24 stundir - 07.06.2008, Side 28

24 stundir - 07.06.2008, Side 28
28 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2008 24stundir anna DERO (Darfur Emergency Rescue Operation) og er stjórn- stöðin staðsett í Nyala í S-Súdan. Sérstök upplifun Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Elín kemur til Afríku þar sem hún hefur áður starfað í Mó- sambík fyrir Þróunarsamvinnu- stofnun Íslands og einnig ferðast víða um álfuna. Hún þekkir því vel til afrískra aðstæðna. En hvernig kom ástand Súdan og þá sérstaklega Darfúr Elínu fyrir sjónir? „Það er sérstök upplifun að koma til lands í stríði,“ segir Elín. „Ég var þarna á ferð ásamt Jónasi Þórissyni, framkvæmda- stjóra Hjálparstarfs kirkjunnar, og flugum við fyrst til Kartúm, höf- uðborgar Súdan. Í sjálfu sér er borgin ekki ólík svo mörgum öðrum stórborgum í Afríku. Hinsvegar er öll stjórnsýsla mjög þunglamaleg og við þurftum leyfi fyrir nánast öllu sem er ákveðinn mælikvarði á ástandið. Sem dæmi þurftum við leyfi til að ferðast og til að taka myndir. Við vorum víst nokkuð heppin með það hversu greiðlega gekk hjá okkur að fá leyfin sem að annarra sögn er ekki alltaf raunin.“ Einn dagur fór í leyfisumsóknir í Kartúm og því næst var ferðinni heitið til Nyala í Darfúr-héraði. Þar eru fá hótel og ástand örygg- ismála ótryggt svo að íslensku gestirnir gistu á heimilum starfs- manna verkefnisins. „Nyala var okkar áfangastaður og þar gistum við í þrjár nætur. Við héldum þar fundi með starfsmönnum verk- efnisins og fulltrúum stjórnvalda. Þaðan ókum við einnig að flótta- mannabúðunum sem voru í um 140 km fjarlægð norðan við borg- ina.“ Öryggismálum ábótavant Íslendingarnir náðu einungis að heimsækja eitt þorp sökum tímaskorts og hversu stórt svæðið er, en Darfúr-hérað er um fimm sinnum stærra en Ísland. „Við byrjuðum á því að hitta andlega og veraldlega leiðtoga þorpsins,“ heldur Elín áfram. „Þeir töldu helst að þjónustu við skóla- og heilsugæslu væri ábótavant en einnig var þeim umhugað um ör- yggismálin, sérstaklega öryggi kvenna og barna. Annars var erf- itt að átta sig fullkomlega á að- stæðum í þessari stuttu heimsókn. Eftir Halldóru Traustadóttur frettir@24stundir.is „Íslensk stjórnvöld hafa lagt umtalsverða fjármuni í þetta verk- efni sem felst í rekstri flótta- mannabúða fyrir um 250 þúsund manns,“ útskýrir Elín. Um er að ræða nokkur þorp eða flótta- mannabúðir sem líkjast að mörgu leyti öðrum afrískum þorpum, þ.e. þetta eru ekki tjaldbúðir heldur leir- og strákofar. Þarna hefur fólk jafnvel búið í áraraðir og í þorpunum eru reknir skólar og heilsugæslustöðvar. Utanríkis- ráðuneytið hóf fjárstuðning við verkefnið árið 2003 en ýmsar hjálparstofnanir koma að verkefn- inu eins og Hjálparstarf kirkj- unnar og Hjálparstarf norsku kirkjunnar, sem stýrir verkefninu. Daglegur rekstur verkefnisins er síðan í höndum regnhlífarsamtak- Ég átti satt að segja von á verra ástandi þó ég vilji ekki gera lítið úr þeim erfiðleikum sem fólk þarna gengur í gegnum. En okkur var að sjálfsögðu sýnt það upp- byggingarstarf sem farið hefur fram í búðunum á undanförnum árum og því höfum við eflaust ekki fengið að sjá verstu aðstæð- urnar.“ Skortur á hefðbundnum fyr- irmyndum Elín hefur fylgst með gangi mála í Darfúr í gegnum sjónvarp og annan fréttaflutning. „Sem betur fer hefur dregið úr átökum frá því árið 2004 þegar þau náðu ákveðnu hámarki,“ segir hún. „Það sem hinsvegar hefur gerst síðan þá er að hópar uppreisnar- manna hafa nú tvístrast og erfitt er fyrir alla sem til þekkja að kortleggja hverjir starfa með hverjum. Hjálparstarfsmenn jafnt sem heimamenn hafa einnig miklar áhyggjur af ungu kynslóð- inni, sérstaklega drengjunum, sem nú eru að vaxa úr grasi. Dreng- irnir hafi almennt lítið fyrir stafni sökum ástandsins í landinu og skortir hefðbundnar fyrirmyndir, t.d. um hlutverk karla og kvenna og samskipti þeirra á milli. Hætta er á að slík ungmenni dragi sig að uppreisnarhópunum og leggja hjálparsamtök sérstaka áherslu á að þeir hafi eitthvað uppbyggilegt fyrir stafni og taki þátt í daglegu lífi.“ Vantar pólitískan vilja Spurð um stöðu deiluaðila í Súdan segir hún að það hafi verið mál manna á staðnum að póli- tískan vilja skorti til að binda enda á deilurnar, bæði hjá stjórn- völdum í Kartúm sem og hjá al- þjóðasamfélaginu. List eykur skilning Elín nefnir í lokin skemmtilega og jákvæða upplifun sem hún varð fyrir í Súdan. „Við heimsótt- um súdanskan listamann, Rashid Diab að nafni. Hann flutti nýlega aftur til Súdan eftir 25 ára búsetu í Evrópu. Hann stýrir listasmiðju í höfuðborginni þar sem hann heldur námskeið fyrir unga lista- menn og kennara með það að markmiði að „skapa frið með list- sköpun“, eins og hann orðaði það sjálfur. Listsköpun í Súdan hefur ekki þróast sem skyldi vegna átak- anna og er það hans trú að þegar ólíkir menningarheimar mætast í listinni sé hægt að auka skilning og umburðarlyndi milli þjóð- flokka og trúarbragða. Þetta var akkúrat það sem ég upplifði í heimsókninni á vinnustofu hans – að listin hefur engin landa- mæri,“ segir Elín. Dögun í Darfúr  Utanríkisráðuneytið styrkir uppbyggingu í Darfúr  250 þúsund manns hafast þar við í flóttamannabúðum Ömurlegar að- stæður Flóttafólkið býr ekki í tjaldbúð- um heldurr íleir- og strákofum ➤ Súdan er í NA-Afríku. Flat-armál landsins er 2.505.813 ferkm. (um 25 sinnum stærra en Ísland) ➤ Í landinu búa rúmlega 40milljónir manns. ➤ Meðaltekjur á mann: $2.522(sbr. $ 40.277 á Íslandi ) ➤ Aðeins tæplega 61% lands-manna eru læs ➤ Árið 2004 flokkaði Colin Po-well, þáverandi utanrík- isráðherra BNA, átökin í Darf- úr undir þjóðarmorð. ➤ Um 2,5 milljónir manna hafaþurft að yfirgefa heimili sín og þorp síðan átökin brutust út SÚDAN Listin er án landamæra Rashid Diab og Elín Rósa Sigurð- ardóttir Utanríkisráðuneytið hef- ur styrkt verkefni í Darf- úr-héraði í Súdan í nokk- ur ár og er það hluti af neyðar- og mannúðar- aðstoð ráðuneytisins í samstarfi frjáls félaga- samtök. Elín Rósa Sigð- urðardóttir, starfsmaður ráðuneytisins, var á dög- unum í Súdan og var til- gangur ferðarinnar að skoða verkefnið og kynna sér ástand héraðs- ins. FRÉTTAVIÐTAL frettir@24stundir.is a Ég átti satt að segja von á verra ástandi þó ég vilji ekki gera lítið úr þeim erfiðleikum sem fólk þarna gengur í gegnum.

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.