24 stundir


24 stundir - 18.04.2008, Qupperneq 32

24 stundir - 18.04.2008, Qupperneq 32
32 FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 2008 24stundir LÍFSSTÍLLHELGIN helgin@24stundir.is a Ef þú skapar eitthvað gefur það þér sem listamanni ofsalega mikið að sýna það eða flytja á opinberum vettvangi. Eftir Einar Jónsson einarj@24stundir.is Listahátíðin List án landamæra verður sett í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag kl. 17 og markar athöfnin upp- haf mikillar menningarveislu sem stendur til 10. maí og teygir anga sína víða um land. Þetta er í fimmta skipti sem hátíðin er haldin og hefur hún aldrei verið stærri. Boðið verður upp á 35 atriði á höf- uðborgarsvæðinu og 15 á lands- byggðinni. „Hátíðin er alltaf að stækka bæði hér og á landsbyggð- inni. Svo erum við komin með smá tengsl til útlanda því að við fáum hingað sýningu frá 22 finnskum listamönnum,“ segir Margrét M. Norðdahl, framkvæmdastýra há- tíðarinnar. Fjölbreyttur hópur List án landamæra er vettvangur þar sem stór hópur fólks, fatlaðir og ófatlaðir, sýnir listsköpun sína svo sem myndlist, leiklist, tónlist og handverk. „Hátíðin miðar að því að koma list þessa fjölbreytta hóps á framfæri,“ segir Margrét. „Hún gefur líka þeim sem taka þátt mjög mikið. Þú hefur eitthvað til að stefna að. Ef þú skapar eitthvað gefur það þér sem listamanni ofsa- lega mikið að sýna það eða flytja á opinberum vettvangi,“ segir Mar- grét og bætir við að um leið hvetji hátíðin fólk til að koma og njóta listarinnar. Nýr heimur opnast Meðal þeirra sem koma fram á opnunarhátíðinni í dag eru Páll Óskar sem skemmtir ásamt Dans- klúbbi Hins hússins og Valgeir Guðjónsson sem nýtur fulltingis kórs Fjölmenntar. „Við höfum fengið alls konar listafólk í samstarf við okkur, fatlaða og ófatlaða, þekkta og minna þekkta sem hefur verið ofsalega gaman og oft opnast einhver nýr heimur fyrir fólki sem vinnur svona saman,“ segir Mar- grét. Fleiri áhugaverðir viðburðir eru á dagskrá Listar án landamæra um helgina. Á morgun kl. 13 stendur til dæmis Átak, félag fólks með þroskahömlun, að uppákomu við Alþingishúsið. Þar tekur fólk höndum saman og myndar „mannlegan hring“ í kringum hús- ið. Með atburðinum vill félagið að fólk sýni samstöðu og undirstriki mikilvægi jafnræðis allra í sam- félaginu. Geðveikt kaffihús Efnt verður til geðveiks kaffihúss á laugardag í til- efni Listar án landamæra. Fjölbreytt dagskrá listahátíðarinnar List án landamæra Vettvangur fyrir fjölbreytta list Jafnt fatlaðir sem ófatl- aðir listamenn koma fram á listahátíðinni List án landamæra sem hefst í dag í Ráðhúsinu. Hátíðin sem er nú haldin í fimmta sinn hefur aldrei verið stærri og teygir anga sína víða um land. ➤ List án landamæra var fyrsthaldin á Evrópuári fatlaðra árið 2003. ➤ Viðburðir á vegum hátíð-arinnar fara fram á Akureyri, Egilsstöðum, Borgarnesi og í Vestmannaeyjum auk Reykja- víkur. ➤ Dagskrá hátíðarinnar mánálgast í heild á bloggsíðunni www.listanlandamaera.blog- .is. LIST ÁN LANDAMÆRA Fönk á Organ Fönkið ræður ríkjum á tón- leikastaðnum Organ í Hafnar- stræti í kvöld þar sem hljóm- sveitin Jagúar heldur sérstaka miðnæturtónleika. Með tónleik- unum vill hljómsveitinn hita upp fyrir tónleikaferð sína til Eystra- saltslandanna og Finnlands í næstu viku. Miðaverð er 1.000 kr. Fatahönnun framtíðar Þeir sem hafa áhuga á því sem koma skal í fatatísku ættu að leggja leið sína í gömlu kexverk- smiðjuna Frón við Skúlagötu 28 í kvöld. Þar setja útskriftarnemar í fatahönnun við Listaháskóla Ís- lands á svið tískusýningu að hætti hússins. Sýningin hefst kl. 20 og eru allir velkomnir. Bíófjör hjá Sinfó Sinfóníuhljómsveit Íslands leikur kunnugleg lög og stef úr þekktum bíómyndum á tónleikum í Háskólabíói á morgun kl. 14. Þá mætir söngleikjadívan Kim Criswell og syngur nokkur lög úr söngva- og fjölskyldumynd- um á borð við Mary Poppins og Galdrakarlinum í Oz. Miðaverð er 1.400 kr. Það besta í bænum Fönk á Organ Jagúar hitar upp fyrir utanför sína á Organ í kvöld. Kirsuberjatréð á Vesturgötu 4 fagnar 15 ára afmæli sínu laugar- daginn 19. apríl kl. 15-18. Þar hef- ur hópur listakvenna selt íslenska hönnun og myndlist í 15 ár en í húsinu hefur verið verslunarrekst- ur samfleytt í 120 ár. Upphaflega var það Björn Kristjánsson stórat- hafnamaður sem kom þar á fót verslun með vörur til skógerðar og söðlasmíði. Afmælið er því tvöfalt og verður tóm gleði í húsinu öllu af því til- efni. Húshljómsveitin Jón og Mas- sey Fergussynir spilar kl. 16 og 17. Kristín Reynisdóttir myndlistar- kona opnar sýninguna Corpora í kjallara hússins. Kirsuberjatréð á tímamótum Fimmtán árum fagnað Stórsýningin Verk og vit 2008 fer fram í Íþrótta- og sýningarhöll- inni í Laugardal um helgina. Sýn- ingin er tileinkuð byggingariðn- aði, skipulagsmálum og mannvirkjagerð og eru sýnendur um 100. Sýningin verður opin fyrir fagaðila í dag kl. 11-19 og fyrir almenning og fagaðila á laugardag kl. 12-18 og sunnudag kl. 12-17. Verk og vit Grindavíkurbær og Saltfisksetur bjóða upp á menningar- og sögutengda göngu um Stað- arhverfi laugardaginn 19. apríl kl. 11. Staðarhverfi er sögusvið verslunar, kirkju- og útgerð- arstaður í Grindavík og þar má sjá tóftir tveggja lögbýla og 26 hjáleiga frá mismunandi tímum. Ýmislegt verður skoðað sem fyr- ir augu ber á leiðinni. Leið- sögumenn sjá um fræðsluna. Reynt verður að gera gönguna bæði skemmtilega og fræðandi fyrir alla fjölskylduna. Í lok göngu verður heitt á könnunni og börn geta skoðað kindurnar á Stað. Gangan tekur rúman klukkutíma. Söguganga í Staðarhverfi Fæst í Hagkaupum og í apótekum um land allt DBP Free - Toulene free Free of added formalhy de Nýtt frá Sally Hansen Bursti sem hannaður er af fagmönnum - gefur lýtalausa áferð á neglurnar – Naglalakkið helst lengur á Ertu að flytja, láttu fagmenn sjá um verkið fyrir þig Örugg og trygg þjónusta

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.