24 stundir - 23.05.2008, Blaðsíða 28
28 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 24stundir
Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur
dista@24stundir.is
Eftirminnilegustu sumarfríin
eru oft þau sem minnst er haft fyr-
ir. Ef í sparibauknum eru ekki til
stórar fjárhæðir til að ferðast til
heitari landa og vappa um á sand-
ölum á strönd má auðveldlega gera
lífið hér heima notalegt með lítilli
fyrirhöfn.
Á höfuðborgarsvæðinu eru þó-
nokkur skjólgóð útivistarsvæði
sem má nýta til að slá upp veislu
með góðu fólki. Ekki þarf meira til
en einfaldar veitingar, ef til vill ljúf-
fengar skonsur, gæðamarmelaði,
sæta hnetu- og ávaxtaköku, ost,
hitabrúsa og ljúffengt te. Þá reyn-
ast bækur mörgum góður fé-
lagsskapur og á sumrin verður vin-
sælt að reka nefið ofan í góða bók.
Ný útgáfa af Samastað
Málfríðar
Sumrin eru góður tími til að lesa
stærri bókmenntaverk sem hafa
beðið lesandans lengi vegna anna.
Meistaraverk eins og Glæp og refs-
ingu má lesa á nokkrum löngum
sumardögum og það er vel þess
virði að lesa skáldsögu eftir Fjodor
Dostojevski sem kafar djúpt í sál-
arlíf sögupersóna sinna og tekst á
við grundvallarspurningar um
þjóðfélagsmál sem hann og gerir í
Glæp og refsingu.
Fyrir þá sem vilja íslenska klass-
ík má grípa í nýja útgáfu Bjarts
bókaútgáfu af Pilti og stúlku eftir
Jón Thoroddsen eða bók Málfríðar
Einarsdóttur, Samastaður í tilver-
unni, endurútgefna af Forlaginu.
Fá íslensk skáldverk hafa náð
annarri eins hylli hjá íslenskri þjóð
og Piltur og stúlka eftir Jón Thor-
oddsen. Fyrir þá sem hafa ekki enn
kynnt sér þann rammíslenska
róman og lesið um Gróu á Leiti,
sveitasæluna og sollinn er tími til
kominn.
Bók Málfríðar, Samastaður í til-
verunni, er loks fáanleg að nýju en
síðan hún var gefin út árið 1977
hefur hún orðið eftirlætisbók
margra.
Þá er ómissandi að lesa gott
sakamáladrama á sumrin, sér-
staklega til að hleypa lífi í letilega
og tilbreytingarlausa daga.
Þá er vinsæl bók bandaríska
spennusagnahöfundarins James
Patterso og Michael Ledgwick,
Sjortarinn. Hasar, spenna, erótík
og ráðgátur.
Enskar skonsur
Skonsur er fljótlegt að útbúa og
eru þær afar ljúffengar með góðum
osti og ekta marmelaði eða sí-
trónu-
smjöri (lemon curd).
Í skonsum er lyftiduft og því
þarf deigið ekki að lyfta sér, það
má fara beint í ofninn.
250 g hveiti
1 1/2 tsk. lyftiduft
25 g smjörlíki
1/2 tsk. salt
1 msk. sykur
1 egg
1 dl mjólk
1. Sigtið saman hveiti og lyfti-
duft í skál. Myljið kalt smjörið
saman við þar til blandan verður
að kornóttum massa.
2.Bætið salti og sykri út í og
hrærið eggið og mjólkina saman
við.
3.Hnoðið deigið þar til það er
slétt og meðfærilegt. Skiptið deig-
inu í tvennt og mótið tvær flatar
kringlóttar kökur úr deiginu. Hitið
ofninn í 200 gráður.
4. Mótið eða skerið 4-6 raufar í
hverja köku, eins og tertusneiðar
og leggið deigið á ofnplötu.
Bakist í 10-15 mínútur eða þar
til skonsurnar hafa fengið á sig fal-
legan, gylltan lit.
24 stundir/Valdís Thor
Enskar skonsur og íslensk bókmenntaklassík
Tedrykkja og lestur
bóka í sumar
Ekki þýðir að barma sér
endalaust yfir íslenskum
sumrum, vætu- og vinda-
sömum. Til að sitja úti
þarf auðvitað ákveðið
húsmóðurvit, hlý teppi
og heita drykki, ynd-
islegar bækur til að
sökkva sér í, spennandi
leikföng og litríkan
brjóstsykur til að lauma
að orkuríkum börnum.
Góð garðveisla Nestiskarfa frá Pipar og
salt 19.900 kr., rallíbíll fyrir þau yngstu frá
Habitat, 14.990 kr., vatnshelt teppi frá
Pipar og salt, 4500 kr. Smásjá fyrir for-
vitna grallara frá Habitat 4990 kr. Lemon
Curd frá Pipar og salt á 495 kr.
Hátíðin Valkyrjur verður haldin
í fyrsta sinn um helgina í Hinu
Húsinu og er opin konum á aldr-
inum 15 til 25 ára. Markmiðið
með hátíðinni er að fagna fjöl-
breytileika stelpna og vinna gegn
þeirra eigin staðalímyndum með
því að benda á að stelpur geta verið
mjúkar, harðar, töffarar, dömur og
allt þar á milli. Opnunarhátíð
verður í kvöld frá klukkan kl. 18-
20 þar sem boðið verður upp á
léttar veitingar, Ladycats spila góða
tónlist, skemmur verða kynntar og
farið verður í skoðanaleikinn
Rauða línan. Á morgun laugardag
verða síðan ýmsar skemmur
haldnar sem hægt er að skrá sig í
en meðal þeirra eru Kynlíf, ástir og
unaður í umsjón Ragnheiðar Ei-
ríksdóttur hjúkrunarfræðings,
Flýtitíska í umsjá Söru Maríu í
Nakta apanum og Framkoma og
tjáning í umsjá Dóru Jóhanns-
dóttur leikkonu svo eitthvað sé
nefnt. Einnig verða örnámskeið í
fjölmörgu, meðal annars því að
skipta um dekk og prjóna.
Frábærar og æðislegar
„Þessi hátíð er að sænskri fyr-
irmynd og er ætlað að fagna því
hversu fjölbreyttar og æðislegar við
stelpur erum. Við stelpur erum oft
á tíðum uppteknar af staðal-
ímyndum og eins hafa rannsóknir
sýnt að við tökum ekki jafn mikinn
þátt í félagsstarfi félagsmiðstöðv-
anna og strákar, svo okkur langar
líka til að virkja þær í því starfi,“
segir Arna Sævarsdóttir hjá Hinu
Húsinu.
Stelpur geta verið mjúkar, harðar, töffarar, dömur og allt þar á milli
Valkyrjur vinna gegn staðalímyndum
Hátíðin Valkyrjur Verður haldin
fyrir ungar konur um helgina.
150
Fyrir sumarið
Laugavegi 51 - sími 552 2201