24 stundir - 23.05.2008, Blaðsíða 1

24 stundir - 23.05.2008, Blaðsíða 1
24stundirföstudagur23. maí 200896. tölublað 4. árgangur ENGINN ER BETRI SUMARHÚSAEIGENDUR - FELLIHÝS AEIGEND UR ATH! NÚ STAND A YFIR DÝNUDAGAR! Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500 Akureyri: Hofsbót 4, s: 462 3504 Afgreiðslutími virka daga 10-18 og laugardaga 11-16 Guðný Guðjónsdóttir man eftir mörgum skemmtilegum karakt- erum sem komið hafa í kaffi á Mokka en hún hefur rekið staðinn í 50 ár og heldur upp á afmælið á laugardaginn. Mokka 50 ára KOLLA»18 Silki og önnur létt efni eru vinsælust í sumartískunni 2008 og gamli tíminn er ríkjandi. Það á jafnt við um herra- og dömuföt. Litir eru vinsælir, t.d. gulur, en svartur og hvítur eru þó uppáhalds- litirnir. Sumar í silki SUMARIл26 25% munur á jakkafatahreinsun NEYTENDAVAKTIN »4 Ítalskur ellilífeyrisþegi var fluttur á sjúkrahús eftir að hafa lent í slag við annan mann eftir deilu um hvor ætti heimtingu á síðustu köku- sneiðinni á hlaðborði á veit- ingastað í Novate Milanese. Hinn 62 ára Alfredo Mancini dró upp kuta sinn og stakk Niccolo Bruno, 70 ára, er Bruno gerði sig líklegan til að hrifsa til sín sneiðina. Lög- regla handtók Mancini litlu síðar eftir að hann lagði á flótta með göngustaf sinn. aí Barist um síðasta bitann GENGI GJALDMIÐLA SALA % USD 72,67 -0,64  GBP 143,78 0,01  DKK 15,30 -1,09  JPY 0,69 -1,32  EUR 114,16 -1,07  GENGISVÍSITALA 146,73 -0,84  ÚRVALSVÍSITALA 4.871,11 -0,59  »14 7 8 8 7 8 VEÐRIÐ Í DAG »2 Þingmenn úr flestum flokkum telja nú réttast að bíða með sam- þykkt matvælafrumvarps fram á haust. Þetta verður ákveðið eftir helgi þegar ráðherra kemur frá útlöndum. Hráa kjötinu frestað til hausts »8 Jakob Frímann Magnússon, fram- kvæmdastjóri miðborgarverkefna hjá Reykjavíkurborg, skuldar um 4,5 milljónir króna í skatta. Jakob segist vera búinn að semja um greiðslu. Jakob Frímann skuldar skatta »2 Eftir Þóru Kristínu Þórsdóttur thorakristin@24stundir.is Hlutfall eldsneytis í bókhaldi heim- ilisins hefur farið síhækkandi á und- anförnum mánuðum. Bensínlítrinn hefur hækkað um 30% á seinustu tólf mánuðum, úr 122 kr. upp í 158 kr. í sjálfsafgreiðslu, og dísillítrinn um 43%, úr 122 upp í 174 krónur. Sumir landsmenn eru farnir að gera ráðstafanir til að draga úr bens- ínneyslunni. Aðrir skipta í eyðslu- grennri bíla og er Ólöf Magnúsdótt- ir, húsmóðir í Hafnarfirði ein þeirra. Daglega leiðin upp um 5000 Á grafinu hér til hliðar er upp- hugsað dæmi um eldsneytiskostnað vegna hinnar daglegu ferðar úr og í vinnu og skóla fyrir fjögurra manna fjölskyldu með einn bíl. Reiknað er með að fjölskyldan keyri 30 kíló- metra á dag 22 daga vikunnar og miðað er við annars vegar eldsneyt- isverð 10. maí í fyrra og eldsneyt- isverðið í gær hins vegar. Aki fjölskyldan á Toyota Corolla sjálfskiptum bensínbíl, hefur elds- neytiskostnaður hennar vegna þessa aksturs hækkað um 2.500 krónur, farið úr 8.500 krónum á mánuði upp í rúmar 11.000. Sé fjölskyldubíllinn sjálfskiptur Range Rover-dísilbíll hefur elds- neytiskostnaðurinn hins vegar hækkað um fimm þúsund á mánuði og farið úr rúmum 11.500 krónum í maí í fyrra upp í um 16.500 nú. Ferðalögum fækkað Ólöf áætlar að þau hjónin verji um þrjátíu þúsund krónum í elds- neyti á mánuði, enda eru um tólf kílómetrar á milli vinnustaðar mannsins hennar og heimilisins. Þau reka tvo bíla „vegna þess að ferðirnar á milli, þegar maðurinn minn kom með bílinn heim til þess að ég kæmist t.d. að versla, voru orðnar svo kostnaðarsamar að það borgaði sig að skipta yfir í tvo eyðslugrennri bíla.“ Segist hún jafn- framt hafa dregið úr ferðalögum um landið og fara sjaldnar í heim- sókn til foreldra sinna, en þau búa á Kópaskeri. Skutlið helmingi dýrara en í fyrra  Bensínið er 30% dýrara og dísillinn 43% dýrari en á sama tíma í fyrra  Hjón með tvö börn borga nú 11 þúsund bara í ferðir úr og í vinnu og skóla á venjulegum fólksbíl Réttarháls Vinnan hennar mömmu Heiðargerði Dagmamman Borgartún Vinnan hans pabba Bárugatan Lagt af stað heiman frá Melaskóli Barnið í skóla 2007 Toyota Corolla Sjálfskiptur bensínbíll 8.514 kr. á mánuði Range Rover Sjálfskiptur Díselbíll 11.595 kr. á mánuði 2008 Toyota Corolla Sjálfskiptur bensínbíll 11.044 kr. á mánuði Range Rover Sjálfskiptur Díselbíll 16.522 kr. á mánuði KOSTNAÐUR ➤ Hægt er að reikna út elds-neytisverð vegna ferða milli allra stærstu bæja landsins á vef Orkusetursins, www.orku- setur.is. ➤ Er þar hægt að velja gerð bif-reiðar og gerð eldsneytis. ORKUSETUR Seðlabankinn tilkynnti í gær að stýrivöxtum yrði haldið óbreytt- um. Bankastjóri sagði ólíklegt að vextirnir verði lækkaðir á næsta stýrivaxtaákvörðunar- degi, sem er í júlí. Merki um sam- drátt í eftirspurn »16 Þúsundir barna munaðarlausar Kínversk stjórnvöld hafa staðfest að fjögur þúsund börn hið minnsta séu munaðarlaus eftir jarðskjálftann í Sichuan-héraði. Hjálparstarf á svæðinu hefur gengið erfiðlega. »12

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.