24 stundir - 23.05.2008, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 24stundir
Eftir Þóru Kristínu Þórsdóttur
thorakristin@24stundir.is
Ef systkini, sem eiga hvert sinn föð-
urinn, missa móður sína er hætta á
að þau alist upp hvert á sínum
staðnum. Ástæðan er að forræðið
fer sjálfkrafa til eftirlifandi foreldris
sé það fyrir hendi, eins og gerðist
nýlega þegar tveir bræður misstu
móður sína vegna fíkniefnaneyslu
og fjallað var um í 24 stundum í
gær.
Fósturforeldri síðasta úrræðið
Um tuttugu börn hafa misst for-
eldra sína vegna eiturlyfja í Reykja-
vík á undanförnu ári og hafa þau
sum farið til eftirlifandi foreldris
(yfirleitt föður), önnur til annarra
ættingja og svo enn önnur í fóstur
til vandalausra. Er hið síðastnefnda
óalgengast, að sögn Halldóru
Gunnarsdóttur, framkvæmdastjóra
Barnaverndar Reykjavíkur.
Ef barnið á ekki foreldri á lífi fer
forsjáin yfir til barnaverndarnefnd-
ar, sem í samvinnu við Barna-
verndarstofu finnur barninu heim-
ili, að sögn Braga Guðbrandssonar,
forstjóra Barnaverndarstofu.
Er fyrst leitað til ættingja barns-
ins um að taka við barninu en finn-
ist enginn viljugur aðili eru fundnir
fósturforeldrar á þar til gerðri skrá
Barnaverndarstofu.
„Það hefur alltaf verið nægt
framboð af viljugu fólki til að taka
börn í fóstur á Íslandi,“ segir Bragi.
200 börn í varanlegu fóstri
Sextán börn voru sett í varanlegt
fóstur hérlendis í fyrra og er það
svipað og undanfarin ár.
Sé skoðað hve mörg börn voru í
varanlegu fóstri á landinu í fyrra
voru þau tvö hundruð talsins.
Fóstur Síð-
asta úrræðið.
200 börn
í fóstri
Börn fíkla sem hafa látist eru hjá ætt-
ingjum, eftirlifandi foreldri eða sett í fóstur
➤ Hægt er að senda börn í tíma-bundið fóstur, varanlegt fóst-
ur eða styrkt fóstur.
➤ Í heild voru nær 360 börn álandinu öllu í einhvers konar
fóstri í fyrra.
BÖRN Í FÓSTRI
Miele ryksugur
Miele S381 Tango Plus 1800W mótor
Meðal fáanlegra fylgihluta:
Hepafilter: Hreinsar loftið
af ofnæmisvaldandi efnum.
Kolafilter: Hreinsar óæskilega lykt.
Góður fyrir gæludýraeigendur.
Parketbursti: Skilar parketinu glansandi.
Miele ryksugurnar eru traustar og kraftmiklar. Þær eru með
stillanlegu röri og úrval fylgihluta er innbyggt í vélina.
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is
-hágæðaheimilistæki
TILBOÐ kr.: 18.900
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Baldursnes 6, Akureyri | Sími 588 0200 www.eirvik.is
Hæstiréttur mildaði í gær dóm
yfir karlmanni á fimmtugsaldri í
tólf mánaða fangelsi, þar af níu
mánuði skilorðsbundið, fyrir
kynferðisbrot gegn konu.
Maðurinn var dæmdur fyrir að
hafa nýtt sér svefndrunga og ölv-
unarástand konunnar og reynt að
hafa við hana kynmök. Maðurinn
var dæmdur til að greiða kon-
unni hálfa milljón í bætur.
Héraðsdómur hafði áður dæmt
manninn í tólf mánaða óskilorðs-
bundið fangelsi. Í dómi Hæsta-
réttar segir meðal annars að kon-
an hafi lengi glímt við erfiðan
geðsjúkdóm og brot mannsins
hafi haft verulegar íþyngjandi af-
leiðingar fyrir hana. mh
Mildað í kynferðisbrotamáli