24 stundir - 18.04.2008, Síða 36
Sími 567 6744 • Bíldshöfða 14 • 110 Reykjavík
höggdeyfar eru orginal
hlutir frá USA og E.E.S.
Aisin kúplings-
sett eru orginal
hlutir frá Japan
varahlutir í miklu úrvali
36 FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 2008 24stundir
LÍFSSTÍLLBÍLAR
bilar@24stundir.is a
Pabbi er bílasmiður og klæddi bíla, kannski kemur
áhuginn að hluta þaðan, en ég held að það sé líka
bara mjög eðlilegt að flestir strákar fái snemma áhuga á að
sportast um á kraftmiklum bílum og öllu sem því fylgir.
Náttúruverndarsamtökin WWF
(World Wildlife Fund) hafa látið
rannsaka mögulega bílakosti fram-
tíðarinnar, eftir því sem fram kem-
ur á vefsíðunni fib.is.
Niðurstöðurnar eru í stuttu máli
á þá leið að mannkynið eigi undir
eins að hætta að nota bensín- og
dísilknúna bíla og fara að snúa sér
strax að tengitvinnbílum og því
sem betra er; rafbílum.
Samtökin gefa ekki mikið fyrir
aðrar tilraunir til að finna orku-
gjafa, og benda meðal annars á að
þær séu margar enn skaðlegri fyrir
umhverfið en jarðeldsneytisnotkun
okkar í dag.
Loks eru vetnisbílar svo gagn-
rýndir, helst vegna þess að vetn-
isframleiðsluferlið er þrefalt orku-
frekara en að nota rafmagnið beint
til að knýja bíla, auk þess sem
dreifikerfi fyrir rafmagn er þegar til
staðar víðast í veröldinni.
Þá er bara spurning hvort við
tökum meira mark á samtökunum
í þessu máli en í sambandi við
hvalveiðar?
Vilja ekki vetni heldur rafmagn
G Wis Rafmagnsbíll sem
nýtur vinsælda í Bretlandi.
Eftir Einar Elí Magnússon
einareli@24stundir.is
„Þetta byrjaði þannig að góður vinur
minn stofnaði bílasölu fyrir 4 árum
og vantaði myndir á veggina hjá sér.
Svo ég fór á bílasýningu með stóran
pappír, settist niður fyrir framan bíl-
ana og teiknaði þá, bæði bíla og
mótorhjól,“ segir Sigurður Valur
Sigurðsson myndskreytir sem hefur
gefið mörgum glæsilegum bílum
nýtt líf á pappír.
Sigurður segist alltaf hafa haft
gaman af fallegum bílum og hönnun
þeirra. „Það eru svo falleg form í
mörgum bílum, en þeir geta líka ver-
ið hörmulega ljótir. Þeir eru eins og
menn og dýr á þann hátt.“
Með áhuga á amerískum bílum
„Ég hef alltaf teiknað mannslíkam-
ann mikið. Olíukrítin er í uppáhaldi
hjá mér því hún er svo mikil áskorun.
Það má ekki gera mistök með hana
því það er ekki hægt að stroka út. Ef
þú gerir mistök verður þú að henda
myndinni og byrja upp á nýtt.
Ég hugsaði með mér að fyrst ég
gæti teiknað mannslíkamann með
þessu, sem er víst það erfiðasta, þá
hlyti ég að geta teiknað bíla, því það
er anatómía í þeim.“
Eins og við er að búast blundar
bílaáhugi í Sigurði og segir hann að
amerískir bílar séu í sérstöku dálæti.
„Ég hef mest gaman af þeim, hafa
svolítið „power“ og svona. En það er
ekki þægilegt í dag, eins og bens-
ínverðið er.
Pabbi er bílasmiður og klæddi
bíla, kannski kemur áhuginn að
hluta þaðan, en ég held að það sé líka
bara mjög eðlilegt að flestir strákar
fái snemma áhuga á að sportast um
á kraftmiklum bílum og öllu sem því
fylgir,“ segir Sigurður.
Formið lifnar við
Sigurður teiknar stundum bíla
fyrir fólk eftir pöntunum, en vílar
ekki fyrir sér að neita ef honum
finnst bíllinn ekki fallegur.
„Þá segi ég bara nei. En ef fólk á
fallegan bíl getur það komið með
hann og ég teikna hann.
Ég teikna allt fríhendis. Þannig
lifnar formið við, frekar en að notast
við ljósmyndir, þá frýs formið og
undarlegur ljósmyndadauði sest inn
í myndina og drepur hana,“ segir
Sigurður að lokum.
Sigurður Valur gerir glæsilegar myndir af bílum og mótorhjólum
Teiknar ekki ljóta bíla
„Ef þú átt virkilega
fallegan bíl, eitthvert
æðisgengið tæki, hvað er
þá hallærislegra en að
hafa ljósmynd af honum
uppi á vegg? Maður gerir
það með börnin sín, en
ekki bílinn. Teikning uppi
á vegg, það er hins vegar
allt annað mál.“
Krítin á lofti Á bílasýn-
ingu á Selfossi. Bíllinn á
myndinni er Buick.
➤ Lauk myndlistarnámi í Frakk-landi fyrir 20 árum
➤ Uppáhaldsbílar hans, semhann hefur teiknað, eru Ford
T-módel og Pontiac GTO.
➤ Hægt er að skoða myndirhans á storyboard.is og
siggivalur.badoo.com.
SIGURÐUR VALUR
Nýr Subaru Forester var kynntur
í vikunni hjá Ingvari Helgasyni og
söluaðilum um land allt.
Íslendingar þekkja vel til bílsins
sem nú er orðinn öllu jepplinga-
legri en fyrri gerðir hans. Þá er bíll-
inn stærri, rúmbetri og betur bú-
inn en áður og kostar nú frá
3.190.000 kr.
Nýr Forester
Bílaumboðið Hekla býður al-
menningi námskeið í spar-
akstri dagana 19. og 27. apríl
og 2. maí. Aðgangur er ókeyp-
is en sætaframboð er tak-
markað. Námskeiðið er
blanda af fræðslu og verklegri
kennslu með ökukennara og
skráning fer fram á hekla.is.
Hekla kennir
sparakstur
Áhugamenn um Thunder-
bird-bíla ættu nú að kætast
því opnuð hefur verið vefsíða
tileinkuð þessum bílum og
eigendum þeirra. Tilgang-
urinn er að þjappa saman eig-
endum Thunderbird og halda
utan um myndir og sögu bíls-
ins hér á landi. Slóðin er thun-
derbird.is
Ný bílasíða
Við eigum öll að vita þetta, en
samt eru 38% allra bíla í Evr-
ópu með rangan loftþrýsting í
dekkjunum, samkvæmt FIA.
Þar af er áttundi hver öku-
maður með of lítið loft, sem
eykur ekki einungis eldsneyt-
iseyðslu til muna, heldur rýrir
bæði aksturs- og hemlunar-
eiginleika bílsins, svo mikil
hætta skapast af. Hefurðu at-
hugað þinn bíl nýlega?
Áttundi hver
hættulegur
Fyrstu 102 daga ársins 2008
voru nýskráningar ökutækja
15,9% fleiri en á sama tíma ár-
ið áður. Þegar 53 dagar voru
liðnir af þessu ári var mun-
urinn hins vegar 46,8%. Svo
virðist sem aukning nýskrán-
inga fari því minnkandi. us.is
Nýskráningar
Bílnum er ætlað að vera næsta
„gamla“ Bjalla. Við erum að tala
um Volkswagen up! (Já, nafn bíls-
ins er með upphrópunarmerki og
lágstöfum. Þversögn?) Bíllinn
verður meðal annars í boði með
0,6 lítra dísilvél sem á að eyða
undir 3 lítrum á hundraðið. Verð
í Evrópu verður nálægt 900.000
krónum, sem útleggst líklega ná-
lægt tveimur milljónum hér á
landi.
up! næsti
hippabíll?
George W. Bush, forseti Banda-
ríkjanna, hefur loksins opinberað
áætlun sem hann segir sanna að
þjóðinni sé alvara með að stuðla
að minni losun gróðurhúsa-
lofttegunda. Áætlunin er einföld:
losunin á ekki að aukast eftir
2025. Ekkert er minnst á úrræði,
eða hvað á að gerast þangað til.
Ætli hann sé að bíða eftir að rík-
isstjóri Kaliforníu selji Hummer-
ana sína?
Bush með háleit
plön … seinna
Verða gamlir
í gallanum
Japanir eru æðislegir! Hverjum
öðrum hefði dottið í hug að
hanna sérstakan klæðnað sem
gerir manni kleift að upplifa elli.
Gallinn er hannaður af Nissan til
þess að ungir og sprækir hönn-
uðir geti áttað sig á því hvernig
gamalt fólk upplifir bíla. Meðal
fídusa eru fimm aukakíló, stirð
liðamót og móðugleraugu. Slíkur
klæðnaður var fyrst notaður hjá
Nissan fyrir tíu árum.
Hver man ekki eftir Ford Flex
hugmyndabílnum? Nú dregur
nær framleiðslu og myndir af
gripnum ættu ekki að valda nein-
um vonbrigðum. Fáir sjö manna
fjölskyldubílar státa af jafn-
miklum töffaraskap!
Flex verður
augnayndi
Meistaraverk Lítið brot af verkum Sigurðar.