24 stundir - 07.06.2008, Qupperneq 34
LAUGARDAGUR 7. júní 2008ATVINNA34 stundir
RAFMAGNSIÐNFRÆÐINGUR
Öryggissvið Neytendastofu óskar eftir að ráða metnaðarfullan rafmagnsiðnfræðing til starfa. Um er að ræða faglegt
krefjandi starf þar sem reynir á tæknilega ráðgjöf um reglur er varða rafmagnsöryggismál, framkvæmd eftirlits með
rafverktökum og neysluveitum og fræðslu og kynningu um rafmagnsöryggi. Um er að ræða margvísleg áhugaverð
verkefni er varða rafmagnsöryggi og rafmagnseftirlit.
Umsjón með eftirfarandi starfsþáttum:
• Tæknileg ráðgjöf og fræðsla um reglur er varða öryggisstjórnun rafverktaka og öryggi neysluveitna og túlkun
og framkvæmd reglna er gilda um rafmagnsöryggismál.
• Þátttaka í skipulagningu og framkvæmd lögbundins eftirlits með rafverktökum og öryggi neysluveitna.
• Þátttaka í mótun og viðhaldi á gæðastjórnunar- og öryggiskerfum í samræmi við reglur á rafmagns-
öryggissviði og aðrar almennar kröfur í starfsumhverfinu.
• Þátttaka í rannsóknum bruna og tjóna af völdum rafmagns og úrvinnslu gagna.
• Þátttaka í samstarfi í þróun laga og reglna sem gilda um öryggi neysluveitna, öryggisstjórnun rafverktaka o.fl.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Rafmagnsiðnfræði (sterkstraumssvið).
• Sveinsbréf í rafvirkjun og reynsla af rafvirkjunarstörfum.
• Góð almenn tölvukunnátta.
• Góð íslensku- og enskukunnátta og færni í einu Norðurlandamáli æskileg.
• Skipulags- og samskiptahæfni.
• Frumkvæði.
Vakin er athygi á því að samkvæmt frumvarpi til laga um mannvirki sem lagt hefur verið fram á Alþingi er gert ráð fyrir því
að rafmagnsöryggismál flytjist frá Neytendastofu til nýrrar Byggingarstofununar á árinu, ásamt þeim starfsmönnum sem
þeim sinna.
Um launakjör fer samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna. Vakin er athygli á 20. gr. laga nr. 96/2000, um jafna
stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Umsóknir óskast sendar Neytendastofu, Borgartúni 21, 105 Reykjavík, merkt „starf á
rafmagnsöryggissviði“ eða rafrænt á póstfang stofnunarinnar, postur@neytendastofa.is, eigi síðar en 24. júní 2008. Öllum
umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Jóhann Ólafsson, sviðsstjóri öryggissviðs, í síma 510 1100. Netfang:
johann@neytendastofa.is.
Öryggissvið Neytendastofu hefur m.a. yfirumsjón með rafmagnsöryggismálum á Íslandi, markaðseftirliti raffanga
og skoðunum á raforkuvirkjum, neysluveitum og öryggisstjórnunarkerfum rafveitna og rafverktaka. Sviðið
löggildir rafverktaka, annast skráningu og rannsóknir á slysum og tjónum af völdum rafmagns og gefur út
kynningar- og fræðsluefni um rafmagnsöryggismál.
Borgartúni 21 • 105 Reykjavík • Sími 510 1100 • Bréfasími 510 1101
postur@neytendastofa. is • www.neytendastofais
10 spurningar
sem þú gætir fengið í atvinnuviðtalinu
Hverjir eru veikleikar þínir?
Erfið spurning. Svaraðu henni með því að undirstrika
styrkleika þína frekar en veikleika og slepptu öllu sem
kemur vinnunni ekki við. Veikleikar þínir geta líka verið
styrkleikar þínir í augum vinnuveitandans. T.d. ef þú
ert þrjósk/ur, tapsár, með fullkomnunarþörf og hefur
tilhneigingu til að láta vinnuna gleypa líf þitt. Yfirmenn
elska vinnualka.
Af hverju ættum við að ráða þig?
„Seldu” sjálfa/n þig á hnitmiðaðan hátt. „Ég hef unnið að
markaðsstörfum í fimm ár og náði áþreifanlegum árangri
á fyrri vinnustað. Ég er fullviss um að framlag mitt mun
koma fyrirtækinu til góða og að ég gæti orðið góður
liðsmaður í ykkar hópi.” Eitthvað í þessa áttina.
Af hverju viltu vinna fyrir okkur?
Hér ætti svarið þitt að gefa til kynna að þú hafir velt málinu
aðeins fyrir þér en hafir ekki sótt um vinnu á 20 stöðum
af handahófi.
Hver eru þín helstu markmið?
Nefndu frekar skammtímamarkmið en að negla líf þitt
niður mörg ár fram í tímann. „Í augnablikinu er markmið
mitt að fá starf við hæfi í framsæknu fyrirtæki. Markmiðin
til lengri tíma litið yrðu að taka mið af þróun fyrirtækisins
en ég hefði áhuga á því að taka að mér ábyrgðarstarf með
tíð og tíma ef það væri í boði.”
Af hverju hættirðu (eða ertu að hætta) á þínum fyrri
vinnustað?
Ef þú ert atvinnulaus skaltu mála starfslok þín jákvæðum
litum. Ef þú ert í starfi skaltu útskýra af hverju þig langar
til að hætta. Ekki tala illa um fyrri vinnuveitendur.
Hvenær varstu ánægðust/ánægðastur í starfi?
Tilgangurinn með þessari spurningu er að komast að því
hvað drífur þig áfram og hvers konar starf hentar þér best
Svaraðu af hreinskilni.
Hvað hefur þú fram yfir aðra umsækjendur?
Hvað gerir þig öðruvísi en aðra? Dragðu saman reynslu
þína, hæfileika og persónulega eiginleika.
Hvaða þrjú jákvæðu lýsingarorð myndi fyrrverandi
yfirmaður þinn nota til að lýsa þér?
Þarna færðu tækifæri til að monta þig aðeins, án þess að
virka allt of grobbin/n, með því að lýsa þér með orðum
annarra.
Hvaða laun viltu fá?
Yfirleitt er talið betra að vinnuveitandinn hafi frumkvæði
að því að nefna ákveðna tölu. Vertu búin/n að undirbúa
þig og hafðu á hreinu hver meðallaunin eru í viðkomandi
grein og hversu lágt þú ert ekki tilbúin/n að leggjast.
Ef þú værir dýr, hvaða dýr myndirðu vera?
Sálfræðileg spurning sem er notuð til að prófa hversu fljótt
fólk er að hugsa. Ef þú svarar „kanína” gætirðu virkað of
mjúk/ur. „Ljón” gefur aftur á móti til kynna að þú sért
árásarhneigð/ur.