24 stundir - 11.03.2008, Side 6

24 stundir - 11.03.2008, Side 6
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@24stundir.is Reisa á 700 fermetra skíðaskála, sem áætlað er að muni kosta um 205 milljónir króna, í Bláfjöllum og er stefnt að verklokum í desem- ber á þessu ári, að sögn Bolla Thor- oddsens, formanns íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkurborgar, sem standa mun straum af kostn- aðinum. Flutt af Hengilssvæðinu „Bygging þessa skála tengist brottflutningi skíðadeilda Víkings og ÍR af Hengilssvæðinu. Við keyptum mannvirkin þar, tvo fasta skála, tvo dagskála og skíðalyftur, fyrir um 40 milljónir króna. Síðan seldum við Orkuveitu Reykjavíkur föstu skálana fyrir 25 milljónir króna. Kostnaður vegna skíðastarf- seminnar á Hengilssvæðinu nam um 15 milljónum króna á ári þannig að sú upphæð sparast til framtíðar,“ segir Bolli. Nýi skálinn, sem verður á milli Breiðabliksskálans og Ármanns- skálans, er eiginlega tveir sam- byggðir skálar fyrir Víking og ÍR, að því er Bolli greinir frá. „Það munu 25 manns geta gist í risi hvors skála. Á fyrstu hæð verður eldhús, veitingasalur og aðstaða fyrir gesti og gangandi eins og í Bláfjallaskálanum.“ Snjóframleiðsla fyrir lok ársins Að sögn Bolla verða reistar fleiri snjógirðingar á Bláfjallasvæðinu samtímis því sem stefnt er að því að koma upp snjóframleiðslukerfi. „Það eru vonir okkar að snjófram- leiðsla hefjist í lok þessa árs.“ Benedikt Geirsson, formaður stjórnar skíðasvæða höfuðborgar- svæðisins, segir sveitarfélögin sjö sem reka skíðasvæðin í Bláfjöllum og Skálafelli eiga í viðræðum við Orkuveitu Reykjavíkur um vatns- öflun. „Orkuveitan myndi sjá um vatnsöflun og flutninginn á vatn- inu í brekkurnar og leggja þær lagnir sem þarf vegna flutningsins. Orkuveitan myndi jafnframt út- vega stútana. Sveitarfélögin myndu svo kaupa vatn og rafmagn af Orkuveitunni,“ segir Benedikt. Bora þarf eftir vatni Eiríkur Hjálmarsson, blaða- fulltrúi Orkuveitu Reykjavíkur, segir að bora þurfi eftir vatni í Blá- fjöllum þar sem þar sé ekkert yf- irborðsvatn. „Væntanlega er ekki þörf á því á Skálafellssvæðinu,“ segir Eiríkur. Formaður íþrótta- og tóm- stundaráðs segir endanlegan kostn- að vegna snjóframleiðslu ekki liggja fyrir. 205 milljóna skíðaskáli  Reykjavíkurborg reisir í ár 700 fermetra skála í Bláfjöllum  Von- ast er til að snjóframleiðsla hefjist á skíðasvæðunum í lok ársins ➤ Skíðadeildir íþróttafélagannasinna barna- og unglinga- starfi á skíðasvæðunum. ➤ Á skíðasvæðunum eru starf-ræktar skíðaleigur þar sem gestir svæðanna geta leigt sér allan búnað. SKÍÐASVÆÐIN 24 stundir/Árni Sæberg Á skíðum Með snjógirðingum og snjóframleiðslu fjölgar skíða- dögum í Bláfjöllum og Skálafelli. Norðmenn sem mögulega verða staðnir að því að eiga eignir í Liechtenstein sem þeir hafa ekki gert grein fyrir þurfa að greiða skatt 10 ár aftur í tímann, 60 pró- senta sekt og vexti og vaxtavexti, að því er haft er eftir Svein Krist- ensen skattstjóra á fréttavefnum e24.no. Þar segir jafnframt að þannig sé fyrirkomulagið komi menn ekki og játi syndir sínar sjálfir. Bryndís Kristjánsdóttir skatt- rannsóknarstjóri segir að ef um skattsvik sé að ræða sé það refsi- vert. ,,Hér þurfa menn að greiða skatt 6 ár aftur í tímann frá upp- hafi rannsóknar að viðbættu 15 eða 25 prósenta álagi og til við- bótar kæmi refsing sem yrði fésekt eða fangelsi ef brot teldist alvar- legt. En það þarf þó alltaf að meta hvert tilvik fyrir sig.“ Ríkisskattstjóri, Skúli Eggert Þórðarson, hefur óskað eftir upp- lýsingum frá Þýskalandi sem mögulega varða Íslendinga í gögn- unum sem þýsk yfirvöld keyptu af fyrrverandi bankastarfsmanni í Liechtenstein. „Ég veit ekki til þess að þær hafi borist,“ segir Bryndís. Skattrannsóknarstjóri um mögulegar eignir í Liechtenstein Refsivert séu það skattsvik 24 stundir/Golli Í Liechtenstein Fjöldi útlendinga á þar leynilega bankareikninga. 6 ÞRIÐJUDAGUR 11. MARS 2008 24stundir Tökum við umsóknum núna Kynntu þér námið á www.hr.is Námið er hægt að stunda sem fullt starf eða á minni hraða með annarri vinnu. Fyrri umsóknarfrestur er til 15. apríl, sá seinni 30. maí. Þeir sem sækja um fyrir fyrri frestinn eiga meiri möguleika. Meistaranám við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík er fjölbreytt og krefjandi nám sem getur opnað þér dyr að margvíslegum starfs- tækifærum. Viðskiptadeild HR hefur á að skipa sérlega öflugum hópi kennara frá 23 löndum, sem allir búa yfir mikilli fræðilegri þekkingu og hafa fjölþætta reynslu úr atvinnulífinu. Að auki er Háskólinn í Reykjavík með samstarfssamn- inga við yfir 100 háskóla um allan heim sem gefur nemendum möguleika á því að víkka sjóndeildarhringinn með því að stunda hluta námsins erlendis. MEISTARANÁM Í VIÐSKIPTADEILD MSc í alþjóðaviðskiptum Námið byggir bæði á fræðilegum grunni og hagnýtri þekkingu á alþjóðaviðskiptum og fer kennsla fram á ensku. Uppbygging námsins miðar við reynslu margra bestu háskóla heims. Allir nemendur dvelja erlendis eina önn þar sem þeir starfa fyrir íslensk fyrirtæki eða stunda nám við samstarfsháskóla HR. Flestir nemendur læra annað tungumál en ensku og eru fjögur tungumál í boði: Kínverska, spænska, franska og þýska. Einnig er í boði að sérhæfa sig í alþjóðlegum markaðsfræðum. MSc í fjármálum Námið er sérsniðið að þörfum fjármálafyrirtækja og framsækinna alþjóðlegra fyrirtækja. Hægt er að velja á milli tveggja lína. Investment Management (MSIM): Ætlað þeim sem hyggjast starfa sem sérfræðingar á fjármálamarkaði, einkum við eignastýringu, markaðsviðskipti og fjárfestingar. Corporate Finance: Hentar þeim sem hafa áhuga á að starfa sem fjármálastjórar eða stjórnendur fyrirtækja. MSc í reikningshaldi og endurskoðun Námið er ætlað þeim sem vilja verða löggiltir endurskoðendur, eða hafa áhuga á að starfa sem sérfræðingar eða stjórnendur á sviði reikningshalds í fyrirtækjum. Útskrifaðir nemendur eru eftirsóttir til ýmissa stjórnunarstarfa í atvinnulífinu, einkum hjá stórfyrirtækjum í alþjóðlegri starfsemi. H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 0 8 -0 4 5 4

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.