24 stundir - 11.03.2008, Blaðsíða 1

24 stundir - 11.03.2008, Blaðsíða 1
24stundirþriðjudagur11. mars 200849. tölublað 4. árgangur Petrína Ásgeirsdóttir, framkvæmda- stjóri Barnaheilla, verður með mál- þing í Snælandsskóla undir yfirskrift- inni Bætum framtíð barna í stríðs- hrjáðum löndum með áherslu á menntun. Stríðsbörn í skóla MENNTUN»35 Pétur Diðriksson, bóndi að Helgavatni í Borgarfirði, segir að vorverkin hefjist senn en mjög hefur færst í vöxt að bændur samnýti stórar og dýrar vinnuvélar. Það auki hagkvæmni í rekstri. Samnýta vinnuvélar VINNUVÉLAR»28 27% munur á kransaköku NEYTENDAVAKTIN »4 Bresku gamanþættirnir ’Allo ’Allo verða nú í fyrsta sinn teknir til sýninga í þýsku sjón- varpi. Talsmaður BBC segir þættina ekki hafa verið sýnda í Þýskalandi áður vegna um- fjöllunarefnisins. Sögusviðið er Frakkland á tímum seinna stríðs og er gert grín að leyniþjónustu þýskra nasista, andspyrnuhreyfingu Frakka og Bretum. Líkt og venja er með erlent sjónvarps- efni í Þýskalandi verða þætt- irnir talsettir á þýsku. aí Þjóðverjar sjá ’Allo ’Allo GENGI GJALMIÐLA SALA % USD 68,85 +1,39  GBP 138,79 +1,50  DKK 14,19 +1,47  JPY 0,67 +2,37  EUR 105,87 +1,51  GENGISVÍSITALA 137,60 +1,52  ÚRVALSVÍSITALA 4.836,91 -1,20  »14 1 -1 -1 1 -2 VEÐRIÐ Í DAG »2 Eftir Þóru Kristínu Þórsdóttur thorakristin@24stundir.is „Þetta hefur ekki virkað. Menn eru kannski net- lausir dögum saman, ef eitthvað bilar,“ segir Jens Pétur Jensen, sveitarstjóri í Húnavatns- hreppi, um þráðlausa háhraðanettenginguna í sveitarfélaginu. Hann segir tenginguna hafa bil- að ítrekað auk þess sem sambandið sé fremur stopult. Geta lítið gert í stöðunni Jens segir erfitt að rifta samningnum við Emax sem sér um nettenginguna. „Ég hef fengið þær upplýsingar frá Póst- og fjarskiptastofnun að það sé ekki nóg að rifta samningnum því Emax þurfi að samþykkja og gefa svæðið eftir. Raunar sé ég ekki neinn hag í því þar sem þá stæði valið á milli þess að vera með stopult int- ernet eða vera alveg netlaus,“ segir hann. Fjarskiptasjóður hefur auglýst eftir tilboðum í uppbyggingu háhraðatenginga um landið en það felur í sér „stuðning vegna viðbótarkostn- aðar við uppbyggingu á háhraðanettengingum á skilgreindum stöðum, sem eru lögheimili með heilsársbúsetu og fyrirtæki með starfsemi allt ár- ið þar sem háhraðanettengingar eru hvorki í boði né fyrirhugaðar á markaðslegum forsend- um,“ skv. heimasíðu sjóðsins. Þar sem nú er háhraðatenging í Húnavatns- hreppi segir Jens að sveitarfélagið teljist ekki til þeirra staða sem stuðningurinn á við. Því neyð- ist hreppurinn til þess að halda áfram að vera með nettengingu hjá Emax. „Við höfum þó haldið eftir helmingi greiðslnanna vegna þess hve ósáttir við erum með þjónustuna,“ segir Jens. Óvissa um framhaldið Þegar Húnavatnshreppur varð til var samið um að stækka dreifisvæðið svo að allir íbúar nýja hreppsins næðu netsambandi. Gengið hef- ur erfiðlega með kerfið frá upphafi og því fékk sveitarfélagið óháðan aðila til að meta það. „Skv. skýrslunni uppfylla sendarnir ekki gerðar kröfur og miklu var ábótavant við uppsetninguna, miðað við þann samning sem við gerðum,“ seg- ir Jens. Emax var í eigu Hive þar til það var selt í sl. viku. Jens segir það skapa mikla óvissu um þróun þjónustunnar. Daníel Gunnarsson, annar nýrra eigenda Emax, segir markmið fyrirtæk- isins að bjóða upp á stöðuga tengingu og fyr- irtækið innleiði fljótt nýja og betri tækni. ÞEKKIRÐU TIL? Hringdu í síma 510 3700 eða sendu póst á frettir@24stundir.is Sambandslaus sveit  Tíðar bilanir og stopul nettenging í Húnavatnshreppi  Fjarskiptasjóður veitir ekki stuðning til uppbyggingar háhraðatengingar þar sem samningur er til fyrir slíkri tengingu ➤ Sér um háhraðanettengingar um alltland. ➤ Var selt til Hive á seinasta ári sem seldi þaðfrá sér á dögunum til tveggja gamalla starfmanna Emax. EMAX Sambíumaðurinn Amos Simutowe berst fyrir því að verða fyrsti stórmeistari í skák sunnan Sahara. „Þetta er dá- lítið sterkt mót fyrir mig og verður erfitt fyrir mig að ná titlinum í þessu móti, en það er samt í áttina. Ég vonast til að geta ferðast aðeins meira um landið áður en ég fer heim.“ Kínverjinn Wang Hao hafði forystu á Reykjavíkurskákmótinu fyrir næstsíðustu umferð mótsins í gær en í öðru til þriðja sæti voru Hannes Hlífar Stefánsson og Wang Yue frá Kína. Simutowe stefnir hátt í skákinni „Það er ævintýri að vera hér. Mjög fallegt en mér er svolítið kalt.“ 24stundir/Ómar Sjónvarpsstöðin N4 á Akureyri hef- ur útsendingar á landsvísu á morg- un. „Það er mikil eftirspurn eftir okkar fréttum á höfuðborgarsvæð- inu,“ segir Þorvaldur Jóns- son framkvæmdastjóri. Norðlenskt sjón- varp á landsvísu »2 Ekkert kemur í veg fyrir að kjöt af skepnum sem hafa fengið vaxt- arhormón sé flutt til landsins. Eng- in ákvæði eru í reglum um merk- ingar og eru dæmi um að hormónasprautað kjöt hafi verið selt hér. Hormónakjöt á markaði hér »4 Mikið úrval notaðra bíla á góðum kjörum!

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.