24 stundir - 18.04.2008, Side 10
10 FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 2008 24stundir
Allir gömlu góðu réttirnir
og frábærar nýjungar
Komdu til okkar,
taktu með eða borðaðu
á staðnum
Alltaf góð
ur!
Kjúklingastaðurinn
Suðurveri
Nú er
orðin
n stór
Eftir Andrés Inga Jónsson
andresingi@24stundir.is
Ríkisstjórnir þróunarríkja bregðast
hver af annarri við minnkandi
matvælabirgðum og verðhækkun-
um. Sum lönd hafa farið þá leið að
setja höft á útflutning matvæla, en í
öðrum löndum er leitað nýrra leiða
til að tryggja íbúum næringu. Sí-
fellt fleiri líta kartöfluna vonaraug-
um.
Léttir þrýstingi af hrísgrjónum
Moeen U. Ahmed, yfirmaður
herafla Bangladess, hvatti þjóð sína
til þess að auka kartöfluneyslu.
Með því væri hægt að minnka eft-
irspurn eftir hrísgrjónum og koma
í veg fyrir frekari verðhækkanir, án
þess að fólk fengi minni næringu.
„Kartaflan getur verið annar val-
kostur, en þá sem viðbót. Við ætt-
um öll að breyta neyslumynstri
okkar og auka hlut kartaflna í mat-
aræði okkar,“ sagði Ahmed við
upphaf kartöfluviku í höfuðborg-
inni Dakka. Sagði hann undir-
menn sína mundu verða þar
fremsta í flokki og hefur fyrirskip-
að kokkum hersins að auka kart-
öfluskammt hvers hermanns á
næstunni.
Tryggir fæðuöryggi
Ahmed benti ennfremur á að
aukin kartöfluneysla væri nauð-
synleg til að bjarga metuppskeru
undan skemmdum. „Við verðum
að neyta 5,8 millljóna tonna af
kartöflum í ár, annars skemmist
gífurlegt magn, þar sem fullnægj-
andi geymsluaðstöðu skortir.“
Chowdhury Sajjadul Karim,
landbúnaðarráðunautur bangla-
dessku ríkisstjórnarinnar, segir að
aukin kartöflurækt skipti miklu
máli til að tryggja fæðuöryggi
þjóðarinnar, þar sem hægt sé að
metta fleiri munna með kart-
öflum sem ræktaðar eru á land-
spildum en grjónum af jafnstóru
svæði.
„Við munum hvetja bændur til
þess að rækta meira af kartöflum á
næsta ári,“ segir Karim. „Erfiðast
er að breyta neysluvenjum á
landsbyggðinni, þar sem fólk er
hvað háðast grjónunum.“ Mun
ríkisstjórnin veita fé til lands-
byggðarinnar til að auka fram-
leiðslu.
Hrísgrjón hækka enn í verði
Heimsmarkaðsverð á hrís-
grjónum hefur haldið áfram að
hækka í vikunni. Þetta hefur leitt
til þess að þær þjóðir sem mest
þurfa á grjónum og hveiti að
halda hafa freistað þess að setja
útflutningshöft, til að tryggja
birgðir heima fyrir.
Peter Mandelson, sem fer með
heimsviðskipti í framkvæmda-
stjórn Evrópusambandsins, varar
við slíkri einangrunarstefnu. Á
fundi með Evrópuþingmönnum
sagðist hann gera sér grein fyrir
þeim pólitíska þrýstingi sem rík-
isstjórnir fyndu fyrir, en útflutn-
ingshöft væru ólíkleg til að hjálpa
til.
„Með því að einblína á hug-
myndina um fæðuöryggi er hætt
við að þessi stefna geri út af við
innanlandsframleiðslu og loki fyr-
ir birgðir annarra. Þá gætum við
endað í vítahring verndarstefnu
og minnkandi framleiðslu,“ sagði
Mandelson.
Kartöflur
gegn hungri
Bangladess vonast til að kartöflur geti tryggt fæðuöryggi Evr-
ópusambandið varar við verndarstefnu og útflutningshöftum
© GRAPHIC NEWS
Kartaflan brýtur ný lönd undir sig
Eftir því sem verð á hveiti og hrísgrjónum hækkar snúa sífellt fleiri sér
að kartöflunni sem næringarríkrar plöntu sem hægt væri að nýta til að
seðja hungur fjölda fólks í heiminum
Ofurplanta: Ræktun hófst í
Perú fyrir 8.000 árum. Kartöflur
er hægt að rækta um allan
heim, þær þurfa litla
vökvun og gefa
2-4 sinnum
meiri fæðu
af sér á
hvern
hektara
en hveiti
eða
grjón.
Næring: Kartöflur eru góð uppspretta
sykra, innihalda aðeins 5% þeirrar fitu
sem finnst í hveiti, fjórðung þeirra
kalóría sem eru í brauði og meira
prótín og nærri því tvöfalt
meira kalsíum en maís
þegar þær eru soðnar.
Heimildir: SÞ, Matvæla- og landbúnaðarstofnun SÞ Mynd: Getty Images
Kartafla, hrá og með hýði
Næringargildi í 100g
17,47gSykrur
þar af sterkja
Va
tn:
79,34 grömm
15,44g
Prótín
Steinefni
Fita
2,02g
1,08g
0,09g
Steinefni (mg)
Kalíum
Fosfór
Magnesíum
Kalk
421
57
23
12
19,7
12,1
1,9
77 kkal
Vítamín (mg)
C-vítamín
B-vítamín
K-vítamín
Orka
Kartöfluræktun: Hefur aukist úr tæplega 30 milljónum tonna í byrjun
7. áratugarins í röskar 165 milljónir tonna í þróunarríkjum árið 2007.
Iðnríki
Þróunar-
ríki
(m
il
lj
ó
n
ir
to
n
n
a
)
50
1991 1993 1995 1997 1999 2001 2003 2005 2007
100
150
200
Heims-
framleiðsla
árið 2007:
320 milljón
tonn
Mesta framleiðslan (milljónir tonna, 2007)
1.
2.
3.
4.
5.
Kína
Rússland
Indland
Úkraína
Bandaríkin
72
36
26
19
18
6.
7.
8.
9.
10.
Þýskaland
Pólland
Hvíta-Rússland
Holland
Frakkland
12
11
8
7
6
Mesta neyslan (milljónir tonna, 2005)
1.
2.
3.
4.
5.
Kína
Rússland
Indland
Bandaríkin
Bretland
53
20
18
16
7
6.
7.
8.
9.
10.
Úkraína
Þýskaland
Pólland
Frakkland
Bangladess
7
6
5
4
4
➤ Árið 2008 er ár kartöflunnarsamkvæmt yfirlýsingu Sam-
einuðu þjóðanna.
➤ Með því á að beina sjónum aðþví að kartöflur eru mik-
ilvægar í mataræði stórs
hluta mannkyns og því hlut-
verki sem þær gegna í að
tryggja fæðuöryggi.
➤ Ennfremur vinnur ræktunkartaflna gegn fátækt í þró-
unarríkjum.
➤ Dræm hrísgrjónauppskeraBangladess er meðal annars
rakin til fellibyljar.
ÁR KARTÖFLUNNAR
Stjórnvöld í Kína ráðgera að vísa
öllum erlendum stúdentum úr
landi áður en Ólympíuleikarnir
verða settir í ágúst. Ennfremur
verða þröngar skorður settar þeim
sem sækja um vegabréfaáritanir.
Þetta hefur fréttastofan Deutsche
Presse-Agentur eftir heimildar-
mönnum sínum.
Aðgerðirnar munu koma við
tugþúsundir erlendra ríkisborgara
sem stunda nám við kínverska há-
skóla, sem þyrftu að halda sig fjarri
í júlí og ágúst. Jafnframt hefur
sumarnámskeiðum háskólanna
verið aflýst í ár.
„Þótt þú ætlir að halda námi
áfram í september þarftu að vera í
burtu báða mánuðina,“ segir
heimildarkona dpa við Háskólann í
Peking. „Það sama er uppi á ten-
ingnum í öðrum háskólum. Fyr-
irmælin komu frá æðstu stöðum.“
Kína hefur þegar sett skorður
við útgáfu vegabréfsáritana fyrir
ferðamenn og þá sem koma til
landsins í viðskiptaerindum. Hafa
fyrirtæki í Kína kvartað yfir því að
þetta geri þeim erfitt að ráða nýtt
fólk í stöður fyrr en að Ólympíu-
leikunum loknum.
andresingi@24stundir.is
Hreinsað til fyrir Ólympíuleika
Stúdentum vísað
frá Kína í sumar
Stúdentalaus? Ólympíu-
leikvangurinn í Peking.
„Íran er öflugasta og sjálfstæð-
asta ríki í heimi,“ sagði Mahmoud
Ahmadinejad Íransforseti í tilefni
árviss herdags sem haldinn var í
gær. Sagði hann að herafli landsins
myndi verjast af fullum krafti
hverskyns árás gegn Íran.
„Herinn, byltingarvörðurinn og
varalið myndu bregðast við með
afli og skipulagningu og bregðast
hart við minnstu árás gegn land-
inu,“ sagði forsetinn.
„Ég er stoltur að segja frá því að
máttur írönsku þjóðarinnar er í
dag svo mikill að ekkert stórveldi
getur hætt á að stofna öryggi eða
hagsmunum Írans í hættu.“
andresingi@24stundir.is
Íransforseti ánægður með þjóð sína
Öflugast í heimi