24 stundir - 23.05.2008, Blaðsíða 26

24 stundir - 23.05.2008, Blaðsíða 26
26 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 24stundir Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur dista@24stundir.is „Ég er afar hrifinn af svolitlum anarkisma, silki og fínlegri þunnri kasmírull fyrir sumarið,“ segir Jóhann Meunier í versl- uninni Liborius á Laugavegi. „Ég er til dæmis með fallegan kjól úr þunnri, svartri, hálfgagnsærri kasmírull frá Ann Demeulemees- ter sem ég held upp á. Ég legg enga áherslu á litadýrð í sum- artískunni, efnin, áferðin og sniðin eru í fyrirrúmi. Þetta eru klassísk föt en alls ekki leiðinleg. Það er mikið pönk og rokk í þeim,“ bætir Jóhann við. Anna Clausen í Belleville segir sumartískuna í ár vera orku- mikla, mikið um hrein snið og skarpa liti. „Anna Clausen í Belleville segir sumartískuna í ár vera orkumikla, mikið um hrein snið og skarpa liti. „Þetta eru föt fyrir sjálfsörugga og mér finnast þau kynþokkafull. Hjá okkur gætir áhrifa jaðarmenningar og tónlistar á götutískuna. Við er- um til dæmis með merki eins og Bernhard Willhelm, Pelican Avenue, Raf Simons, Off Bowe- rey og Maharashi.“ „Sumarið hjá okkur er litríkt í bland við auðvitað svart og hvítt, segir Stefán Svan í Kron Kron. „Gulur er sterkur litur í sum- ar sem og dökkblár og appels- ínugulur. Það er mikið um innblástur frá fimmta áratugnum í bland við hinn sjöunda. Með hækkandi sól á maður að vera óhræddur við litina og um að gera að viðra leggina í fallegum kjólum.“ Silki og létt kasmírefni vinsæl í sumar Sumartískan 2008 Sumartískan er með fjöl- breyttasta sniði í tísku- verslunum borgarinnar. Efnin eru léttari og fín- legri en áður og silki er sérstaklega áberandi í sumar. Falleg snið Skemmtileg smáatriði draga fram feg- urð konu Birta í Júníform. Klassík Libo- rius Jóhann Meunier versl- unarstjóri í Liborious er hrifinn af silki og þunnri fín- legri kasmírull. Kvenlegur en kynþokka- fullur Kjóll frá Chloe Zevigny. Pönk og klassík frá Demeulemeester- Silfurhálsfesti með fjöður, jakki með silkilíningu í ermum og kraga og kjóll í anda charleston- tímabilsins. Stelpulegur glamúr Kjóll frá Marc Jacobs í KronKron. Falleg smáat- riði Í þessum kjól frá Júní- form. Djarft og skemmti- legt Eld- rauðir skór og sum- arlegur kjóll. Skór frá MiuMiu og kjóll frá Dolce og Gabbana. REYKJAVÍK: Ármúla 11 - Sími 568-1500 AKUREYRI: Lónsbakka - Sími 461-1070 Snúrustaurar Sérblað 24 stunda Heilsa 27. maí 2008 Auglýsingasími Katrín s. 510 3727 / kata@24stundir.is Kolla s. 510 3722 / kolla@24stundir.is - kemur þér við AUGLÝSINGASÍMI: 510 3744 eyte da a t golf dagskrá menning viðtöl ferðalög viðskipti garðurinn grill 24lífið bílar neytendur umræða Smiðjuvegi 36, 200 Kóp.i j i , .

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.