24 stundir - 11.03.2008, Page 3
Komdu til Skýrr!
Skýrr vill ráða sölustjóra í upp-
lýsingaöryggi og tæknimenn fyrir
símalausnir og netumhverfi. Skýrr
sækist eftir kraftmiklu og jákvæðu
fólki með ríka þjónustulund, sem
langar til að takast á við ögrandi
viðfangsefni í lifandi atvinnugrein.
Í boði eru fjölbreytt og skemmtileg
verkefni hjá fyrirtæki í örum vexti.
Tæknimaður – Símalausnir
Internet og gagnaflutningar
Starfslýsing
Þróun og rekstur á VoIP-símalausnum Skýrr
Ráðgjöf til viðskiptavina
Uppsetning á búnaði hjá viðskiptavinum
Hæfniskröfur
Umfangsmikil þekking og reynsla á TCP/IP
samskiptamáta
Vilji til að læra og tileinka sér nýja tækni og
hugsun
Æskileg menntun er til dæmis kerfisfræði,
tölvunarfræði, rafeindavirkjun
Tæknimaður – Netumhverfi
Internet og gagnaflutningar
Starfslýsing
Hönnun, rekstur og viðhald á netumhverfi og
staðarneti Skýrr
Samskipti og ráðgjöf til núverandi og nýrra
viðskiptavina
Aðstoð við sölustjóra
Hæfniskröfur
Víðtæk þekking og reynsla í umsjón og rekstri
staðar- og víðneta
Menntun í tölvunarfræði, tæknifræði eða verk-
fræði er kostur en ekki skilyrði
Æskilegt að hafa lokið Cisco-prófum, svo sem
CCNA, CCNP, CCIE
Sölustjóri – Upplýsingaöryggi
Öryggislausnir
Sölustjóri í upplýsingaöryggi tilheyrir hópi sér-
fræðinga í öryggislausnum hjá Skýrr. Um er að
ræða mjög spennandi starf sem viðkomandi hefur
mikil áhrif á að móta og hrinda góðum hugmynd-
um í framkvæmd.
Starfssvið
Sala og markaðssetning á:
lausnum tengdum rafrænum skilríkjum og
rafrænum undirskriftum
öryggisúttektum hjá fyrirtækjum
snjallkortum og snjallkortalausnum
Greiðslugátt Skýrr, með áherslu á erlenda
markaði
Mikilvægt er að viðkomandi:
geti undirbúið og haldið kynningar
geti sinnt ráðgjöf til fyrirtækja
geti starfað sjálfstætt
hafi frumkvæði sem nýtist við vöruþróun
komi vel fyrir og sé góður sölumaður
Hæfniskröfur
Háskólapróf sem nýtist í starfi
Víðtæk reynsla í upplýsingatækni æskileg
Þekking á rafrænum skilríkjum kostur
Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um þessi þrjú störf veitir Ingibjörg Óðinsdóttir, forstöðumaður mannauðssviðs
Skýrr, í síma 569 5100 eða ingibjorg.odinsdottir@skyrr.is. Umsóknarfrestur er til mánudagsins
17. mars. Vinsamlegast sækið um og sendið ferilskrá á vefsvæði Skýrr (skyrr.is). Öllum umsóknum
svarað. Fullum trúnaði heitið.
Allt á
einum stað
569 5100
skyrr.is
Skýrr í hnotskurn
Skýrr býður samþættar heildarlausnir fyrir atvinnulífið undir kjörorðunum „Allt á einum stað“. Starfsemi Skýrr er tvíþætt og
skiptist í hugbúnað og rekstrarþjónustu. Skýrr er samstarfsaðili Microsoft, Oracle, Business Objects og VeriSign.
Mikil starfsemi er í hugbúnaðarþróun og ráðgjöf. Viðskiptavinir Skýrr eru yfir 2.300.
Mannauður og liðsandi
Starfsfólk Skýrr er liðlega 200 talsins. Starfsfólkið er helsta auðlind Skýrr. Fyrirtækið er fjölskylduvænt og tekur ríkt tillit til
persónulegra aðstæðna fólks. Styrkir eru í boði fyrir líkamsrækt, sjúkraþjálfun og fleira. Starfsfólk Skýrr er samhentur hópur með
jákvætt viðmót og þar ríkir góður liðsandi. Félagslíf innan fyrirtækisins er afar líflegt og kraftmikið. Óvæntar uppákomur til að
brjóta upp hversdaginn eru tíðar.
Gott að borða
Skýrr státar af framsæknu mötuneyti, sem leggur áherslu á hollan og fjölbreyttan matseðil. Sódavatn og kaffivélar með
úrvalsbaunum frá Te & kaffi er hvarvetna við höndina.