24 stundir - 11.03.2008, Síða 8
Eftir Atla Ísleifsson
atlii@24stundir.is
Japönsk stjórnvöld hafa hafnað
ásökunum um að hafa greitt fyrir að
fá sendifulltrúa smáríkja til að sækja
óformlegan fund Alþjóðahvalveiði-
ráðsins í London í síðustu viku.
Forsætisráðherra Salómonseyja
fullyrti um nýliðna helgi að hann
hefði fengið boð í þá veru frá Jap-
ansstjórn. Japanar hafa lengi setið
undir ásökunum um atkvæðakaup,
eftir að fjöldi smáríkja með litla sem
enga hvalveiðihefð, gekk í Alþjóða-
hvalveiðiráðið.
Umræðan ekki ný af nálinni
Stefán Ásmundsson, formaður
íslensku sendinefndarinnar, segir
umræðu um meint atkvæðakaup
Japana ekki nýja af nálinni. „Það er
ekkert nýtt að menn haldi því fram
að það hljóti að vera einhver ann-
arleg sjónarmið á bak við það að
þróunarríki styðji sjálfbærar hval-
veiðar. Staðreyndin er sú að sérstak-
lega fyrir fátæk þróunarríki er það
prinsippmál og skiptir mjög miklu
máli að ríki hafi heimild til að nýta
sínar auðlindir með sjálfbærum
hætti.“
Prinsippvettvangur
Japanar hafa lengi barist fyrir því
að banni við hvalveiðum í atvinnu-
skyni verði aflétt, en þeir veiða nú
um þúsund hvali á ári í vísinda-
skyni. Stefán segir Alþjóðahval-
veiðiráðið að vissu leyti hafa orðið
að ákveðnum prinsippvettvangi þar
sem menn hafi fengist við þá spurn-
ingu hvort aðrir eigi að geta hindrað
menn í sjálfbærri nýtingu auðlinda.
„Það er ekki undarlegt að fátæk ríki
láti sig þessi mál varða og taki harða
afstöðu. Ef litið er til þátttöku innan
Alþjóðahvalveiðiráðsins þá er mun
algengara að þróunarríki styðji
sjálfbærar hvalveiðar, þó að það sé
að sjálfsögðu ekki algilt.“
HVAÐ VANTAR UPP Á?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á 24@24stundir.is
Japanar hafna
ásökunum
Japanar sakaðir um atkvæðakaup innan Alþjóðahvalveiðiráðsins
Stefán Ásmundsson segir umræðuna ekki nýja af nálinni
➤ Árið 1986 bannaði ráðið allarhvalveiðar í atvinnuskyni og
hafa harðar deilur staðið um
bannið allar götur síðan.
➤ Tæplega áttatíu ríki eiga núfulltrúa innan ráðsins.
➤ Sátt náðist um bættar sam-skiptaleiðir á fundi ráðsins í
síðustu viku.
HVALVEIÐIRÁÐIÐ
NordicPhotos/AFP
Hvalveiðar Japanar hafna því
að hafa boðist til að borga fyrir
að sendifulltrúar smáríkja
sæktu fundinn.
8 ÞRIÐJUDAGUR 11. MARS 2008 24stundir
José Luis Rodriguez Zapatero,
forsætisráðherra Spánar, kallaði
eftir einingu þjóðarinnar eftir að
Sósíalistaflokkur hans bar sigur úr
býtum í þingkosningunum á
sunnudaginn. „Spænska þjóðin
hefur talað skýrt og hyggst hefja
nýtt tímabil án sprennu og átaka.“
Sósíalistar hlutu 169 þingsæti,
fimm fleiri en í síðustu kosningum,
en tókst þó ekki að ná hreinum
meirihluta þingsæta. Hægriflokkur
Mariano Rajoy bætti einnig við sig
fylgi og hlaut 153 þingsæti.
Sósíalistar segja úrslit kosning-
anna sýna skýrt að Spánverjar
styðji þær umbætur sem stjórn Za-
pateros hefur unnið að frá 2003. aí
Sósíalistar vinna sigur á Spáni
Kallar eftir einingu
Mikið óveður gekk yfir vestur- og
suðurströnd Bretlands aðfara-
nótt gærdagsins og í gær. Vind-
hviður mældust margar rúmlega
38 metrar á sekúndu og voru
flóðviðvaranir gefnar út á tugum
staða í suðvesturhluta Englands
og í Wales.
Rúmlega 10 þúsund heimili á
suðvesturströnd Englands og í
Wales voru án rafmagns í gær eft-
ir að raflínur slitnuðu. Mikil
röskun varð á lestar- og flug-
samgöngum af völdum óveðurs-
ins og rifnuðu mörg tré upp með
rótum. Þá þurftu dráttarbátar að
koma olíuflutningaskipi undan
ströndum eyjunnar Wight til
bjargar og draga til hafnar í
Southampton, eftir að það tók að
reka á haf út. aí
Ofsaveður á
Bretlandseyjum
Norræna flugfélagið SAS og flug-
vélaframleiðandinn Bombardier
hafa náð samkomulagi um að
Bomb-
ardier
greiði SAS
jafnvirði 11
milljarða
króna
vegna
nokkurra óhappa við lendingu
Dash 8 Q400-véla í eigu SAS á
síðasta ári.
SAS hefur þó jafnframt skuld-
bundið sig til kaupa 27 nýjar vél-
ar frá Bombardier. aí
Óhöpp Dash 8-flugvéla
SAS fær greidd-
ar skaðabætur
Réttarhöld hófust yfir Kanada-
manninum Christopher Neil í
Taílandi í gær. Neil er 32 ára
kennari og grunaður um að hafa
misnotað rúmlega 200 drengi
kynferðislega í nokkrum löndum.
Hann var handtekinn í Taílandi í
október síðastliðnum eftir að al-
þjóðleg handtökuskipun var gef-
in út á hendur honum. aí
Mál meints barnaníðings
Réttarhöld hafin
Starfsmenntanám
· Blómaskreytingar
· Búfræði
· Garðyrkjuframleiðsla
· Skógur og umhverfi
· Skrúðgarðyrkjubraut
www.lbhi.is
Háskóli
lífs og lands
Umsóknarfrestur um skólavist
er til 4. júní
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
41
32
7
02
/0
8
North Face Aleutian
svefnpoki
Þægilegur að -2C°
Mesta kuldaþol -19C°
fermingargjöf
Flott hugmynd að
Fermingartilboð
9.990 kr.
Verð áður 12.990 kr.
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500
Vallý s.510 3728
Böddi s.510 3726
ÐI
Ð
AL
B
U
N
NI
VTA atvinna@24stundir.is
PANTIÐ
GOTT
PLÁSS
Í TÍMA