24 stundir - 18.04.2008, Síða 18

24 stundir - 18.04.2008, Síða 18
Rússíbanareið um hugaróra Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur kolbrun@24stundir.is Ástrós Gunnarsdóttir og Lára Stefánsdóttir setja upp danssýn- inguna Systur í Iðnó sem frum- sýnd verður í byrjun maí. Hrafnhildur Hagalín semur textann sem fluttur er í sýning- unni. Guðni Franzson hefur umsjón með tónlistinni en þar er komið víða við og mikið mun heyrast af þekktum stefjum. Ástrós og Lára, sem eru í hópi þekktustu dansara landsins, hafa þekkst í 25 ár en aldrei unnið saman fyrr en nú. Þær segja dansverkið vera rússíban- areið um hugaróra og veruleika tveggja kvenna. „Þarna er fjallað um losta, unað, trú, von og kærleika. Við fjöllum meðal annars um nunnukærleikann því margar konur ganga í gegn- um það ferli að vilja verða nunnur. Upphaflega ætluðum við að byggja sýninguna ein- göngu á lífi nunna en verkið þróaðist í nokkuð aðra átt,“ segja þær. Leynigestur á hverri sýningu Í verkinu er notast við kvik- mynd sem Ástrós gerði á sínum tíma um það hvernig konur vilja hafa karlmenn og karlmannslimur kemur við sögu í sýningunni. Sér- stakur leynigestur, karlmaður, verður svo á hverri sýningu. „Þetta er ekki krefjandi hlutverk því leynigesturinn gerir lítið ann- að en að mæta og sýna sig. Við höfum hugsað okkur að fá þjóð- þekkta karlmenn til liðs við okkur og þeir sem við höfum talað við hafa tekið vel í hugmyndina. Við gefum þó ekki upp hvaða karl- menn munu mæta því það á að koma áhorfendunm á óvart hverju sinni,“ segja Ástrós og Lára. Fyrst og fremst leikhús- upplifun Þær stöllur segja samvinnuna hafa verið einstaklega skemmti- lega. „Við vorum harðákveðnar í að skemmta okkur þegar við hóf- um að vinna að þessu verkefni, húmor er undirliggjandi í verkinu og vonandi hafa áhorfendur sama húmor og við. Ein af upphaflegu hugmyndunum var að hafa sýn- inguna í eins konar kabarettstíl og þótt áherslur hafi breyst höldum við að hluta til í kabarettstemn- ingu. Áhorfendur sitja við borð og geta fengið sér veitingar, hvort sem það er te eða kampavín. Þetta er fyrst og fremst leikhúsupplifun þar sem dans, spuni og túlkun tvinnast saman. Báðar höfum við unnið mikið með leikstjórum í söngleikjum og leikritum. Sú reynsla skilar sér í þessari sýningu þar sem við leikum, dönsum og sjáum um leikstjórn. Við erum samt ekki án leiðbeinanda því Þórhildur Þorleifsdóttir ætlar að verða okkur innan handar á loka- stigum.“ Lára og Ástrós. „Þarna er fjallað um losta, unað, trú, von og kær- leika,“ segja þær um verkið Systur. Ástrós Gunnarsdóttir og Lára Stefánsdóttir setja upp danssýninguna Systur ➤ Ástrós Gunnarsdóttir hefurunnið sem dansahöfundur og aðstoðarleikstjóri við öll helstu leikhús landsins. Hún hefur auk þess starfað í Boston, New York, Ósló, Turku, París, Barcelona, Tókýó og Colombo sem kennari, dansari og/eða danshöfundur. ➤ Lára Stefánsdóttir hefursamið fjölda dansverka ásamt því að hafa séð um dans-sviðshreyfingar í helstu leikhúsum landsins. Hún hefur hlotið alþjóðleg verðlaun fyrir dansverk sín. LISTAMENNIRNIRDansararnir og danshöf- undarnir Ástrós Gunn- arsdóttir og Lára Stef- ánsdóttir lögðu saman krafta sína og útkoman er danssýningin Systur sem frumsýnd verður 1. maí í Iðnó. 18 FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 2008 24stundir KOLLAOGKÚLTÚRINN kolbrun@24stundir.is a Það skiptir ekki máli hvaðan þú kemur heldur hvert þú ætlar. Ella Fitzgerald Á þessum degi árið 1932 birti tímaritið Hollywood Reporter tilkynningu þess efnis að William Faulkner „rithöfundur frá suðurríkjunum“ hefði verið ráðinn til að skrifa kvikmyndahandrit fyrir MGM-kvik- myndaverið. Á þessum tíma hafði Faulkner skrifað þrjú af meistaraverkum sínum, The Sound and the Fury, As I Lay Dying og Light in August, en skáldsögur hans öfluðu honum ekki nægilegra tekna til að hann gæti séð fyrir fjölskyldu sinni. Frá 1932 til 1955 skrifaði Faulkner nokkur fram- úrskarandi kvikmyndahandrit, þar á meðal að mynd- unum To Have and Have Not og The Big Sleep þar sem Humphrey Bogart og Laureen Bacall fóru með aðalhlutverk. Faulkner hafði andstyggð á Hollywood en vingaðist við fræga leikara, þar á meðal Humphrey Bogart og Clark Gable. Hann fékk Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 1949. Faulkner í Hollywood MENNINGARMOLINN Ritþing um Einar Kárason verður haldið í Menningar- miðstöðinni Gerðubergi laug- ardaginn 19. apríl kl. 13.30- 16.00 Stjórnandi er Halldór Guð- mundsson og spyrlar eru rit- höfundarnir Sjón og Gerður Kristný. Á Ritþinginu verða flutt tón- listaratriði og lesið upp úr verkum Einars. Fram koma Karl Guðmundsson leikari og KK, á eftir leikur Tómas R. Einarsson og hljómsveit fyrir gesti. Ritþing um Einar Laugardaginn 19. apríl kl. 17 verður opnuð sýning á verkum Birgis Andr- éssonar í i8 að Klapp- arstíg 33. Birgir sem var fæddur árið 1955 lést síðast- liðið haust aðeins 52 ára að aldri. Hann var í fremstu röð íslenskra samtímalista- manna og var sérlega af- kastamikill listamaður. Birg- ir stundaði nám við Myndlista- og handíðaskól- ann frá 1973 til 1977. Eftir það hélt hann til Hollands þar sem hann stundaði nám við Jan van Eyck Akademie í Maastricht. Á sýningunni í i8 eru verk sem Birgir hafði nýlokið við eða var að vinna að þegar hann lést. Síðustu verk Birgis AFMÆLI Í DAG Clarence Darrow lögfræðingur, 1857 Rick Moranis leikari, 1954 Sayako Japansprinsessa, 1969

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.