari áfram. Þó verður að
segja að enn er tími til stefnu. Í
sundinu eiga allnokkrir enn mögu-
leika og ekki loku fyrir það skotið
að þátttaka Íslands verði meiri en
líkur eru á nú.“
Ómetanlegt starf
Ólafur er þeirrar skoðunar að
þrátt fyrir allt sé íþróttastarf og sá
fjöldi afreksmanna sem hér er til
marks um óþrjótandi dug og elju
þúsunda áhugamanna og sjálf-
boðaliða um land allt og er stoltur
af því. „Mér finnst í raun ótrúlegt
hversu langt hreyfingin er komin
miðað við naumt skammtað fjár-
magn um áraraðir og að yfirgnæf-
andi meirihluti starfa innan ÍSÍ er
unninn í sjálfboðastarfi af fólki í
frítíma sínum. Það er sannarlega
eitthvað sem við öll getum verið
hreykin af.“
Ferðastyrkur
Ólafur segir bjarta tíma fram-
undan í íþróttahreyfingunni al-
mennt. Skiptir þar miklu að út-
hlutað verði úr sérstökum
ferðasjóði í fyrsta skipti en ferða-
kostnaður hefur verið dragbítur
margra íþróttafélaga, sérstaklega
þeirra úti á landi. Skráður ferða-
kostnaður íþróttafélaga innanlands
hefur verið gróflega metinn um
einn milljarður króna árlega en
fyrsta úthlutun nemur 30 milljón-
um króna. „Sem auðvitað er dropi
í hafið en engu að síður góð byrjun
og upphæðin hækkar á næstu ár-
um í 90 milljónir. Þessar upphæðir
skipta máli og þessi ís hefur verið
brotinn. Þarna er búið að sam-
þykkja þau rök okkar að þarna sé
eitthvað sem samfélagið á að taka
þátt í með þessum hætti. Eftir ein-
hvern tíma sýnum við svo fram á
hversu vel þessir peningar hafa nýst
og þá getum við reynt að teygja
okkur eftir meiru. Það er aðeins
með því að hreyfingin geti sýnt
fram á hversu vel allt fé er nýtt og
vel farið með fjármuni sem við get-
um ætlast til að fá meira fé. Við
verðum að sýna og sanna að við
eigum slíkt skilið.“
Fjölskyldan útundan
Ekki er hægt að skilja við forset-
ann, leikmanninn, lögmanninn og
kylfinginn án þess að spyrja hvort
hann þurfi ekki fleiri klukkustund-
ir í sólarhringinn fyrir önnum kaf-
inn mann. „Nei, þetta hefst allt og
ég hef ekki lent í teljandi vandræð-
um með að komast yfir hlutina.
Þetta er skemmtilegt og það er eðli-
lega mikilvægt en vissulega kemur
fjarvera mín niður á fjölskyldu
minni annað slagið. En með góðri
hjálp og góðri skipulagningu þá
hefst þetta allt saman og vel það. Ég
stunda golf á sumrin og spila
körfubolta reglulega einu sinni í
viku og þetta gengur allt saman
upp.“
a
Það er talsvert
áhyggjuefni að
fækkun virðist verða
raunin í Ólympíuhópnum
okkar í Kína og vegna
kvótaskiptingar hefur
slíkt einnig áhrif á næstu
Ólympíuleikum þar á eftir.
Ólympíuleikarnir í Kína
framundan Að líkindum taka
þar þátt færri Íslendingar en
verið hefur. Það er áhyggjuefni.
24stundir LAUGARDAGUR 1. MARS 2008 55
FERMINGARTILBOÐ
Jakkaföt, skyrta og bindi
kr. 16.980
FERMINGAR-
JAKKAFÖTIN
ERU KOMIN