24 stundir - 11.03.2008, Page 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 11. MARS 2008 24stundir
Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur
dista@24stundir.is
Pétur Kristjánsson, vinnufélagi
Guðmundar, slasaðist alvarlega
þegar hann féll 15 metra af vinnu-
palli í nýbyggingu við Boðaþing í
Kópavogi þann 26. febrúar síðast-
liðinn. Aðeins Pétur og Guð-
mundur voru á pallinum þegar
festingar gáfu sig og pallurinn féll
undan þeim. „Atburðarásin var
svo hröð að ég á erfitt með að segja
frá því sem gerðist, ég man bara
brot af þessu,“ segir Guðmundur
og útskýrir að áfallið að sjá félaga
sinn slasast svo alvarlega hafi verið
töluvert. „Pallarnir hrundu undan
fótum okkar og það eina sem ég
hugsaði um í fallinu var að reyna
að grípa í eitthvað. Mér tókst að
grípa í keðjur sem lágu með hús-
inu, hífði mig upp á þeim og náði
að koma mér inn um glugga á
fimmtu hæð. Þá vissi ég að Pétur lá
á jörðinni og það eina sem ég
hugsaði var að komast til hans.“
Mikið slasaður eftir hátt fall
Pétur Kristjánsson féll um 15
metra niður á jörðina. „Við vorum
staddir efst á pöllunum að vinna
við 6. hæð og fallið var því tölu-
vert,“ segir Guðmundur. „Það var
erfitt fyrir mig að horfa upp á fé-
laga minn svo mikið slasaðan.
Hann er svolítið brotinn en hann
hefur það gott miðað við hrygg-
brot, lærbeins- og rifbeinsbrot. Ég
var afskaplega feginn að sjá að
hann var á lífi,“ bætir hann við.
Mættur aftur til vinnu
„Ég hef verið í þessum bransa í
um 50 ár,“ segir Hans B. Guð-
mundsson, byggingarstjóri hjá
Húsvirki, sem hafði umsjón með
framkvæmdum. „Ég hef nú ekki
séð það verra en svipað. Ég var að
vinna með félaga mínum og hann
féll, reyndar úr minni hæð en Pét-
ur, en það eru um 20 ár síðan. Mér
finnst ekki hægt að koma í veg fyrir
vinnuslys að fullu. Fyrir þessu slysi
urðu vanir menn og það er svo
margt sem getur gerst sem ekki er
hægt að gera ráð fyrir. Augna-
bliksgáleysi veldur oft slysum, við
því er ekkert að gera né hægt koma
í veg fyrir það, hvort sem menn eru
vanir eða óvanir. Þannig er það
bara. Ég er feginn að Pétur er ekki
meira slasaður og að hann er á lífi
og að Guðmundur bjargaðist svo
giftusamlega.“
24stundir/Golli
Bjargaðist giftusamlega er vinnupallar við Boðaþing hrundu
Náði að grípa í
keðju í miðju falli
„Ég hugsaði bara um það
eitt að komast niður til
félaga míns,“ segir Guð-
mundur Guðmundsson
sem ásamt vinnufélaga
sínum lenti í vinnuslysi
við Boðaþing en náði fyr-
ir mikla náð að bjarga sér
í fallinu.
Boðaþing 6-8 Fall Péturs
var um 15 metrar af palli við
efstu hæð hússins.
Það verða alltaf slys segir Hans B.
Guðmundsson byggingarstjóri, hér á
mynd með Guðmundi Guðmundssyni
(t.v.) við slysstaðinn að Boðaþingi.
Kristinn Tómasson, yfirlæknir
Vinnueftirlitsins, segir tilkynn-
ingum um vinnuslys hafa fjölgað
síðustu ár. „Markaðurinn hefur
stækkað og slys við mann-
virkjagerð hafa aukist. Þau slys
voru um 10% árið 2001 en nú eru
þau um þriðjungur allra slysa.
Umfangið er einfaldlega meira og
því er kannski eðlilegt að sjá meira
af slysum við mannvirkjagerð.“
Kristinn nefnir að auki að held-
ur fleiri banaslys hafi orðið síðustu
ár. „Hvert banaslys er óþolandi í
sjálfu sér.“
Kristinn segir að árlega berist
um 1200-1800 tilkynningar til
Vinnueftirlitsins sem svarar til 1%
vinnuaflsins í dag. „Síðustu ár hef-
ur tilkynningum um slys fjölgað úr
um 1200 til 1800 á ári.“
dista@24stundir.is
Mikil fjölgun vinnuslysa síðustu ár
Fleiri slys í þenslunni
Slys við mann-
virkjagerð Um-
fangið er meira og
því eðlilegt að
slysatíðni aukist
24stundir/Brynjar Gauti
Áberandi í gögnum um skrán-
ingar um vinnuslys sem tilkynnt
eru til Vinnueftirlitsins er fjöldi
slysa á vinnusvæðinu við Kára-
hnjúka. Í þessum slysum hafa
fimm látið lífið við byggingu virkj-
unarinnar og tengd verk. „Enginn
þeirra starfaði hjá Impregilo, nefn-
ir Kristinn Tómasson, yfirlæknir
Vinnueftirlitsins.
„Á þessu risavaxna fram-
kvæmdasvæði eru kringumstæður
erfiðar og margbreytilegar, þetta er
ekki einsleit framkvæmd og að
henni koma margir ólíkir hópar að
starfa við ýmis verk,“ bætir hann
við.
Kristinn segir vinnuslysin hafa
verið af ýmsum toga. „Þarna hefur
orðið grjóthrun, grafa féll á hliðina
og sprengjuslys, en hafa verður í
huga að aðstæður við Kárahnjúka
eru erfiðari en við höfum áður
þekkt við framkvæmdir hér á
landi.“
Kristinn segir að vega og meta
verði hvernig koma megi í veg fyrir
slys. „Eðli slysa er að þau eru
óvæntir atburðir, allir hafa það
sem markmið að engin slys verði á
fólki en samt er það nú þannig að
ekki er hægt að vita hvenær
jörðin undir manni opnast.“
dista@24stundir.is
Tíð vinnuslys við Kárahnjúkavirkjun
Fimm hafa látið lífið
Verkamenn í Kárahnjúkum
Aðstæður við virkjunina eru
flóknar og margbreytilegar.
VIÐ FJÁRMÖGNUM
ÞAÐ SEM UPP Á VANTAR!
Ertu að spá í atvinnutæki?
Nýttu þér upplýsingar og reiknivélar á
www.gf.is eða hafðu samband við ráðgjafa
okkar í síma 440 4400.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
7
2
3
5