24 stundir - 11.03.2008, Qupperneq 23
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 11. MARS 2008 23
J. M. Harrington, prófessor í
Birmingham, hefur m.a. ritað
þekkta bók um heilsuvernd starfs-
manna og í henni má lesa um nið-
urstöður helstu rannsókna hans á
áhrifum vaktavinnu á heilsu og
líðan. Vaktavinna hefur áhrif á eðl-
islæga dægursveiflu hjá mann-
inum. Manninum er eðlilegt eins
og öðrum spendýrum að sofna á
kvöldin, vakna á morgnana, borða
á nokkurra klukkustunda fresti og
menn eru misjafnlega upplagðir til
vinnu eftir því hvaða tími sólar-
hrings er. Fæstum lætur vel að
vaka á nóttunni.
Fjölskyldulífið bíður skaða
Vaktavinna hefur áhrif á fjöl-
skyldulíf og þátttöku í félagslífi. Sá
sem vinnur vaktavinnu missir af
mikilvægum samverustundum
fjölskyldunnar sem oft eru um
helgar eða á kvöldin þegar flestir
eiga frí.
Vaktavinna hefur áhrif á heils-
una á ýmsan hátt. Sumt vakta-
vinnufólk á erfitt með að fá nægan
svefn og nær ekki djúpum svefni.
Ýmsir sem vinna vaktavinnu finna
fyrir þreytu, kvíða og depurð.
Vaktavinna á misjafnlega við
fólk. Talið er að einn af hverjum
fimm hætti í vaktavinnu af því að
hann þolir hana ekki, 10% fólks
nýtur hennar, aðrir þola hana mis-
munandi vel.
Starfsmenn skipuleggi vaktir
Til þess að fólk geti unnið vakta-
vinnu án þess að bíða tjón á heilsu
sinni skiptir máli að hanna gott
vinnuumhverfi og að vaktataflan
sé þannig gerð að vaktirnar hafi
sem minnst áhrif á andlega, lík-
amlega og félagslega velferð vakta-
vinnufólksins. Reynslan sýnir að
best er að starfsmennirnir sjálfir
komi að skipulagningu vakta. Best
er þó að á eftir næturvöktum komi
dagvakt og á eftir dagvakt fylgi
kvöldvakt þannig að vaktirnar fylgi
gangi sólarhringsins, þannig veldur
dægursveiflan minna áreiti.
Fyrirtæki sem krefja starfsmenn
sína um næturvinnu reyna oft að
gera vel við starfsmenn sína í mat
því að gott mataræði skiptir veru-
legu máli upp á vellíðan, auka við
heilsuvernd og bjóða upp á fríð-
indi til frístundaiðkunar.
dista@24stundir.is
Hver eru áhrif vaktavinnu á heilsu og líðan?
Fjölskyldulífið bíður skaða
Álag að vinna næturvinnu
Leigubílstjórar eru meðal þeirra
sem vinna næturvinnu.
Fjárfestingarfélagið Investor hef-
ur selt hlut sinn í sænska vörubíla-
framleiðandum Scania til þýska
bílaframleiðandans Volkswagen.
Kaupverð var rétt um 17,6 millj-
ónir sænskra króna, sem sam-
svarar um 190 milljónum íslenskra
króna, eða 200 sænskar krónur á
hlut. Eftir kaupin á hlut Investor
ræður Volkswagen nú yfir 65%
hlutabréfa í Scania. Talsmenn
Scania líta á kaupin sem eðlilega
þróun.
Samruni
Þýski vörubílaframleiðandinn
MAN reyndi óvinveitta yfirtöku á
Scania snemma á síðasta ári en það
bar ekki árangur.Volkswagen-
verksmiðjan áformar nú hins vegar
að sameina Scania og MAN, en
Volkswagen á 30% hlut í því fyr-
irtæki. Ef af þeim samruna verður
mun samsteypan fara fram úr bæði
Daimler og Volvo og verða stærsti
vörubílaframleiðandi Evrópu.
Scania framleiðir rútur og yf-
irbyggingar sem eru þekktar fyrir
framúrskarandi rekstrarhag-
kvæmni. Vörubílarnir frá Scania
eru einnig lofaðir fyrir lága bil-
anatíðni.
Volkswagen á meirihluta í Scania
Keypti hlut Investor
Ákveðið hefur verið að Dakar-
rallíið verði haldið í Suður-
Ameríku á næsta ári. Halda átti
rallíið í Afríku nú í ár en því var
aflýst af öryggisástæðum. Rallíið
er meðal annars ætlað vörubílum
og mótorhjólum og mun verða
haldið í Argentínu og Chile dag-
ana 3. til 18. janúar.
París-Dakar
Dakar-rallíið var upphaflega
þekkt sem París-Dakar-rallí og
hefur að mestu eða öllu leyti ver-
ið haldið í Afríku í meira en 30
ára sögu þess. Því var aflýst í
fyrsta skipti í síðasta mánuði af
öryggisástæðum eftir að fjórir
franskir ferðamenn voru myrtir í
Máritaníu. Eftir það sögðu móts-
haldarar frá því að beinar hót-
anir hefðu borist frá hryðju-
verkasamtökum um að reynt yrði
að gera árásir á keppendur. Rallí-
ið er 9275 kílómetra langt og
hefur verið ekið árlega milli Evr-
ópu og Afríku. Stór hluti þess
hefur farið fram í Máritaníu og
því mikið áfall fyrir landið að
keppninni skuli hafa verið aflýst í
ár.
Dakar-rallíið næst í Suður-Ameríku
Vörubílar og mótorhjól
Þriggja daga ráðstefnu um end-
urnýtanlegar orkulindir er nú ný-
lokið í Washington en hana sóttu
nærri 7.000 manns. Voru þátttak-
endur frá 119 löndum og eiga það
allir sameiginlegt að vilja draga úr
olíuþörf sinni, koma á meiri sjálf-
bærri þróun og draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda. Strengdu
þátttakendur þess heit að vinna að
því að ná slíkum markmiðum.
Volvo áberandi
Einn hápunkta sýningarinnar
var sýning frá Volvo þar sem sýnd-
ar voru prufutýpur af sjö bílum, en
þeir gengu fyrir mismunandi,
óhefðbundnu eldsneyti. Segja tals-
menn fyrirtækisins að slíka bíla
væri hægt að framleiða strax í dag
en frekari stöðlun á umhverf-
isstöðlum er þó nauðsynleg fyrst.
Endurnýting
orkulinda
Notaðar vélar
Hafið samband við
sölumenn okkar
í síma 575-2400,
694-3800
og 694-3900
270 MosfellsbærVöluteigur 4,
www.ishlutir.comSími: 575 2400
í síma 6943700 og
6943900
Komatsu PC600LC-7 árg 2004 vinnust. 5200, Skófla,
smurkerfi. Verð 140.000 €
Tæki til sölu
Stórlækkað verð
Komatsu PC450LC-7 árg 2004 vinnust. 4781 Hraðtengi,
skófla, smurkerfi. Verð 120.000 €
Komatsu PW150-6 árg 2004 vinnust. 1600, Hraðtengi,
skófla, tiltskófla. Verð 55.000 €
Komatsu PW160-7 árg. 2006 vinnust. 3700, Hraðtengi,
skófla, tiltskófla. Verð 80.000 €