24 stundir - 07.06.2008, Side 23
24stundir LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2008 23
Iðnhönnun
Bólstrun
Tækniteiknun
Rafeindavirkjun
Rennismíði
Vélvirkjun
Málmsmíði
Glerslípun
Stálsmíði
Mótasmíði
Iðnnám
... nema hvað?
Iðnnám veitir þér aðgang að skemmtilegu, skapandi
og vel launuðu starfi og gefur þér kost á háskólanámi.
Iðnnám skapar þér óteljandi möguleika.
Kíktu á framboðið á www.idan.is/nam-og-storf
þar eru yfir 60 námsgreinar í boði.
Mótasmíði
Málmsteypa
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
0
8
-0
9
9
9
Mesta hlutfallslega aukning á
atvinnuleysi á milli mánaða í
meira en tvo ára tugi varð í
Bandaríkjunum í maí.
Atvinnuleysi þar í landi fór úr
5,0% í apríl í 5,5% í maí, sem
er mesta hlutfallslega aukning
milli mánaða síðan 1986. Alls
fækkaði störfum þar í landi
um 49 þúsund á milli mánaða
og eru nú alls 8,5 milljónir
Bandaríkjamanna án atvinnu.
Ekki hefur mælst meira at-
vinnuleysi í Bandaríkjunum
frá því um haustið árið 2004
og ganga þessar tölur nokkuð
gegn þeim spám sem birtar
höfðu verið. Meðaltal þeirra
var að það yrði 5,1%. ejg
Helstu hlutabréfavísitölur á
Wall Street tóku nokkra dýfu í
gær.
Dow Jones fór niður um 285,7
stig sem er 2,3% lækkun, Nas-
daq lækkaði um 45,93 stig eða
1,6% og Standard & Poor’s
500-vísitalan um 26,02 stig
eða 1,9%.
Þessi mikla lækkun er rakin til
hækkunar á olíuverði, en
tunnan hækkaði um tæpa sjö
dali tunnan og kostar nú í
134,41 dal. Sérfræðingar
spáðu því gær að verðið yrði
komið upp í 150 dali á tunnu
fyrir 4. júlí.
ejg
Rúm 105 þúsund tonn af hrá-
efni til fiskvinnslu voru flutt
inn í fyrra, sem er 16% minna
en árið áður, samkvæmt Hag-
tíðindum Hagstofunnar.
Var samdráttur í innflutningi
á ýsu, steinbít, loðnuhrognum
og norsk-íslenskri síld en
meira flutt inn af þorski,
loðnu, kolmunna og rækju.
Verðmæti þessa innflutnings
nam 5,7 milljörðum króna,
sem er um 500 milljónum
meira en 2006. Af þeim afla
sem tekinn var til vinnslu hér-
lendis nam verðmæti innflutts
hráefnis um 11%. þkþ
Bandaríkin
Mikil aukning
á atvinnuleysi
Bandaríkin
Mikil dýfa á
hlutabréfum
Hagstofa Íslands
Samdráttur í
fiskinnflutningi
Tengslanet íslenskra kvenna í atvinnurekstri,
sem sett hefur verið upp á netinu, gæti orðið
fyrirmynd alþjóðlegs tengslanets kvenna í at-
vinnurekstri. Þetta er meðal þess sem rætt var á
stjórnarfundi alþjóðasamtaka kvenna í atvinnu-
rekstri (FCEM) sem fram fór hér á landi í gær.
Aðalheiður Karlsdóttir er alþjóðafulltrúi Fé-
lags kvenna í atvinnurekstri (FKA) og vara-
fulltrúi Evrópumála innan heimssamtakanna.
Hún segir ánægjulegt ef verkefni unnið af fé-
lagskonu í FKA verði nýtt til þess að þjóna kon-
um í atvinnurekstri um allan heim. „Það er
mjög áhugavert fyrir okkur því þá erum við
orðnar leiðandi á þessu sviði,“ segir hún og bæt-
ir við að íslenskar konur standi að mörgu leyti
betur að vígi en kynsystur þeirra erlendis, sér-
staklega hvað varðar tölvunotkun.
„Við stöndum hins vegar ekki jafn vel og þær
hvað varðar að sækja fram og koma okkur á
framfæri, það vantar þann kúltúr í okkur. Svo
staðan fer mikið eftir því hvaða svið eru skoð-
uð,“ segir Aðalheiður. „Okkur vantar víðari sýn
til að nýta okkur tækifæri á alþjóðamarkaði þess
að vaxa og stækka í atvinnurekstri við erum svo-
lítið einangraðar ennþá.“
Aðalheiður segir gagnlegt að fræðast um at-
vinnurekstur kvenna annars staðar í heiminum
en tæplega 20 konur sækja fundinn frá öllum
heiminum auk þess sem Françoise Foning, for-
seti alheimssamtakanna, er stödd hérlendis.
Forseti Íslands tók á móti ráðstefnugestum á
Bessastöðum á fimmtudag, en Hanna Birna
Kristjánsdóttir tók á móti þeim í Ráðhúsi
Reykjavíkur, auk þess sem Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir ávarpaði fundinn í gær.
fifa@24stundir.is
Alþjóðasamtök kvenna í atvinnurekstri funda hérlendis
Alþjóðlegt tengslanet kvenna í bígerð
Aðalheiður Karlsdóttir Aðalheiður er alþjóðafulltrúi
Félags kvenna í atvinnurekstri. Félagið fundaði hér.