24 stundir - 01.03.2008, Qupperneq 58
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@24stundir.is
Hin limafagra Trish Stratus, sem
er sjöfaldur World Wrestling En-
tertainment meistari í fjöl-
bragðaglímu, er á leiðinni hingað
til lands til að etja kappi við glímu-
drottningu Íslands og handhafa
Freyjubeltisins, Svönu Hrönn Jó-
hannsdóttur.
Með Trish kemur kanadískt
sjónvarpsteymi til að skrásetja við-
burðinn, en Trish er á ferðalagi um
heiminn til að læra og keppa í
ýmsum afbrigðum glímunnar.
Góð landkynning
„Hingað hafa komið ein til
tvær sjónvarpsstöðvar á ári til
að kynna sér íslensku
glímuna. Trish þessi
er gríðarlega þekkt
þarna vestra og
þetta er því fínt
framtak til að
kynna glímuna á
erlendri grundu,“
segir Lárus Kjart-
ansson hjá Glímusambandi Ís-
lands. Hann viðurkennir þó að ís-
lenska glíman eigi ekki margt
sameiginlegt með fjölbragðaglím-
uni sem Trish stundar. „Þetta
gengur að mestu leyti út á
skemmtanagildið þarna hjá þeim í
Bandaríkjunum. En það verður
ekki tekið af Trish að hún er í
gríðarlega góðu formi. Ég held
þó að Svana muni hafa hana,
enda snýst íslenska glíman
meira um tækni og jafnvægi
heldur en krafta.“
Samkvæmt Svönu
glímudrottningu mun
hún ekki vanmeta
andstæðing sinn.
„Mér líst bara vel
á þetta, gaman að
fá nýja og fram-
andi andstæðinga.
Hún virðist frekar nett, en margur
er knár þótt hann sé smár. Auðvit-
að stefni ég á sigur, því þjóð-
arstoltið er jú að veði, en annars er
þetta bara frábært fyrir þessa íþrótt
að fá þessa athygli,“ sagði Svana.
Íþróttakona eða fyrirsæta?
Trish er margtugginn fréttamat-
ur í Bandaríkjunum og Kanada,
þar sem hún hefur verið kosin
Gella ársins þrisvar sinnum, (Babe
of the year) og Díva áratugarins,
(Diva of the Decade). Auk þess að
„keppa“ í fjölbragðaglímu hefur
hún margoft setið fyrir og unnið
við sjónvarp, til dæmis raunveru-
leikaþáttinn Armed & famous, sem
lagður var af eftir fjóra þætti. Ein-
vígi þeirra Trish og Svönu fer fram
miðvikudaginn 5. mars klukkan
20.00 í íþróttahúsi Ármanns.
Þekktasta fjölbragðaglímukona heims heimsækir Ísland
Glímugella gegn
Glímudrottningu
Trish Stratus, sjöfaldur
bandarískur fjölbragða-
glímumeistari, er á leið-
inni til landsins að etja
kappi við glímudrottn-
ingu Íslands, Svönu
Hrönn Jóhannsdóttur.
MYNDATEXTI: Svana Hrönn Jó-
Hasargella Trish Stratus er í
hörkuformi, en eitt þekktasta
fjölbragðaglímubragðið
hennar heitir Stratusfaction.
Sverð okkar sómi og
skjöldur Svana Hrönn lætur
ljóskuna ekki vaða yfir sig.
58 LAUGARDAGUR 1. MARS 2008 24stundir
Konami hefur tilkynnt að hinn
væntanlegi stórleikur Metal Gear
Solid 4: Guns of the Patriots verði
gefinn út 12. júní í N-Ameríku og
Japan. Konami hefur fyrr sagt að
leikurinn ætti að koma út á sama
tíma um heim allan og því verður
að teljast líklegt að leikurinn
komi til Evrópu um svipað leyti.
vij
Snake mætir á
svæðið 12. júní
Söngkonan Britney Spears fékk
að hitta syni sína, Sean Preston
og Jayden James, í fyrradag eftir
að hafa komist að samkomulagi
við Kevin Federline um nýja
heimsóknartíma. Mun fundur
mæðginanna hafa gengið vonum
framar og segja kunnugir að hún
veiti strákunum mikla ást. „Hún
faðmar þá og kyssir í bak og fyr-
ir,“ sagði vinkona Britney í gær.
hþ
Britney hittir
synina á ný
Það má vel vera að Toshiba hafi
viðurkennt ósigur HD-DVD-
staðalsins í háskerpustaðla-
stríðinu en það þýðir þó ekki að
allir hafi yfirgefið HD-DVD-
staðalinn. Toshiba og Dream-
works-kvikmyndaverið eiga enn
eftir að semja um endalok þess
samnings sem Dreamworks gerði
við Toshiba um að gefa myndir
sínar einvörðungu út á HD-DVD
og þau samningslit munu kosta
bæði fyrirtækin væna fúlgu. vij
Háskerpustríðið ekki alveg búið
Kvikmyndaframleiðslufyrirtækið
MKR hefur höfðað mál á hendur
leikjaframleiðandanum Capcom
fyrir að hafa brotið gegn höf-
undaréttarlögum. Kæran snýst
um tölvuleikinn Dead Rising sem
Capcom gaf út árið 2006 á
Xbox360-leikjatölvuna.
Samkvæmt kæru MKR er Dead
Rising-leikurinn óhugnanlega
líkur Dawn of the Dead, kvik-
mynd fyrirtækisins sem kom á
markaðinn árið 1978. Bæði Dawn
of the Dead og Dead Rising gerast
í verslunarmiðstöð þar sem
mannkynið berst með kjafti,
klóm og alls konar vopnum gegn
her blóðþyrstra uppvakninga. vij
Uppvakninga-
málshöfðun
Írski söngvarinn Johnny Logan
er væntanlegur til landsins ásamt 5
manna hljómsveit sinni og spilar á
Broadway föstudagskvöldið 23.
maí. „Við byrjuðum að vinna í því
að fá hann hingað fyrir um ári,“
segir tónleikahaldarinn Daníel hjá
umboðsskrifstofunni performer.is.
„Hann er umsetinn á þessum tíma
árs því að hann er náttúrlega Euro-
vision-kóngurinn. Það var erfitt að
ná honum hingað daginn fyrir úr-
slitakvöldið úti í Serbíu, en við
náðum að sannfæra hann um að
honum væri hvergi betur borgið
en á Íslandi. Hann er hrifinn af
landinu og sló því til.“
Í söngvakeppninni hefur Logan
flutt lögin „What’s Another Year“
árið 1980 og „Hold Me Now“ árið
1987 sem hann samdi og svo sigr-
aði lagið „Why Me?“ eftir hann í
flutningi Lindu Martin árið 1992.
Þessi lög tekur hann öll á Broad-
way en einnig er hann með á pró-
gramminu ýmis önnur lög. „Þetta
verður bara ball,“ segir Daníel.
Miðasala hefst 12. mars á midi.is
og í verslunum Skífunnar og BT.
heida@24stundir.is
Johnny Logan á leið til Íslands
Johnny Logan Verður til dæmis með lög með U2 og Elvis á prógramminu sínu og
ýmsir íslenskir Eurovision-söngvarar skjóta upp kollinum.
Aðdáendur hryllingssagna og
söngleikja geta senn sameinað
ástríður sínar því að hryllings-
sagnahöfundurinn Stephen King
hefur nú gert handrit að hryll-
ingssöngleik sem verður frum-
sýndur í Atlanta á næsta ári. Ef
sýningar í Atlanta ganga vel mun
söngleikurinn færa sig um set og
fara á Broadway.
Söngleikurinn hefur fengið nafn-
ið Ghost Brothers of Darkland
County og segir frá dauða tveggja
bræðra og ungrar stúlku og þeirri
goðsögn sem sprettur af þeim
harmleik.
King hefur svo fengið tónlistar-
manninn John Mellencamp til að
sjá um tónlistarhliðina í þessum
væntanlega söngleik. vij
Stephen King
með söngleik
24LÍFIÐ
24@24stundir.is a
Auðvitað stefni ég á sigur, því
þjóðarstoltið er jú að veði, en
annars er þetta bara frábært fyrir
þessa íþrótt að fá þessa athygli.