24 stundir - 23.05.2008, Blaðsíða 13

24 stundir - 23.05.2008, Blaðsíða 13
24stundir FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 13 vinbudin.is Starfsmenn franska ríkislest- arfélagsins SNCF lögðu niður störf í gær til að mótmæla fyr- irhuguðum breytingum Nicol- as Sarkozy Frakklandsforseta á lífeyrisréttindum opinberra starfsmanna. Fjöldi opinberra starfsmanna tók einnig þátt í eins dags verkfallinu til að þrýsta á Sar- kozy að hverfa frá fyrirhug- uðum breytingum sínum. Verkfallið hafði mikil áhrif á samgöngur í landinu og urðu miklar tafir þar sem stræt- isvagnabílstjórar og starfs- menn í flugþjónustu voru meðal þeirra sem lögðu niður störf sín. aí Leið ólympíukyndilsins um héruð Kína hefur verið breytt vegna jarðskjálftans í Sichuan- héraði í síðustu viku. Upp- haflega átti kyndillinn að fara um Sichuan um miðjan næsta mánuð, en því hefur nú verið frestað fram í byrjun ágúst- mánaðar. Haldið var áfram að hlaupa með kyndilinn í hafnarborg- inni Ningbo í gær, eftir að hlé var gert vegna þriggja daga þjóðarsorgar. Fyrirhugað er að kyndillinn fari um öll hér- uð Kína áður en Ólympíu- leikarnir verða settir í Peking að kvöldi 8. ágúst. aí Stjórn bandaríska flugfélags- ins American Airlines hefur ákveðið að rukka farþega sína um 15 Bandaríkjadali, jafn- virði 1.100 króna, fyrir fyrstu tösku við innritun. AA er fyrsta stóra bandaríska félagið sem tekur upp slíkt tösku- gjald, en 25 dali kostar nú að innrita tösku númer tvö. Stjórn AA kynnti sparnaðar- aðgerðir sínar vegna hækk- andi eldsneytisverðs og versn- andi efnahagsástands, en félagið hyggst einnig fækka flugferðum og taka eldri, orkufrekari vélar úr umferð. aí Verkfall í Frakklandi Samgöngur í lamasessi Jarðskjálftinn í Kína Leið ólympíu- kyndils breytt American Airlines Rukkað fyrir hverja tösku Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna spáir því að þjóðir heims muni í fyrsta sinn verja sam- tals meira en trilljón Bandaríkjadala, eða jafn- virði um 75 þúsund milljarða króna, í innflutn- ing á mat árið 2008. Áætlað er að samanlagður reikningur verði 26 prósentum hærri í ár samanborið við í fyrra og er helsta ástæðan sögð vera mikil hækkun á matvælaverði. Matvælastofnunin telur sig þó sjá merki þess að matvælaverð hafi lækkað nokkuð á síðustu vikum. Bitnar mest á þeim fátækustu Í nýrri skýrslu stofnunarinnar kemur fram að hækkunin komi helst til með að bitna á þeim ríkjum sem búa við óstöðugt efnahagslíf, þar sem kostnaður muni aukast um að jafnaði fjörutíu af hundraði. „Íbúar þróunarríkja hafa fundið mun meira fyrir hækkandi matvælaverði en íbúar efnaðri ríkja. Hækkandi matvælaverð hefur leitt af sér alvarleg vandamál, sér í lagi fyr- ir viðkvæma hópa fólks sem verja umtalsverð- um hluta tekna sinna í mat.“ Ólíklegt að þróunin gangi alveg til baka Áætlað er að verð á helstu grunnvörum í heiminum, þar á meðal hrísgrjónum, hveiti og korni hafi hækkað um rúmlega 50 prósent frá síðasta sumri. Matvælastofnunin segist þó sjá nokkur merki þess að verð á sumum tegundum matar hafi lækkað og hugsanlegt sé að sú þróun komi til með að halda áfram. Ólíklegt er þó talið að verðhækkanir síðustu mánaða gangi alveg til baka, vegna hækkandi framleiðslukostnaðar, sem orsakist sérstaklega af hærra eldsneytisverði. atlii@24stundir.is Þjóðir heims verja í fyrsta sinn meira en trilljón Bandaríkjadala í innflutning á mat Aldrei meira fé varið til innflutnings á mat Íþyngjandi Verð á hrísgrjónum hefur hækkað um 75% á einu ári.

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.