24 stundir - 18.04.2008, Page 17

24 stundir - 18.04.2008, Page 17
24stundir FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 2008 17. Í Innan skamms hljóta þeir sem berja hausnum við steininn varð- andi inngöngu Íslands í Evrópu- sambandið að láta af því háttalagi. Við eigum þar heima og tímabært er að við förum að taka þátt í ákvörðunum þar á bæ í stað þess að taka aðeins við þeim frá sam- bandinu til framkvæmdar hérlend- is. Þrátt fyrir núverandi fjármála- ólgu koma Íslendingar uppreistir að samningaviðræðum um aðild. Við höfum flekklausan feril í EES- og Schengen-samstarfinu og fjár- hagur ríkisins er með besta móti. Óhætt er að segja að Íslendingar standi vel undir því að slást í för með þeim Norðurlandaþjóðum, sem þegar eru komnar í Evrópu- sambandið. Það hefur lengi verið talið að hafa verði þjóðaratkvæði um það, hvort sækja eigi um aðild. Um þetta kunna að vera skiptar skoð- anir, sumir kunna að telja, að nægilegt sé að hafa þjóðaratkvæði um endanlega útkomu í samninga- viðræðunum og þeim verði ekki lokið nema samningamenn og stjórnvöld telji samningana hag- stæða og tæka til að bera undir þjóðaratkvæðagreiðslu. Aðrir telja að stjórnvöld og samningamenn verði að þekkja afstöðu þjóðarinn- ar tvímælalaust áður en farið er í aðildarviðræður. En tvímælalaust verða Íslend- ingar að breyta stjórnarskránni áð- ur en hægt er að ganga í Evrópu- sambandið sökum þeirrar fullveldisyfirfærslu sem inngöng- unni er samfara. Slík stjórnarskrár- breyting verður ekki gerð nema hún hafi verið samþykkt tvívegis af Alþingi með þingkosningum á milli atkvæðagreiðslna. Í framhaldi af aðild okkar að Evrópusambandinu liggur svo beint við að fá aðild að mynt- bandalagi Evrópu og taka upp evru að fullnægðum þeim skilyrðum sem þar gilda. Ef uppfylla á þau skilyrði sem aðild að myntbandalaginu eru samfara verða Íslendingar að gæta þess að hagur ríkissjóðs haldist traustur. Hagur hans hefur á síð- ustu árum mótast af miklum tekjum af innflutningsgjöldum sem hinn mikli innflutningur landsmanna hefur skapað. Þannig eiga Íslendingar nú u.þ.b. eina fólksbifreið á hvern ökufæran íbúa í landinu sem er Evrópumet. En á sama tíma og tekjurnar hafa streymt í kassann hefur gengið erf- iðlega að halda útgjaldahlið ríkis- sjóðs í samræmi við ákvarðanir fjárveitingavaldsins. Á vandamálum ríkissjóðs og fjárlagagerðar þarf að taka af rögg- semi um leið og við hefjum það verk sem markar þjóðinni braut til náinnar samvinnu við aðrar Evr- ópuþjóðir, samvinnu sem haft get- ur úrslitaáhrif á afkomu okkar og lífsskilyrði á komandi árum. Höfundar sitja í stjórn Evrópusamtakanna Hugleiðingar um Evrópumál UMRÆÐAN aAndrés Pétursson Björn Friðfinnsson Ef uppfylla á þau skilyrði sem aðild að myntbanda- laginu eru samfara verða Íslendingar að gæta þess að hagur rík- issjóðs haldist traustur. Ríkissjóður „Þannig eiga Íslendingar nú u.þ.b. eina fólksbifreið á hvern ökufæran íbúa í landinu sem er Evrópumet.“ Yfirlýsing frá stjórn Faghúsa ehf. Í 24 stundum birtist hinn 16. apríl 2008 grein frá stjórn Stafnáss ehf., þar sem lýst er viðhorfum þess fé- lags til ágreiningsefna sem skapast hafa vegna frammistöðu félagsins við byggingu húss að Urðarhvarfi 6. Í greininni eru verulegar rang- færslur sem óhjákvæmilegt er að gera alvarlegar athugasemdir við. Stafnás ehf. tók að sér sem verktaki að byggja hús fyrir Faghús ehf. í framhaldi af útboði. Mjög veru- legar vanefndir urðu af hálfu Stafnáss ehf. við þetta verk, jafn- framt því sem stórfelldir gallar hafa komið fram á verkinu. Seint á síðasta ári, mörgum mánuðum eft- ir umsaminn skilatíma, neyddust Faghús ehf. til að rifta samningnum og neyta tiltækra úrræða til að takmarka tjón sitt. Þegar riftunaryfirlýsing var send voru liðnir tveir mánuðir frá því að Faghús ehf. höfðu átt að afhenda húsið til leigu- taka, og fjölmargir verkþættir voru enn óunnir. Staðhæfingar Stafnáss ehf. um að Faghús ehf. haldi hundruðum millj- óna króna af tilefnislausu eru þvættingur. Faghús ehf. hafa gengið að tryggingum sem beinlínis voru settar til að tryggja hagsmuni verk- kaupans vegna vanefnda verktakans. Af hálfu Faghúsa ehf. er unnið að undirbúningi málssóknar gegn Stafnási ehf. vegna þess tjóns sem fé- lagið hefur orðið fyrir og umræddar tryggingar hrökkva ekki til að bæta. Sá undirbúningur er tímafrekur vegna gagnaöflunar og atriða sem dómkvaddir matsmenn þurfa að meta. Faghús ehf. telja að stjórn- endum Stafnáss ehf. væri nær að bíða með hástemmdar lýsingar um „glæsilegan vitnisburð um fagmennsku og vönduð vinnubrögð“ þar til slíkar matsgerðir liggja fyrir. Fullyrðingum þeirra um að Faghús ehf. beri ábyrgð á því ef Stafnás ehf. verður gjaldþrota er vísað til föðurhús- anna – Faghús ehf. standa í mjög erfiðu verkefni við að bæta úr því sem Stafnás ehf. hafði tekið að sér að gera – og fengið greitt fyrir. Að gefnu tilefni skal tekið fram að Faghús ehf. munu reka mál sitt gegn Stafnási ehf. á réttum vettvangi – fyrir dómstólum – og munu þess vegna ekki standa í skoðanaskiptum við stjórnendur Stafnáss ehf. í fjölmiðlum. BRÉF TIL BLAÐSINS Það er í sjálfu sér nokkuð gaman og til fróðleiks, að í gömlum ís- lenskum ævintýrum er heimspeki, sem notast má við viðfangsefni dagsins í dag. Flestir þekkja til sög- unnar um erfiðleika í búskap kalls og kellingar og hvernig þau reyndu að leysa burðinn hjá kusu sinni. En þrátt fyrir tog þeirra einbeins í tví- bein og tvíbein í kellinguna og kall- inn í kálfinn gekk ekkert. Árangur sem sagt enginn. Ástandinu sem nú er komið upp hér á landi svipar til þessa „hnútsbúskaps“ þeirra. Sá er þó munur á, að núverandi húsbændur lýsa yfir að „við ætlum ekkert að gera“. Ekki reyna að totta í halann á vitleysunni og draga á sextug og drekkja þar. Dáðlaus stjórn, sem hrekur í ólgunni og án markmiðs. Fidel Casto sá það ráð vænlegast á sínum tíma fyrir mörgum áratug- um að nú væri ráð að fresta jól- unum og hefjast handa í sykurupp- skerunni og bjarga bágbornum hag almennings. Þetta var að hluta fóð- ur í margrómað leik- og söngverk bræðranna Jóns Múla og Jónasar eða „Deleríum Búbónis“. Forsætisráðherra er góðviljaður og brosmildur maður. Hann brosti til okkar á ársfundi Seðlabankans. Þá lagði hann til að við frestuðum vorkomunni 1. sumardag og flytt- um hann til haustsins. Ekki bráð- ónýtt að sækja hugmyndir til Castro gamla. Bjartur í Sumarhús- um var svo aðþrengdur um sum- armálin, að í hendi var aðeins ein góð tugga. Seðlabanki Íslands er svo „slyppur“ að loknu mesta góð- æri sögunnar hjá okkur, að „forði“ hans af gjaldeyri er aðeins til 3ja mánaða notkunar. Sennilega rýrari „forði“ en hjá Bjarti, sé allt tekið með við upphaf og sumarlok. Hver skilur svona volæðisbúskap? Hvar er sannleikurinn? Við spyrjum: Hvar er verðfallið? Hver er sölu- tregða afurða? Hvar er álstraum- urinn út úr landinu? Við óskum eftir heiðarlegum skýringum og frásögnum um þetta skyndilega uppnám í efnhagsmálum. Einnig viljum við vita hvernig með skal fara „hjálp“ ríkissjóðs til bankanna, en Geir Haarde hefur opinberlega lýst að hinir góðhjörtuðu í ríkis- stjórninni muni „hjálpa“ þeim bönkum, sem lenda í „hönk“ með skotsilfur sitt. Ekki nefndi hann launakjörin á þessum „kotbæjum- bönkum“. Það er svo margt sem við venjulegir borgarar viljum og þurfum að vita, að ég vildi hefja umræðu um það. Við sem erum 60 ára og eldri höfum nú séð sparifé okkar rýrna um 70 milljarða á um 15 mánuðum gagnvart eftirsóttri evru. Ekki hefur blessuð ríkis- stjórnin áhyggjur af þessu enda öll kosningaloforðin úti í hafsauga síg- andi til botns þar. Sjávarútvegsráð- herrann fagnar góðu gengisfelling- arári. Hvað varðar hann um elligemlinga, rétt orðinn landbún- aðarráðherra? Höfundur er eldri borgari og fyrrverandi alþingismaður Íslenska ævintýrið UMRÆÐAN aJón Ármann Héðinsson Ekki hefur blessuð rík- isstjórnin áhyggjur af þessu enda öll kosninga- loforðin úti í hafsauga sígandi til botns þar.

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.