24 stundir - 07.06.2008, Blaðsíða 41
Eftir Heiðdísi L. Magnúsdóttur
heiddis@24stundir.is
Mesta skammarstrikið
fyrr og síðar?
Þegar ég var 11 ára og var að fífl-
ast með dartpílu ásamt góðri vin-
konu minni eftir skóla. Þegar við
höfðum fengið leiða á því að skjóta í
korkspjaldið ákvað ég að taka leik-
inn lengra og skaut á stórt olíumál-
verk á striga sem mamma og pabbi
eiga. Það kom gat. Ég dó ekki ráða-
laus og tippexaði í gatið. Enginn
fattaði neitt. Þrettán árum síðar, eða
um það leyti sem ég flutti að heim-
an, hreinsaði ég samvisku mína af
glæpnum og sagði foreldrum mín-
um frá þessu. Þau eru enn að leita
að „viðgerð“ minni á málverkinu.
Mohahahaa …
Hvaða lifandi manneskju lít-
urðu upp til og hvers vegna?
Lóu afasystur á Englandi. Hún er
88 ára, ekkja, eldhress, stór-
skemmtileg og man allt. Hún spilar
bridge og veðjar á hesta milli þess
sem hún vinnur góðgerðarstörf og
fer í kokteilboð og veislur með vin-
konum sínum. Þær kalla sig The
Merry Widows, drekka púrtvín út í
eitt en eru aldrei fullar.
Stærsti sigurinn?
Hann er ekki unninn enn.
Mestu vonbrigðin?
Þau hafa heldur ekki látið á sér
kræla.
Hvernig tilfinning er ástin?
Eins og endalaust vor.
Hefurðu einhvern tíma lent í
lífshættu?
Nei, sem betur fer aldrei. A.m.k.
ekki svo ég hafi vitað af. Er frekar
varkár manneskja.
Hvaða hluti í eigu þinni met-
urðu mest?
Ég met dauða hluti ekki mikils.
En ef ég verð að nefna eitthvað er
það sennilegast bangsinn minn,
hann Bangsímon. Fékk hann frá
Steinunni föðursystur á fæð-
ingardeildinni, 24 stunda
gömul. Hann hefur verið í bóli
mínu síðan. Hann stendur alltaf
með mér sama hvernig blæs … og
er alltaf næs.
Ef þú byggir yfir ofurmannleg-
um hæfileikum, hverjir væru þeir?
Þá gæti ég gert mig ósýnilega.
Ætti góðan huliðshjálm. Það kæmi
sér oft rosalega vel fyrir mig að
vera ósýnileg, sérstaklega í starfi
mínu. Þá gæti ég verið á alls
konar fundum og þannig án
þess að neinn myndi fatta neitt.
Hvað gerirðu til að láta þér
líða vel?
Elda góðan mat og býð til
mín skemmtilegu fólki. Þegar það
er farið læt ég renna í heitt bað og
hugsa um hvað ég er heppin. Ég á
frábæra fjölskyldu og vini, heil-
brigðan líkama, er í stórskemmti-
legu starfi og hlakka til morgun-
dagsins.
Hefurðu einhvern tíma bjargað
lífi einhvers?
Ekki í bókstaflegri merkingu. En
vinir mínir segja mig ráðagóða og
hafa þakkað fyrir sig með þessum
orðum.
Skrýtnasta starfið?
Starfið sem ég er í núna. Veit
aldrei í hverju ég lendi í vinnunni.
Hef flogið í þyrlu, stokkið í sjóinn úr
varðskipi, reifað hæstaréttardóm og
talað við leikskólabörn á Tjarnar-
borg um þemavikuna þeirra – allt
á sama deginum!
Hvað myndi ævisagan þín
heita?
Úff … er ekki viss. Á vakt-
inni – ævi og störf Maríu Sig-
rúnar … eða er það kannski
of dæmigert?
Hver myndi leika
þig í kvikmynd
byggðri á ævi
þinni?
Ég sjálf. Ég
myndi bara
nota svið-
snafnið
Maria
Hilm-
ary, því
fram-
leið-
endur-
nir
myndu
að sjálf
María Sigrún Hilmarsdóttir fréttamaður
Á meðan stór hluti lands-
manna situr á rassinum
fyrir framan tölvuskjáinn
í vinnutímanum flýgur
María Sigrún Hilm-
arsdóttir, fréttamaður á
fréttastofu Sjónvarps, í
þyrlu eða stekkur í sjóinn
úr varðskipi.
Huliðshjálmur
kæmi sér vel
24stundir LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2008 41
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is a
Þrettán árum síðar, eða um það leyti sem ég
flutti að heiman, hreinsaði ég samvisku mína
af glæpnum og sagði foreldrum mínum frá þessu.
„María Sigrún er alltaf afskaplega
kát og jákvæð,“ segir faðir henn-
ar, Hilmar Þór Björnsson arki-
tekt. „Hún er svolítið suðræn í
hegðun, smellir gjarnan kossi á
fólk og ber virðingu fyrir tilfinn-
ingum annarra. Hún fylgist vel
með gamla fólkinu í fjölskyld-
unni. Hún er t.d. í miklu betra
sambandi við föðursystkini mín
en ég. Hún hringir reglulega í þau
og veit alltaf ef einhver þarf að
fara til læknis eða slíkt. Þetta
finnst mér sérstakt.
Góð við
gamla fólkið
Elín Hirst, yfirmaður Maríu Sig-
rúnar, gefur henni bestu ein-
kunn: „Hún er skemmtileg, dug-
leg og falleg ung kona sem á eftir
að ná langt í fréttamennskunni.
Hún er mjög vönduð manneskja,
afar skýr í kollinum og á auðvelt
með að sjá það sem fréttnæmt er í
hlutum sem hún fær til umfjöll-
unar. Hún er stöðugt að sýna
framfarir og verða betri og betri í
sínu fagi.“
Vönduð
manneskja
Svanhvít Friðriksdóttir, vinkona
Maríu Sigrúnar og verkefnastjóri
hjá Baugi Group, segir hana frá-
bæra vinkonu og ótrúlega
skemmtilega. „Hún er mikill
húmoristi og við hlæjum oft eins
og vitleysingar saman. Það er
gaman að ferðast með henni. Það
er alltaf hægt að leita til Maríu
Sigrúnar, hvort sem um er að
ræða jákvæða eða neikvæða hluti
í lífinu. Hún vill alltaf aðstoða og
er virkilega traustur vinur.
Mikill húmoristi
og skemmtileg
yfirheyrslan