24 stundir - 18.04.2008, Page 31

24 stundir - 18.04.2008, Page 31
Myndlistarmaðurinn Tolli hefur málað 100 „skólabyggingar“ sem verða til sýnis til styrktar UNICEF í Saltfélaginu frá og með deginum í dag og fram til 25. apríl. Um er að ræða lítil pappahús og munu þau rúmlega 60 fyrirtæki sem hafa gerst UNICEF-verndarar fá eitt hús hvert til staðfestingar á stuðningi sínum. Húsin 40 sem eftir standa bíða svo nýrra verndara. Húsin eru táknræn að því leyti að fjárstyrkur UNICEF- verndara rennur meðal annars til uppbyggingar skólahúsnæðis, auk þjálfunar kennara, kaupa á nauð- synlegum skólagögnum og fleira í Vestur-Afríkuríkjunum Síerra Leóne og Gíneu Bissá. Í Vestur-Afríku fer um 50% barna á mis við grundvall- armenntun eins og lestur og skrift og er hvergi í heiminum hærra hlut- fall barna án menntunar. Íslensk fyrirtæki leggja því sitt af mörkum þar sem neyðin er stærst. Fjáröfl- unarverkefninu UNICEF-verndarar var ýtt úr vör á síðasta ári, en það eru lítil og meðalstór fyrirtæki á Ís- landi sem leggja því lið með mán- aðarlegum fjárframlögum. Sýning á húsum Tolla verður formlega opnuð í dag, föstudaginn 18. apríl, klukkan 17. Tolli hefur gefið UNICEF, Barnahjálp Samein- uðu þjóðanna, vinnu sína og efn- iskostnað. UNICEF-verndarar Skólabyggingar Tolla í Saltfélaginu Suðurlandsbraut 50 (bláu húsunum við Fákafen) www.gala.is • Sími 588 9925 Opið 11-18 • 11-16 lau. Flott föt frá Pause Café Str: 34-52 Nýjar vörur Stærðir 40-60 Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-15 24stundir FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 2008 31 Burtfar- arprófstón- leikar Rann- veigar Káradóttur sópr- ansöngkonu verða á morg- un, laug- ardaginn 19. apríl, klukkan 16 í Salnum í Kópavogi. Hún mun syngja órat- oríuaríur úr Messíasi eftir Händ- el, ljóðaflokkinn Frauenliebe und Leben eftir Schumann, sönglög eftir Fauré og aríur eftir Doni- zetti og Gounod. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Rannveig á tónleikum MENNING menning@24stundir.is a Það eru í rauninni ótrúlega margir sem þekkja ekki Djúpið, sem er mikið meistaraverk. Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur hilduredda@24stundir.is Leiklistar- og tónlistarnemendur við Listaháskóla Íslands hafa und- anfarnar vikur sökkt sér í texta og hugarheim Steinars Sigurjónsson- ar skálds og unnið portrettþátt af listamanninum fyrir Útvarpsleik- húsið. Þar raða þau saman minn- ingarbrotum samferðarmanna hans og blanda saman við orð sem hrutu af vörum hans í út- varpsviðtölum. Þá hafa þau einn- ig gert leikverk úr textum hans og hugmyndum og fléttað saman í eina heild. Jón Hallur Stefánsson hafði umsjón með verkefninu, sem var tveggja vikna langt nám- skeið um útvarpsleikhús. „Við fengum frjálsar hendur um hvað við vildum gera en Viðar Eggerts- son, verkefnisstjóri leiklistar í Ríkisútvarpinu, stakk upp á því að við myndum beina athyglinni að Steinari í tilefni af því að 80 ár eru liðin frá fæðingu hans nú í ár. Í kjölfarið valdi ég heilmikinn texta eftir Steinar og lét þau lesa og út frá því völdu þau síðan það sem þau vildu vinna með. Þau tóku líka viðtöl við fólk sem þekkti Steinar með það fyrir aug- um að nýta þau í þessa vinnu. En viðtölin heppnuðust svo vel að ákveðið var að gera úr þeim sér- stakan þátt. Það var ekki fyrir- fram ákveðið, en í ljósi þess að Ríkisútvarpið vantaði heimilda- þátt um Steinar var þetta rökrétt niðurstaða,“ segir hann. Textar úr ýmsum áttum Hvernig gekk að nota ólíka texta eftir Steinar og búa til úr þeim heildstæðan þátt? „Þó svo að textarnir séu úr ýmsum áttum þá notum við brot úr skáldsögunni Djúpið til þess að halda þessu saman og mynda smáramma utan um þetta og ég vona allavega að úr því myndist ákveðið samhengi,“ segir Jón Hallur. „Það eru í rauninni ótrú- lega margir sem þekkja ekki Djúpið, sem er mikið meistara- verk. Sjálfur hafði ég til dæmis ekki lesið verkið áður en ég fékk þetta verkefni þó svo að ég hafi lesið ýmislegt annað eftir Stein- ar.“ Portrettþátturinn um Steinar Sigurjónsson verður á dagskrá Rásar 1 að kvöldi sumardagsins fyrsta, þann 24. apríl næstkom- andi klukkan 22.15. Hópurinn Jón Hallur, lengst til vinstri ásamt leiklistarnemendunum Leiklistarnemar spreyta sig í Ríkisútvarpinu Portrettþáttur af Steinari Nemendur í leiklistar- og tónlistardeild Listahá- skóla Íslands hafa unnið portrettþátt af Steinari Sigurjónssyni fyrir Út- varpsleikhúsið, en 80 ár eru nú liðin frá fæðingu listamannsins. Jón Hallur Stefánsson hafði umsjón með verkefninu en þátt- urinn verður sendur út á sumardaginn fyrsta. ➤ Fæddist þann 9. mars 1928 áHellissandi. ➤ Fyrsta bók hans, Hér erumvið, kom út árið 1955. ➤ Skrifaði fjölda bóka og einnigleikrit og einþáttunga fyrir útvarp. STEINAR 24stundir/Valdís Thor Einar Falur Ingólfsson verður með leiðsögn fyrir gesti í Ljós- myndasafni Reykjavíkur í hádeg- inu í dag. Hann mun fjalla um sýningu sína Staðir - Úr dagbók 1988-2008 sem nú stendur yfir í safninu. Viðfangsefni sýning- arinnar er að finna í dagbók ljós- myndarans sem hann hefur hald- ið frá árinu 1988 en sem skrásetningartæki notar hann myndavél í stað penna. Leiðsögn Einars Fals Útskriftarsýning Listaháskóla Ís- lands verður opnuð á Kjarvals- stöðum á morgun, laugardaginn 19. apríl, klukkan 14 og stendur til 1. maí. Sýnd verða verk sextíu og þriggja útskriftarnemenda úr myndlistardeild og hönnunar- og arkitektúrdeild skólans. Útskriftar- nemendur sýna Tæplega fjögur hundruð manns voru viðstaddir opnun tveggja ís- lenskra sýninga í menningar- og listamiðstöðinni BOZAR í Bruss- el síðastliðinn þriðjudag. Um er að ræða hönnunarsýningu um Tónlistar- og ráðstefnuhúsið sem nú rís í Reykjavík og sýningu um fagurskreytt íslensk drykkjar- horn frá Þjóðminjasafni Íslandi. Tvær nýjar sýn- ingar í BOZAR 24stundir/ÞÖK

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.