24 stundir - 11.03.2008, Blaðsíða 25
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 11. MARS 2008 25
Husqvarna Construction Products
STEINSAGIR, KJARNABORVÉLAR, GOLF OG VEGSAGIR.
Akralind 4 • 201 Kópavogur • Sími 544 4656 • Fax 544 4657 • www.mgh.is
Husqvarna Construction Products
STEINSAGIR, kJARNABORVÉLAR, GOLF OG VEGSAGIR
K750
DM 230
FS 400K2500
K3600
HP 40
bensín glussadæla
Steinsagablöð og kjarnaborar
Eftir Hildu H. Cortez
hilda@24stundir.is
Sífellt fleiri konur sækja í störf
námuverkamanna í gull-, silfur-
og koparnámum Suður-Ameríku.
Flestar koma þær frá afskekktum
stöðum í Andes-fjöllunum en í
þessum störfum hafa þær mögu-
leika á því að afla mun meiri tekna
en þær geta í þorpunum þaðan
sem þær koma.
Þreföld laun
„Karlmennirnir héldu að við
myndum ekki ráða við þetta,“ segir
Patricia Guajardo sem ekur risatrukk
í gullnámu í Argentínu. „Veturnir
hérna geta verið afskaplega harðir, en
ég kann að meta þá. Yfirleitt vinn ég
á tveggja vikna vöktum og fæ svo frí í
tvær vikur en þeim tíma eyði ég með
syni mínum.“ Ásamt Gujardo starfa
10 konur í námunni af 95 manna
starfsliði. Meðallaun kvennanna eru
tæpar 70.000 krónur á mánuði en
það er þrefalt meira en þær eiga
möguleika á að fá við landbún-
aðarstörf í þorpunum.
Fara betur með tækin
Þrátt fyrir erfiðar vinnuað-
stæður þykja konurnar búa yfir
ákveðinni lagni umfram mennina
við að stýra vélunum, en það spar-
ar fyrirtækjunum viðhaldskostnað.
„Við höfum tekið eftir því að
konurnar hugsa betur um vinnu-
tækin en mennirnir,“ segir Cristi-
an Silva sem þjálfar ökumenn Ca-
terpillar-trukka. „Því færari sem
stjórnendur stórra tækja eru því
minni kostnaður fyrir fyrirtækin.“
Nýjum Caterpillar-ökutækjum er
meðal annars stjórnað með stýri-
pinna sem konurnar eiga auðveld-
ara með að stjórna. „Það er
kannski vegna þess að konur hafa
gjarnan mýkra handbragð en karl-
ar og eru nákvæmari,“ segir Silva.
Aukin tækifæri
Fram til ársins 1993 var bannað
að ráða konur til starfa í námum í
Chile en eftir að lögin voru afnum-
in fór konum í námustörfum að
fjölga og árið 2005 voru konur
rúm 4% námuverkamanna. Að
sögn Lynne Patterson hjá Pro Muj-
er, samtökum sem aðstoða konur í
Suður-Ameríku við atvinnuleit,
koma námustörfin efnalitlum
konum til góða sem annars myndu
búa við enn bágari kjör. „Stærstur
hluti kvenna á svæðinu er hús-
mæður þannig að þessi störf færa
þeim ný tækifæri að vissu leyti.“
Námuverkamenn Konur eiga mögu-
leika á hærri launum við námustörf.
Vinsælir námuverkamenn í Suður-Ameríku
Eiga möguleika á
þreföldum launum
Konum í námustörfum fer
fjölgandi í Suður-Ameríku
en þær þykja lagnari við
stjórn ýmissa tækja. Það
dregur úr viðhaldskostn-
aði fyrirtækjanna.