24 stundir - 07.06.2008, Qupperneq 31
24stundir LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2008 31
Hæstiréttur átti að sjálfsögðu að
hafa hugrekki til að sýkna sak-
borninga í Baugsmálinu. Um leið
og dómararnir sáu að farið hafði
verið af stað með óvenjulegu of-
forsi og málið var rekið í senn af
pólitískum undirmálum og jafnvel
persónulegu hatri – um leið og
þeir sáu að upphaflegar sakargiftir
voru á misskilningi byggðar og
ekki fótur fyrir þeim – um leið og
þeir sáu að með ógurlegum til-
kostnaði og erfiði og umfangs-
mestu lögreglurannsókn í sögu
lýðveldisins, þá hafði um síðir tek-
ist að finna nýjar sakargiftir sem
þó voru í meira lagi vafasamar –
þá áttu þeir að sjálfsögðu að
sýkna.
Það sem til dæmis Jón Ásgeir
Jóhannesson hefur nú verið
dæmdur fyrir er svona svolítið
eins og ef lögreglan hefði kært mig
fyrir manndráp en þegar kom á
daginn að ég hafði engan drepið,
þá var leitað og leitað og leitað
þangað til það var alla vega hægt
að dæma mig fyrir að fara yfir á
rauðu.
Og væri það réttlátt?
Það finnst mér ekki. Og mér
finnst ekki gott að dómarar við
æðsta dómstól þjóðarinnar skuli
ekki hafa haft hugrekki til að
henda öllu þessu máli út í hafs-
auga.
Vissulega getur Jón Ásgeir hrós-
að happi. Hann hefur þurft að
þola nákvæmustu lögreglurann-
sókn sögunnar, sérfræðingar lög-
reglunnar hafa legið yfir hverjum
einasta pappír úr fórum hans og
krafist skýringa á hverri einustu
pulsu sem hann keypti sér, og eftir
stendur sakfelling fyrir eitt bók-
haldsbrot.
Nú ber ég vissulega djúpa virð-
ingu fyrir bókhaldi og finnst að
menn eigi að fara í hvívetna að
lögum þegar bókhald er fært, en
meira að segja þetta brot hans er
málum blandið, og má verja það
fram í rauðan dauðann, eins og
verjendur Baugs hafa vissulega
gert.
Enginn þolir slíka rannsókn
En ég stórefast um að margir
jafn umsvifamiklir kaupsýslu-
menn hefðu þolað jafn nákvæma
rannsókn jafn vel og Jón Ásgeir
hefur greinilega gert. Kolkrabba-
fyrirtækin sálugu hefðu ekki þolað
slíka rannsókn. Ég hefði ekki þol-
að slíka rannsókn án þess að ein-
hverjar misfellur kæmu í ljós. Ég
efast meira að segja stórlega um
að bókhald hæstaréttadómaranna
sjálfra hefði þolað grandskoðun í
mörg ár án þess að eitthvað kæmi
í ljós sem ef til vill hugsanlega
kannski mætti túlka sem bók-
haldsbrot. Hvað þá lögreglumann-
anna sem rannsökuðu málið.
Og ekki aðeins hafa Jón Ásgeir
og Baugur, og margir starfsmenn
þeirra, mátt þola lögreglurann-
sókn í mörg ár með öllu því álagi
sem því fylgir, heldur líka þurft að
eyða í málið ótrúlegum tíma, orku
og peningum, sem vissulega hefði
verið betur varið öðruvísi.
Jón Ásgeir Jóhannesson er
vissulega ekki engill. Hann er
kaupsýslumaður og þykir víst
nokkuð töff sem slíkur, þótt yf-
irleitt alltaf fylgi sögunni að hann
sé sanngjarn og heiðarlegur í við-
skiptum. Og hann átti þessa með-
ferð af hálfu íslenska ríkisins ekki
skilið.
Enginn á slíkt skilið.
Þess vegna átti Hæstiréttur hik-
laust að sýkna. Og það er ljóður á
ráði réttarins að hann skuli ekki
hafa gert það, eða vísað málinu frá
sem ótæku og byggðu á illgjörn-
um forsendum. Þótt sakborningar
í Baugsmálinu geti vissulega litið á
niðurstöðu Hæstaréttar sem sigur
fyrir sig, þá átti Hæstiréttur samt
að stíga skrefið til fulls og sýkna.
Það var ekki hlutverk Hæstaréttar
að reyna að bjarga örlitlum hluta
af andliti ákæruvaldsins með þeim
dómi sem féll í fyrradag.
Hvenær hefst rannsókn á
rannsókninni?
Rétt er kannski að taka fram að
ég starfa nú hjá fyrirtæki sem er í
meirihlutaeigu sömu aðila og eiga
Baug. Ég vona samt að enginn ætli
mér að láta þá staðreynd ráða
skoðunum mínum á málinu. Enda
hef ég alltaf talað á sama veg um
málið og hef þó ekki unnið hjá
þessum aðilum nema hluta af
þeim óratíma sem liðinn er síðan
Baugsmálið upphófst.
Nú er aftur á móti spurningin,
hvenær á að hefja næstu rannsókn
í Baugsmálinu? Rannsókn á rann-
sókninni? Ég hlakka til að sjá
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra krefjast rannsóknar á því að
embætti á hans vegum skuli hafa
eytt mörgum árum og hundruð-
um milljóna í rannsókn máls sem
skilaði eiginlega engu. Því það
hlýtur að verða næsta skref Björns
í málinu, er það ekki?
Ríkisst
jórnin
með he
imild
til að ta
ka
500 mi
lljarða
kreppu
lán.
Þeir áttu að sýkna
aIllugi Jökulsson skrifar um Baugsmálið
Ég efast
meira að
segja stórlega
um að bók-
hald hæsta-
réttadóm-
aranna
sjálfra hefði þolað grand-
skoðun í mörg ár án þess
að eitthvað kæmi í ljós
sem ef til vill hugsanlega
kannski mætti túlka sem
bókhaldsbrot.
Eftir úrskurð í Baugs-
málinu „Þótt sakborn-
ingar í Baugsmálinu geti
vissulega litið á nið-
urstöðu Hæstaréttar sem
sigur fyrir sig, þá átti
Hæstiréttur samt að stíga
skrefið til fulls og sýkna.“
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Mallorca
11. júní
frá kr. 19.990
Allra síðustu sætin
Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til Mallorca
11. júní. Þú bókar tvö flugsæti en greiðir aðeins fyrir eitt. Gríptu
tækifærið og tryggðu þér sumarfrí á frábærum kjörum á
vinsælasta sumarleyfisstað Íslendinga.
Verð kr. 19.990
Netverð á mann, flugsæti með sköttum, m.v. 2 fyrir 1 tilboð 11. júní í viku.
2 fyrir 1
Ertu á leið til Köben í frí, House of Colors bíður
ódýra íbúðagistingu á góðum stað, stutt frá
öllu, ströndinni, miðbænum og verslunum.
Sjá nánar á houseofcolors.dk
House of Colors