24 stundir - 07.06.2008, Blaðsíða 42
42 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2008 24stundir
Heiðdís Lilja
Magnúsdóttir
heiddis
@24stundir.is
HELGARVIÐTAL
R
igningin bókstaflega
fossar af himnum ofan
þegar Anna Mjöll kem-
ur hlaupandi eftir gang-
stéttinni í gallabuxum,
íþróttatreyju og bandaskóm og
opnar dyrnar að gítarskóla föður
síns í Síðumúlanum. Hún er með
hárið tekið upp í tagl og á kolli
hennar eru sólgleraugu, sem eru
álíka viðeigandi í rigningunni og
kuldabomsur á baðströnd. Sólskin-
ið fyrr um daginn búið að víkja fyr-
ir þungbúnum himingráma. Ís-
lenskt veðurfar í hnotskurn.
Dyntótt og óútreiknanlegt.
Eitthvað annað en sólskinsblíð-
an í Los Angeles þar sem Anna
Mjöll er búsett. Hún hefur búið
þar í 16 ár en er komin hingað til
lands til að koma fram á djasstón-
leikum með föður sínum, Ólafi
Gauki, á veitingastaðnum Sólon í
kvöld.
Einhvern veginn tekst Önnu
Mjöll að stimpla inn vitlaust núm-
er á þjófavarnarkerfinu og ærandi
sírenuhljóð tekur að hljóma um
allt hús.
„Ó, nei! Þetta gerist alltaf,“ segir
hún, ögn vandræðaleg. „Svo man
ég aldrei leyniorðið þegar ég þarf
að hringja í Securitas til að fá þá til
að slökkva á þjófavörninni. Ég er
farin að segja bara „Hæ, þetta er
Anna Mjöll“,“ segir hún brosandi.
Sem betur fer birtist pabbi hennar
von bráðar með rétta lykilorðið á
reiðum höndum og bjargar okkur
frá því að missa heyrn fyrir aldur
fram.
Anna Mjöll er jafnlítil og fíngerð
og ég hafði ímyndað mér. Hlátur-
mildur söngfugl sem hefur m.a.
ferðast um allan heim með tónlist-
armanninum Julio Iglesias en lifir
nú rólegheitalífi og nýtur þess að
rækta sambandið við manninn
sinn og sinna eigin tónlist. Ólafur á
að baki farsælan feril sem einn
helsti gítaristi, upptökustjóri og
tónskáld landsins.
„Við hlökkum mikið til tón-
leikanna en þeir eru upphitun fyrir
djasshátíð sem verður haldin í
Reykjavík í lok ágúst. Það eru mörg
ár síðan við komum fram saman
síðast,“ segja þau kát.
Með þeim í kvöld spila úrvals-
djassleikararnir Guðmundur
Steingrímsson á trommur, Þorleif-
ur Gíslason á tenórsaxófón og Þor-
grímur Jónsson á bassa. Anna
Mjöll segist vera komin aftur á
heimaslóðir í djassinum en hún er
nú að leggja lokahönd á nýjan
geisladisk sem kemur út með
haustinu.
„Ég byrjaði í djassinum og von-
andi verð ég þar áfram. Það er svo
góður staður,“ segir hún. „Maður
verður að finna sína réttu hillu.“
„Eruð þér að detta í sundur?“
Ólafur Gaukur tók burtfararpróf
í tónsmíðum og útsetningum frá
Grove School of Music í Bandaríkj-
unum árið 1984 og lauk sérnámi í
tónsmíðum frá sama skóla 1988.
Djassinn átti alltaf hug hans og
hjarta og hljómaði löngum stund-
um í Kvistalandinu, æskuheimili
Önnu Mjallar. Að sjálfsögðu var
það pabbi sem kynnti henni djass-
standardana. Það var þó ekki það
eina.
„Ég kynnti hana fyrir Bandaríkj-
unum líka. Það er eiginlega mér að
kenna að bæði börnin mín, Andri
og Anna Mjöll, eru búsett þar,“
segir hann en Andri býr á austur-
ströndinni ásamt konu og tveimur
börnum og starfar sem skurðlækn-
Sorg, sigrar og sjúbídú
Þau eru vinir, samstarfs-
félagar og feðgin. Eins og
tvær hliðar á sama ten-
ingnum. Fíla dillandi
djass, vita fátt verra en
rólegheit en finna ham-
ingjuna hríslast um sig
þegar það er brjálað að
gera. Anna Mjöll Ólafs-
dóttir og Ólafur Gaukur
ræða um latínósjarmöra,
rússneska rudda og lífs-
ins ólíku leiðarstef.