24 stundir - 23.05.2008, Blaðsíða 8

24 stundir - 23.05.2008, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 24stundir Sumarblóm í miklu úrvali Trjágróður af öllum gerðum Ráðgjöf og tilboðagerð F A B R IK A N Kjartan Magnússon, stjórnarformaður Orku- veitu Reykjavíkur (OR), segir ályktun stjórnar OR sem samþykkt var á miðvikudagskvöld ekki útiloka sölu á verkefnum REI. „Hún þýðir ein- ungis að við ætlum okkur að gera úttekt á þess- um verkefnum og meta þau. Það verður grunn- urinn í okkar framtíðarstefnumótun. Það er enginn sérstakur tímarammi á henni en það er vilji til að vinna þetta hratt.“ Í ályktuninni segir einnig að REI hafi verið „stofnað til þess að sinna fjárfestingar-, þróun- ar- og ráðgjafarverkefnum erlendis“. Ályktunin er til komin vegna tillögu sem meirihluti stjórn- ar OR lagði fram á stjórnarfundi 18. apríl um að REI ætti einungis að sinna ráðgjöf og þróun- arverkefnum. Þau verkefni sem féllu ekki í þann flokk ætti að selja. Afgreiðslu tillögunnar var frestað og í liðinni viku kom fram álit borg- arlögmanns þess efnis að hún þyrfti að fara fyrir eigendafund til að geta hlotið afgreiðslu. Staðfesting á niðurstöðu stýrihópsins „Niðurstaðan er staðfesting á því sem þegar var búið að ákveða og sjálfstæðismenn hafa því staðfest niðurstöðu stýrihópsins um að REI verði áfram til,“ segir Svandís Svavarsdóttir, fulltrúi Vinstri grænna í stjórn OR, um álykt- unina. Sigrún Elsa Smáradóttir, fulltrúi Sam- fylkingar í stjór OR, segir niðurstöðuna aftur- hvarf til þeirrar stefnu sem var við lýði í málefnum fyrirtækisins áður en fulltrúar meiri- hlutans báru upp tillöguna um að selja verkefni REI. „Í raun er sá tilgangur sem fyrirtækið var upphaflega stofnað til að sinna viðurkenndur í þessari ályktun og vonandi verður nú friður um þá starfsemi.“ thordur@24stundir.is Ályktun stjórnar Reykjavik Energy Invest um stefnu og málefni fyrirtækisins Útilokar ekki sölu á verkefnum REI 24stundir/Eggert Til sölu? Kjartan segir ályktunina ekki útiloka sölu á verkefnum REI. Eftir Björgu Evu Erlendsdóttur beva@24stundir.is Andstaða bænda og flestra hags- munaaðiila við innflutning á hráu kjöti stöðvar að líkindum mat- vælafrumvarp sjávar- og landbún- aðarráðherra. Málið er mjög um- deilt á Alþingi. Stjórnarandstaðan vill öll að málinu verði frestað. Þótt andstað- an sé langhörðust hjá Vinstri grænum, eru Frjálslyndir líka and- snúnir þáttum eins og breytingum á sjúkdómavörnum. Framsóknar- menn eru mismunandi mikið á móti frumvarpinu. Valgerður Sverrisdóttir telur ekkert liggja á. „Ég held að við sofum á þessu og þurfum ekki að gefa upp neitt endanlegt álit á matvælalöggjöf- inni nú. Við vitum ekki hver áhrif- in yrðu eða hve mikið yrði flutt inn.“ Sjálfstæðismenn sjá agnúa Margir Sjálfstæðismenn yrðu því fegnastir að geta frestað frum- varpinu. Landsbyggðarþingmenn flokksins sjá ekki ástæðu til þvinga málið fram fyrir sumarið. „Ég leyfi mér að vona að málinu verði frest- að, það er engin þörf á því að keyra það í gegn. Tíminn fram á haust gæti nýst til að sníða agnúa af frumvarpinu, “ segir einn sem bíður með opinskáar yfirlýsingar. „Málið er enn í nefndinni og ræðst eftir helgi, “ segir Arnbjörg Sveins- dóttir. Samfylking til í slaginn Lúðvík Bergvinsson, þingflokks- formaður Samfylkingarinnar, býst við sínir menn taki alvarlega ef samstarfsflokkurinn vill fresta matvælafrumvarpinu. „Samt vinnst ekkert með því og það hefur ekki verið tekin nein ákvörðun um að fresta því. Það vita allir að við verðum að innleiða Evróputilskipunina, en þetta þing nær fram í september.“ Margróma mótmæli Samtök bænda og matvæla- framleiðenda hafa lagst hart gegn samþykkt frumvarpsins í vor. Tím- inn sé nægur. Mörg sveitarfélög skora á ráðherra að fresta frum- varpinu. Þar má nefna Húnaþing vestra, Norðurþing, Blönduósbæ, Húnavatnshrepp, Borgarbyggð, Skagafjörð og Vopnafjarðarhrepp. Þá hefur Sigrún Björk Jakobsdótt- ir, bæjarstjóri á Akureyri, skorað á ráðherra og þingmenn að fresta frumvarpinu. Það gerði hún á opnum fundi Sjálfstæðisfélaganna á Akureyri fyrr í mánuðinum. Man ekki önnur eins mótmæli VG hefur haldið fundi með hagsmunaaðilum víða um land. Flokkurinn leggur mikla áherslu á hreinleika íslenskra afurða. Jón Bjarnason, þingmaður vinstri grænna, segir fráleitt af ríkisstjórn- arflokkunum að keyra málið áfram. „Það væri fullkomin van- virða við umsagnir, áskoranir og gild rök. Ég man ekki eftir jafn- hörðum mótmælum í neinu máli. En helstu stuðningsmenn frum- varpsins eru fákeppnismenn á markaðnum sem sjá mikla gróða- von í innflutningnum.“ Hráa kjötið ekki flutt inn í sumar  Yfirgnæfandi líkur eru á að matvælafrumvarpi verði frestað til haustsins  Andstaða er innan flestra flokka  Sveitarfélög skora á Alþingi og ráðherra að fresta málinu ➤ Bændur, matvælaiðnaður ogvísindamenn mótmæla ➤ Sveitarfélög vilja að áhriffrumvarpsins verði kostn- aðargreind áður en lög eru sett. ➤ Aðlögun Íslands að mat-vælalöggjöf Evrópusam- bandsins verður vart umflúin til lengdar EVRÓPUTILSKIPUN 24stundir/Sverrir Ráðherrar ríkisstjórnarinnar ferðuðust fyrir 95 milljónir króna frá ríkisstjórn- armyndun til 4. apríl, sem eru 284 þúsund á dag . Í skriflegu svari forsætisráðherra til Álf- heiðar Ingadóttur, þingmanns VG, kemur fram að ferðir ut- anríkisráðherra voru flestar og kostuðu 21,7 milljónir króna. Forsætisráðherra ferðast talsvert en aðeins ein ferð er skráð á fjármálaráð- herra. bee 284 þúsund á dag Ráðherrar á faraldsfæti Frumvarp Össurar Skarphéð- inssonar iðnaðarráðherra til nýrra orkulaga er á dagskrá Alþingis í dag. Samkomulag er orðið um málið innan rík- isstjórnarflokkanna. Þing- menn VG segja það hafa gjör- breyst í meðförum þingsins í þágu Sjálfstæðisflokksins. Stjórnarflokkarnir sáttir Orkulög rædd á Alþingi í dag STUTT ● Ríkisstjórnin enn undir eftirlaunafeldinum „Það skýrist á næstu dögum hvort næst að leggja málið fram,“ sagði Geir Haarde for- sætisráðherra eftir síðasta rík- isstjórnarfund. Þess er því enn beðið hvort nýtt frumvarp til eftirlaunalaga þingmanna og æðstu embættismanna verður lagt fram á þessu þingi. Engin frumvarpsdrög hafa ver- ið sýnd þingmönnum, eftir að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir lýsti því yfir að lögunum yrði breytt. Þingmál Valgerðar Bjarnadóttur, Samfylkingu, sef- ur enn í allsherjarnefnd, en það gengur lengra en þær tillögur sem Ingibjörg Sólrún og Geir H. Haarde hafa ýjað að síðustu vikur. bee

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.