24 stundir - 11.03.2008, Síða 24

24 stundir - 11.03.2008, Síða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 11. MARS 2008 24stundir Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu svanhvit@24stundir.is Undanfarið hefur verið mikil um- ræða í samfélaginu um mögulega upptöku evru og kosti og galla krónunnar. Það vakti því athygli í síðustu viku þegar fyrirtækið Ís- hlutir auglýsti vinnuvélar til sölu og verðið var uppgefið í evrum. Hjálmar Helgason, fram- kvæmdastjóri Íshluta, segir að það sé mun einfaldara fyrir við- skiptavini og fyrirtækið sjálft að gefa upp verð í evrum þar sem miklar sveiflur séu á gengi krón- unnar. „Nýjar vélar eru allar seld- ar miðað við ákveðið gengi í evr- um. Þær vélar sem við tökum upp í sem hlutfall af nývirði markast af evrunni en eins og efnahagslífið er um þessar mundir er eiginlega ekki hægt að gefa upp verð í ís- lenskum krónum,“ segir Hjálmar og tekur dæmi til að útskýra mál sitt betur: „Til dæmis auglýsa Ís- hlutir vinnuvél á tíu milljónir ís- lenskra króna, miðað við að gengi evrunnar sé 100. Þegar við- skiptavinur vill kaupa vélina gæti gengi evrunnar verið orðið 105 en þá hefði vélin átt að kosta 10,5 milljónir í stað 10 milljóna. Það er því miklu auðveldara fyrir alla að auglýsa vélarnar í evrum.“ Minni gengisáhætta Þrátt fyrir að vélarnar séu aug- lýstar í evrum borga flestir fyrir þær í íslenskum krónum en Hjálmar segir þó að það sé ekkert mál að greiða í evrum, ef vilji er fyrir hendi. „Fljótlega munum við fara að selja í evrum og sendum þá fjármögnunarfyrirtækjunum reikninga í erlendri mynt. Þetta gerum við til að minnka geng- isáhættuna fyrir Íshluti og við- skiptavininn. Við sinnum flestum okkar viðskiptum í evrum, það er það stór hluti af okkar tekjum í beinum tengslum við erlenda gjaldmiðla því við borgum í evr- um fyrir megnið af vélunum sem við kaupum.“ Hjálmar segir að fyrirtækið hafi samt sem áður ekki alltaf stundað viðskipti sín Með evrum. „Allt verð er miðað við erlendan gjaldmiðil og af því að sveiflurnar eru svo miklar núna er einfaldara að gefa upp verð í evrum. Við erum ekki eina fyrirtækið sem hefur gefið upp verð í evrum enda er þetta eina leið okkar til að koma með eitt- hvert mótvægi við sveiflur geng- isins. Ef viðskiptavinur kemur í dag og vill fá tilboð í nýja vél, þá fær hann það í evrum ásamt virð- isaukaskatti.“ Einfaldari fjármálastjórnun Aðspurður hvaða áhrif það hefði á rekstur fyrirtækisins ef skipt yrði um gjaldmiðil á Íslandi og evran tekin upp segir Hjálmar að öll fjármálastjórnun yrði mun einfaldari. „Við myndum þá losna við allar þessar sveiflur því að í starfsemi okkar fyrirtækis er út- flutningur á notuðum vélum mjög mikilvægur. Við seljum vél- ar okkar helst í gegnum Evrópu og fáum greitt í evrum. Það yrði til mikillar einföldunar að vera á sama myntsvæði og flestir af birgjum okkar,“ segir Hjálmar og bætir við að Íshlutir bjóði upp á gott verð, en það komi þó evrunni ekki við. „Það hvernig fyrirtækið er rekið gerir okkur kleift að bjóða gott verð á vinnuvélum. Okkar innkaupsverð er mjög áþekkt innkaupsverði samkeppn- isaðilanna en aftur á móti rekum við fyrirtækið með töluvert minni kostnaði en aðrir. Þar af leiðandi getum við leyft okkur lægra verð.“ Flest viðskipti Íshluta fara fram í evrum Einfaldara að gefa upp verð í evrum ➤ Íshlutir voru stofnaðir árið1998 en árið 2006 flutti fyr- irtækið í 1.500 m2 húsnæði í Mosfellsbæ. ➤ Íshlutir hafa síðan þá vaxið úrfjögurra manna fyrirtæki í 30 manna fyrirtæki sem er leið- andi í innflutningi á vinnu- vélum. ➤ Íshlutir hafa yfir að ráða 4fullbúnum viðgerðarbílum sem eru stöðugt á ferðinni um landið. ÍSHLUTIRÍ síðustu viku vakti at- hygli að Íshlutir auglýstu verð á vinnuvélum í evr- um. Að sögn sölumanns hjá Íshlutum er þetta gert til einföldunar og mót- vægis við miklar sveiflur krónunnar. Íshlutir Auglýsa verð vinnu- véla í evrum til mótvægis við sveiflur gengisins. Hitachi Frá Bauma 2007 SKEIFAN 3E-F · SÍMI 581-2333 · FAX 568-0215 · WWW.RAFVER.IS Liprar og léttar körfulyftur með mikla lyftigetu i l i l Beltadrif eykur notkunarmöguleika Hafið samand við sölumann! www.kistufell.com Vantar þig varahluti í ameríska bíla ? VÉLAVERKSTÆÐIÐ VARAHLUTAVERSLUN kistufell@centrum.is Tangarhöfða 13 Sími 577 1313 Við sérpöntum fyrir þig

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.