24 stundir - 07.06.2008, Qupperneq 32
32 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2008 24stundir
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
seth@24stundir.is
Ingunn sigraði í keppni fullorðinna
á Hellu og var það fyrsti sigur
hennar á Kaupþingsmótaröðinni.
Viku síðar fagnaði hún sigri á
mótaröð unglinga á Kaupþings-
mótaröðinni á Hvaleyrarvelli í
Hafnarfirði. Ingunn er því ósigr-
andi – enn sem komið er.
Ingunn verður á meðal kepp-
enda á öðru stigamóti ársins sem
fram fer á Hólmsvelli í Leiru um
helgina en mótið hófst í dag, laug-
ardag.
„Öll móðurfjölskyldan er í golfi.
Móðir mín, Kristín Þórisdóttir, og
foreldrar hennar voru dugleg við
að draga mig með sér út á völl hjá
GKG þegar ég var að byrja þar. Það
spila allir golf í fjölskyldunni en
elsti bróðir minn, Þórir, er sá eini
sem er ekki forfallinn kylfingur.“
Rígur á heimilinu
Það er skemmtilegur systkina-
rígur á milli Ingunnar og bróður
hennar sem heitir Gestur og er
hann tveimur árum eldri en Ing-
unn sem er 18 ára gömul. „Við er-
um alltaf í keppni og ég held að við
séum með nákvæmlega sömu for-
gjöf þessa stundina, 4,3. Gestur
keppir einnig á Kaupþingsmóta-
röðinni líkt og ég. Það fer örugg-
lega alveg nett í taugarnar á honum
að litla systir vinnur hann þessa
dagana. Það er frekar vandræða-
legt.“ Ingunn segir að það hafi ekki
tekið langan tíma að ná góðum
tökum á golfíþróttinni.
„Ég var með 13 í forgjöf þegar ég
var 14 ára gömul. Og þá komst ég í
kvennasveit GKG í fyrsta sinn. Það
var stór hópur af stelpum úr vina-
hópi mínum sem æfði golf með
GKG á þessum tíma og það hjálp-
aði mikið til að ég fór alveg á kaf í
golfið. Það er helsta vandamálið í
stelpugolfinu að stelpur fara ekki af
stað ef þær eru einar. Ég veit ekki
hvað þetta er með okkur stelpurnar
en við þurfum að laga þetta hug-
arfar aðeins. Það eru ekki margar
stelpur yngri en ég sem keppa á
Kaupþingsmótaröðinni. Ég ræddi
þetta við pabba minn um daginn
og mér finnst eins og stelpur þurfi
alltaf að vera saman í hóp til þess að
eitthvað gerist. Strákarnir spá
minna í þetta og fara bara út á völl
þegar þeir vilja. Það hefur ekki ver-
ið mikið vandamál fyrir mig að fara
ein að æfa. Metnaðurinn er það
mikill að ég veit að það er það eina
sem dugir. Að æfa meira en hinir.“
Ingunn segir að hún sofni ekki
með þann draum í höfðinu að ger-
ast atvinnukylfingur á allra næstu
árum. Hún ætlar að taka öruggu
leiðina og klára námið fyrst.
Vel öruggu leiðina
„Ég var að ljúka við annað árið í
Menntaskólanum í Reykjavík og ég
ætla að sjálfsögðu að klára stúd-
entsprófið áður en ég fer að pæla
mikið í framhaldinu. Ég er ekki
með veggspjald af Anniku Sörens-
tam uppi í herbergi hjá mér. At-
vinnumennskan er ekki efst á for-
gangslistanum hjá mér. Það er
nánast öll fjölskyldan í lögfræðinni
og það kæmi engum á óvart ef ég
færi í það fag einnig.“
Á næstu árum hefur Ingunn hug
á því að reyna að komast að hjá há-
skólaliði í Bandaríkjunum og sam-
eina áhugamálið og nám. „Það er
auðveldara fyrir stelpur að komast
að hjá háskólaliðum. Það gæti verið
spennandi að gera slíkt en það er
alveg pottþétt að ég mun klára há-
skólanámið áður en ég fer að hugsa
um atvinnumennsku eða eitthvað
slíkt. Það er örugga leiðin.“
Ingunn vinnur hjá Golfklúbbi
Kópvogs og Garðabæjar hálfan
daginn en þess á milli æfir hún af
krafti með afrekshóp GKG. Hún
var mjög virk í flestum þeim íþrótt-
um sem hún gat æft sem barn og
unglingur. „Þegar ég var yngri æfði
ég nánast allar íþróttir sem ég gat
stundað. Það var gaman meðan á
því stóð en þegar ég var í 9. bekk
valdi ég golfið. Og hætti öllu hinu
Tónlistarnám kom einnig við sögu.
Ég lærði á píanó í mörg, mörg ár.
Ég hætti því líka. Ég sé ekki eftir
þeirri ákvörðun,“ segir Ingunn
Gunnarsdóttir.
Framtíðin er björt Ingunn Gunn-
arsdóttir ætlar að leggja áherslu á
námið á næstu árum en lögfræðin
heillar – líkt og atvinnumennska.
Atvinnumennska
eða lögfræði?
Ingunn Gunnarsdóttir, afrekskylfingur úr GKG, er á sigurbraut á Kaupþingsmótaröðinni í golfi Hefur gam-
an af því að „rúlla“ bróður sínum upp Öll fjölskyldan er í golfi Hún stefnir að því að spila í Bandaríkjunum
„Ég byrjaði að gutla í
golfi á golfvellinum á
Laugarvatni. Þar erum við
með sumarbústað og það
var ekkert annað að gera
fyrir krakka á þeim tíma.
Golf og sund. Ég var því
mikið úti á velli á Laug-
arvatni og byrjaði ferilinn
þar,“ segir Ingunn Gunn-
arsdóttir, menntaskóla-
mær í MR, en hún hefur
sigrað á fyrstu tveimur
stigamótunum á Kaup-
þingsmótaröðinni í golfi.
➤ Ingunn sigraði á fyrsta stiga-mótinu á Kaupþingsmótaröð-
inni í fullorðinsflokki á Hellu.
Það er fyrsti sigur hennar á
þeirri mótaröð.
➤ Um sl. helgi sigraði hún íflokki 17-18 ára á Kaupþings-
mótaröðinni á Hvaleyrarvelli.
KAUPÞINGSMÓTARÖÐIN
24stundir/Kristinn
ÍÞRÓTTIR
ithrottir@24stundir.is a
Öll móðurfjölskyldan er í golfi. Móðir mín, Kristín Þórisdóttir,
og foreldrar hennar voru dugleg við að draga mig með sér út
á völl þegar ég var að byrja. Elsti bróðir minn er sá eini sem er ekki
forfallinn kylfingur.