24 stundir - 23.05.2008, Blaðsíða 12

24 stundir - 23.05.2008, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 24stundir Eftir Atla Ísleifsson atlii@24stundir.is Kínversk yfirvöld hafa staðfest að fjögur þúsund börn hið minnsta hafi misst báða foreldra sína í jarð- skjálftanum í Sichuan-héraði í síð- ustu viku. Enn er ekki hægt að segja til með vissu um raunverulegan fjölda þar sem fjölda fólks er enn saknað eða á vergangi. Talsmaður kínverskra stjórnvalda segir að daglega sé tekið á móti þúsundum símtala og skila- boða þar sem fjölskyldur bjóða fram aðstoð sína, meðal annars með því að bjóðast til að taka að sér börn sem eru orðin munaðarlaus. Misstu sjálfir foreldra sína Meðal þeirra sem hafa boðist til að sjá munaðarlausum börnum farborða eru fullorðnir sem sjálfir misstu foreldra sína í öflugum skjálfta sem reið yfir borgina Tangshan, um 180 kílómetra aust- ur af Peking, árið 1976 og leiddi til dauða um 300 þúsund manna. Zhang Youlu, sem var níu ára þegar hann missti foreldra sína í Tangshan-skjálftanum, segist hafa fundið fyrir mikilli sorg er hann sá myndir af börnum sem höfðu misst foreldra sína í skjálftanum í síðustu viku. „Þetta eru börn sem lifðu mörg af vegna verndar for- eldra sinna og eldri börn sem eiga í vandræðum með að gera sér grein fyrir að foreldrar þeirra séu látnir.“ Mikil viðbrögð Á fréttavef Reuters segir að tveimur dögum eftir skjálftann hafi Zhang skilið eftir skilaboð á netinu þar sem hann hvatti munaðarlausa úr Tangshan-skjálftanum til að stíga fram. Síðan hafa fleiri hundr- uð úr þeim hópi boðið fjárstuðn- ing, ráðgjöf eða að taka að sér munaðarlaus börn. Látinna minnst Síðustu daga hafa fleiri hundruð manns komið saman við minnis- varðann um skjálftann 1976 í Tangshan-borg til að minnast lát- inna. Liu Yuanping, talsmaður Tangshan-borgar, hvetur munað- arlaus börn í Sichuan til að vera sterk og hugrökk. „Þið komið til með að vaxa úr grasi líkt og allir aðrir.“ Engar ættleiðingar strax Myndir af börnum hafa verið birtar í dagblöðum í þeirri von að fá viðbrögð frá almenningi þannig að mögulegt sé að sameina ein- hverjar fjölskyldur á ný. Fleiri þús- und plaköt með upplýsingum um horfna hafa einnig verið hengd upp á íþróttaleikvanginum í Mianyang, sem hefur breyst í nokkurs konar björgunarmiðstöð. Mikill fjöldi kínverskra foreldra missti sitt eina barn í skjálftanum í Sichuan, en Kínastjórn hefur haft þá stefnu um árabil að heimila fjöl- skyldum að eignast einungis eitt barn. Yfirvöld í Sichuan-héraði segja að engin börn verði tekin til ættleiðingar fyrr en um hægir á skjálftasvæðunum og að stofnanir sveitarstjórna muni huga að börn- unum þangað til. Þúsundir barna munaðarlausar  Fólk sem missti foreldra sína í skjálfta 1976 hefur boðist til að taka að sér munaðarlaus börn  4.000 hið minnsta misstu foreldra sína Í tíma Börn á hamfara- svæðunum sækja nú mörg skóla í neyðarskýlum. ➤ Skjálftinn reið yfir um miðjandag 12. maí og mældist 7,9 stig á Richter. ➤ Kínversk yfirvöld hafa stað-fest að 51 þúsund manns hafi látist í skjálftanum og er um 30 þúsund enn saknað. ➤ Um 300 þúsund manns slös-uðust í skjálftanum. SKJÁLFTINN Í KÍNA Suðurafrískir hermenn voru sendir út á götur Jóhannesarborgar í gær til að bæla niður árásir of- beldismanna gegn útlendingum í landinu. Þetta er í fyrsta sinn frá lokum aðskilnaðarstefnunnar í landinu árið 1994 sem hermönnum er beitt með þessum hætti, en árásirnar hafa kostað að minnsta kosti 42 mannslíf og neytt þúsundir manna til að flýja úr landinu. Hermenn aðstoðuðu lögreglu í þremur umfangsmiklum aðgerð- um þar sem 28 voru handteknir og eiturlyf, vopn og skotfæri gerð upptæk. Kennt um félagsleg vandamál Um 15 þúsund útlendingar hafa nú flúið landið frá því að árásirnar hófust 11. maí. Þannig hafa stjórn- völd í Mósambik útvegað rútur til að flytja um níu þúsund mósam- bíska ríkisborgara frá Suður-Afr- íku til heimalandsins. Margir Suður-Afríkumenn hafa kennt útlendingum í landinu um ýmis þau félagslegu vandamál sem hrjá landið, svo sem atvinnuleysi, skort á húsnæði og eina mestu glæpatíðni í heimi. atlii@24stundir.is Árásir gegn útlendingum í Suður-Afríku Hermenn á götum Jóhannesarborgar Tólf voru handteknir og fimm lögreglumenn voru fluttir á sjúkrahús eftir átök um fjögur hundruð stuðningsmanna enska knattspyrnuliðsins Chelsea við óeirðalögreglu nærri Fulham Broadway- neðanjarðarlest- arstöðina í Lund- únum í fyrrinótt. Á vef Sky segir að óeirðaseggirnir hafi kastað flösk- um og öðru laus- legu að lögreglu í um hálftíma. Átökin hófust þegar stuðnings- mennirnir tíndust út af krám þar þeir höfðu drekkt sorgum sínum eftir að hafa fylgst með liði sínu bíða lægri hlut gegn Manchester United í úrslitaleik Meist- aradeildar Evrópu. aí Tapsárir Chelsea-menn Löggur fluttar á sjúkrahús Tveir menn unnu skemmdarverk á fornleifum í Stonehenge á Eng- landi með skrúfjárni og hömrum í síðustu viku. Þetta er í fyrsta sinn í áratugi sem virkin verða fyrir barðinu á skemmd- arvörgum. Mennirnir komust undan á flótta en talið er að þeir hafi viljað verða sér úti um minjagripi frá staðn- um. Steinflís á stærð við mynt var fjarlægð úr einum steininum, en djúp rispa rist í annan. mbl.is Ósvífnir ferðamenn Skemmdarverk við Stonehenge Tankini með fínu aðhaldi í stærðum D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 7.650,- aðhalds- buxur í stíl á kr. 3.650,-" Bikini þar sem snúa má við bh og hann fæst í D,DD,E, F,FF,G skálum á kr. 5.685,- buxur í stíl á kr. 2.440,-" Misty, Laugavegi 178, Sími 551 3366 Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf www.misty.is

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.