24 stundir - 03.05.2008, Síða 21
24stundir LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2008 21
Íslendingurinn Hermann Har-
aldsson, sem nýlega var ráðinn
framkvæmdastjóri danska
íþróttafélagsins Brøndby IF,
kemur inn í stjórn Dagsbrun
Media sem stendur að útgáfu
Nyhedsavisen. Morten Lund,
sem á meirihluta í félaginu,
staðfestir þetta við viðskiptavef
Berlingske Tidende í dag.
Dagsbrun Media á félagið 365
Media Scandinavia, sem gefur
út Nyhedsavisen. Jimmy Ma-
ymann, framkvæmdastjóri
markaðsfélagsins GoViral,
kemur einnig inn í stjórnina.
Fyrir eru Þórdís Sigurðardóttir,
forstjóri Stoða Invest, og Lars
Lindstrøm, fjármálastjóri
Dagsbrun Media. mbl.is
Seðlabanki Bandaríkjanna er
reiðubúinn til þess að veita
bandarískum bönkum allt að
150 milljarða Bandaríkjadala í
skammtíma- og neyðarlán í
maí. Í apríl veitti bankinn 100
milljarða dala í lán til banka.
Er þetta gert til þess að hleypa
lífi í efnahagslíf Bandaríkj-
anna.
Seðlabanki Bandaríkjanna er í
samstarfi við Seðlabanka Evr-
ópu og svissneska seðlabank-
ann um aðgerðir til þess að
bregðast við efnahagsvand-
anum. mbl.is
Tap deCODE, móðurfélags Ís-
lenskrar erfðagreiningar, nam
26,7 milljónum dala á fyrsta
fjórðungi ársins, jafnvirði um
2 milljarða króna, og jókst um
18% frá fyrra ári, var 22,6
milljónir dala á sama tímabili
í fyrra.
Tekjur félagsins námu 15
milljónum dala samanborið
við 8,6 milljónir í fyrra og juk-
ust því um 75%. Segir félagið
að aukninguna megi aðallega
rekja til aukinnar þjónustu
við greiningu erfðamengja.
mbl.is
Nyhedsavisen
Stjóri Brøndby í
stjórn blaðsins
Bandaríski seðlabankinn
Lofar aðstoð
til bankanna
Íslensk erfðagreining
Tapið eykst
Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings,
segir að fjármögnun bankans fyrir árið 2009
verði að fullu lokið í ágúst í ár. Jafnframt sé ljóst
að bankinn muni fækka störfum til þess að
draga úr kostnaði. Þetta kemur fram á fréttavef
Reuters eftir kynningarfund Kaupþings í Lund-
únum.
Skuldatryggingarálagið fáránlega hátt
Hreiðar Már staðfesti við fréttamann Reuters
eftir fundinn að frétt sem birtist í norsku dag-
blaði í síðasta mánuði væri rétt, að fjármögnun
myndi ljúka í ágúst. „Þetta er metnaðarfullt
markmið en mögulegt,“ sagði Hreiðar í viðtali
við Reuters. Hann vildi ekki gefa upp hve mörg-
um yrði sagt upp hjá Kaupþingi, en sagði að
fækkun starfa væri helsta leiðin til þess að draga
úr kostnaði. Að sögn Hreiðars er hátt skulda-
tryggingarálag bankans fjarstæðukennt og miklu
hærra en hjá flestum evrópskum bönkum. Segir
hann nauðsynlegt að herða þurfi reglur um mis-
notkun á markaði og innherjaviðskipti. Segist
Hreiðar vera sannfærður um að skuldatrygg-
ingarálagið eigi eftir að lækka enn frekar en það
hefur lækkað hjá Kaupþingi að undanförnu eftir
að hafa verið í hæstu hæðum fyrir nokkrum vik-
um. Greint er frá þessu á vef breska dagblaðsins
Guardian.
Hagnaður til hluthafa Kaupþings á fyrsta árs-
fjórðungi 2008 nam 18,7 milljörðum króna en til
samanburðar nam hagnaður sama tímabils fyrir
ári 20,3 milljörðum króna. Segir í Morgunkorni
Glitnis í gær að töluverður viðsnúningur hafi
orðið frá fjórða fjórðungi síðasta árs þegar hagn-
aður nam 9,8 milljörðum króna. Uppgjörið sé
engu að síður undir væntingum. mbl.is
Kreppir að hjá Kaupþingi banka
Bankinn boðar fækkun starfa
Boðar fækkun starfa Hreiðar Már Sigurðsson, for-
stjóri Kaupþings