24 stundir - 23.05.2008, Blaðsíða 15

24 stundir - 23.05.2008, Blaðsíða 15
24stundir FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 15 Hvar er Hannes? spyr EgillHelgason á heimasíðusinni. Ein- hverjir hafa kannski haldið að hann ætti við Hannes Hólm- stein Gissurarson en hann er svo sem ekkert horfinn af sjónarsviðinu enda bendir Egill á að um sé að ræða Hannes Smára- son og að þetta sé vinsælasta spurningin í stórveislum þessa dagana. Hannes þessi hefur tölu- vert verið á milli tannanna á fólki og ekki dró úr þeim áhuga þegar spaugarar í Áramótaskaupi léku sér með hann og mæltu með því að fólk ætti að vera meira eins og Hannes. En Hannes hvarf með hruninu í Kauphöllinni og því spyrja menn: Hvar er Hannes? Helga Lára Haarde, ungursálfræðinemi og dóttirþeirra ágætishjóna Ingu Jónu Þórðardóttur og Geirs Haarde forsætis- ráðherra, gerir lítið úr þeim upplýs- ingum sem fjöl- miðlar gefa les- endum sínum um ástandið í miðbæ borgarinnar um helgar í pistli sem hún skrifar á deiglan.com. Helga Lára telur, að því er virðist, að fjölmiðlar stundi einhvers konar hræðsluáróður. „Umfjöllun fjölmiðla getur því kallað fram ótta hjá fólki þar sem tíðni alvar- lega afbrota virðist manni vera mun meiri en hún í raun er. Þetta veldur hræðslu hjá almenningi.“ Fjölmiðlar endurspegla þjóðfélag- ið, Helgu til fróðleiks, og óskandi að ástandið væri betra en það er. Vinnubrögð sem þessi hefég aldrei nokkurn tímaséð á mínum stjórn- málaferli,“ segir Guðni Ágústs- son á heimasíðu Framsóknarflokks- ins um ríkisstjórn þá sem nú situr og talar tungum tveim. Það er þeir sem eru fylgjandi hrefnu- veiðum og hinir sem eru á móti. „Þegar sjávarútvegsráðherra leyfði hvalveiðar árið 2006 hvatti ég sér- staklega til samstöðu og minnti á að við aðstæður sem þessar þurfi Ísland að eiga eina þjóðarsál því hagsmunir okkar á erlendri grundu væru í húfi. Með sam- stöðu gætum við gætt þeirra hagsmuna en sundruð ekki,“ seg- ir Guðni í landsföðurlegum tón og bætir við að hann sé enn á þeirri skoðun. elin@24stundir.is KLIPPT OG SKORIÐ „Þetta er okkar land – okkar þjóðfélag. Við, almennir borgarar, höfum fullan og stjórnarskrárvar- inn rétt til að tjá okkur um það hvernig það þróast inn í framtíð- ina. Við eigum ekki að þurfa að óttast að mannorð okkar sé dreg- ið í svaðið af kjaftaskúmum Sam- fylkingar í hvert sinn sem við segjum hug okkar og skoðanir.“ Þessi orð eru tekin af heima- síðu einstaklings sem svo mjög hefur lagst gegn móttöku flótta- manna hér á landi. Þessi ein- staklingur vill alls ekki að við, fá- tæklingarnir á Íslandi, við hin vannærða þjóð réttum fólki í neyð hjálparhönd. Æ, aumt er að vera nískur. Ég er döpur yfir þessari skoðun að við getum ómögulega aðstoðað flóttamenn sem hírst hafa í flótta- mannabúðum í Írak. Að við getum ómögulega að- stoðað þær óteljandi fjölskyldur sem nú eru á vergangi eftir ham- farirnar í Kína. Annars vegar eru rökin gegn aðstoðinni við flóttamennina þau að Akranes, sem móttöku-bæjar- félag, sé svo gríðarlega illa statt að það megi ekki við því að taka við flóttamönnum. Akranes, sem staðsett er á suðvesturhorni lands- ins, í Mekka þenslunnar, megi alls ekki við því að taka á móti 30 einstaklingum, mæðrum og börn- um frá Palestínu sem eiga engan samastað. Hin rökin eru þau að bens- ínverðið sé svo dýrt og að at- vinnubílstjórar séu svo aðfram- komnir af hungri að það verði fyrst að sinna þeim áður en veittir eru fjármunir í neyðaraðstoð vegna náttúruhamfaranna í Kína. Ef við tökum Kína sem dæmi er áætlað að um fimm milljónir manna þjáist vegna hamfaranna. Að fimm milljónir séu heimilis- lausar og meira en 50 þúsund hafi látist. Við skulum aðeins veita herleg- heitunum athygli. Gerð voru hróp að utanríkisráðherra á Alþingi í liðinni viku þegar hún tilkynnti um aðstoð þá sem Íslendingar ætla að veita Kínverjum. Um er að ræða heilar sjö og hálfa milljón króna sem senda á til Kína. Sjö og hálf milljón er ríflega tvöföld sú upphæð sem fór í utanlandsreisu forsætisráðherra til Kanada á liðnu ári. Sjö og hálf milljón er innan við tíu prósent af þeirri fjárhæð sem varin hefur verið í ferðalög núverandi ríkisstjórnar frá stjórnarskiptum síðastliðið vor. Sjö og hálf milljón eru sjö mánaðarlaun forstöðumanns Þjóðmenningarhúss og eru þá ekki tekin með í reikninginn þau launatengdu gjöld sem ríkið þarf að greiða. Sjö og hálf milljón eru nú öll herlegheitin. Og atvinnubílstjórar hrópa á ráðherra vegna þessarar óráðsíu á meðan bíleigendur á Ís- landi svelta … eða hvað? Eigum við að tala um Akranes? Akranes sem hefur allt til alls rétt eins og önnur sveitarfélög á Ís- landi. Akranes þar sem fáir ef nokkrir líða skort hvað varðar mat og húsaskjól. Akranes sem hefur innan sinna bæjarmarka frábæra skóla og leikskóla. Lúxusvandamálin sem við eig- um við að glíma hér á Íslandi eru beinlínis hlægileg miðað við það sem þetta fólk þarf að upplifa á hverjum degi. Vissulega þarf að setja meiri peninga í öldrunarmál, málefni fatlaðra og félagsþjónustu, en þegar á heildina er litið erum við ótrúlega vel stödd. Það er ekk- ert langt síðan við áttum varla til hnífs og skeiðar en nú erum við ein ríkasta þjóð í heimi og eigum að skammast okkar fyrir nánas- arháttinn þegar kemur að aðstoð við þá sem eiga um sárt að binda. Þegar þjóð getur ekki sameinast um að mótmæla neinu öðru en háu bensínverði hlýtur hún að vera aflögufær. Höfundur er áhugamanneskja um að- stoð án landamæra. Aðstoð án landamæra VIÐHORF aHelga Vala Helgadóttir Vissulega þarf að setja meiri pen- inga í öldr- unarmál, málefni fatl- aðra og fé- lagsþjónustu, en þegar á heildina er litið erum við ótrúlega vel stödd. Það er ekkert langt síðan við áttum varla til hnífs og skeiðar en nú erum við ein ríkasta þjóð í heimi og eigum að skammast okkar fyrir ná- nasarháttinn þegar kem- ur að aðstoð við þá sem eiga um sárt að binda. www.triumph.is Krossgötur ehf Fiskislóð 26 s: 517 - 1077 Hvellur - Smiðjuvegi 30 - Kópavogi - Sími 577 6400 – www.hvellur.com BOSS • 5,5 hestafla HONDA motor • 53 cm sláttubreidd • Drif • Járnhjól með legum • Safnkassi www.pingpong.is Suðurlandsbraut 10 2.h. • Reykjavík Sími 568 3920 og 897 1715 Borðtennisborð www.signature.is Fiskislóð 45 • 101 Reykjavík • Sími 565 3399Opið virka daga 11-18, laugardaga 11-15 Sumarið er komið Ertu að flytja, láttu fagmenn sjá um verkið fyrir þig Örugg og trygg þjónusta Komdu til okkar, taktu með eða borðaðu á staðnum Alltaf góð ur! Kjúklingastaðurinn Suðurveri Nú er orðin n stór

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.