24 stundir - 07.06.2008, Síða 44
um og ég gat notið mín í því að út-
setja fyrir hana. Núna er engin
hljómsveit lengur og allt orðið flat-
ara,“ segir Ólafur Gaukur.
Horfðuð þið á keppnina núna?
„Já, ég horfði á þetta í tölvunni.
Regína og Friðrik Ómar voru frá-
bær. Ég held að við eigum ekki séns
í þetta lengur vegna þess hversu
ólíkir heimar Austur- og Vestur-
Evrópa eru,“ segir Anna Mjöll.
„Þetta er ekki sönglagakeppni
lengur, heldur keppni um sniðug-
asta textann og flottasta showið. Ís-
lenska lagið var vel flutt og vel unn-
ið,“ bætir Ólafur Gaukur við.
Í kjölfar Eurovision vakti Anna
Mjöll töluverða athygli í þjóðfélag-
inu. „Það var bara gaman. Í byrjun
var ég svolítið næm fyrir því sem
var skrifað um mig. Tók gagnrýn-
inni persónulega. Það er samt alltaf
gott að fá góða gagnrýni.“
„Frá þeim sem hafa kunnáttu til
að gagnrýna,“ skýtur faðir hennar
inn í. „Gagnrýnendur þurfa að vera
hámenntaðir og mjög víðsýnir.“
„En þetta var gaman og mikill
heiður að fá að taka þátt í þessu
fyrir Íslands hönd. Ég bý enn að
þeirri reynslu,“ segir Anna Mjöll.
Ári síðar hófst annað ævintýri í
lífi hennar en þá fékk hún vinnu
sem bakraddasöngkona hjá stór-
söngvaranum Julio Iglesias.
„Ég hafði verið að syngja í partíi
og einhver þar lét Julio fá númerið
mitt. Á þessum tíma var búið að
loka fyrir rafmagnið hjá mér úti í
L.A. og það átti að fara að loka sím-
anum. Ég var að væla yfir þessu eitt
kvöldið, fór daginn eftir og keypti
mér farmiða til Íslands en þegar ég
kom heim voru skilaboð á símsvar-
anum. Til að gera langa sögu stutta
var mér boðið að koma og syngja
með Julio Iglesias. Fyrst hélt ég að
einhver væri að grínast í mér en
viku seinna var ég komin í áheyrn-
arprufur til Miami. Eftir þær var
mér sagt að pakka niður. Ég væri á
leiðinni til Vegas.“
Við tók þriggja ára tónleika-
ferðalag um heiminn með Julio.
Ólafur Gaukur og kona hans,
Svanhildur Jakobsdóttir, hittu
hann eftir eina tónleikana í Vegas.
„Julio var mjög spenntur að hitta
foreldra mína. Svítan hans var full
af fólki svo eini staðurinn, þar sem
hægt var að fá næði, var lítið kló-
sett við hliðina á henni. Hann dró
okkur þangað inn, settist sjálfur á
klósettið og svo töluðum við sam-
an þar,“ segir Anna Mjöll.
„Fyrirfram var ég ekkert hrifinn
af honum sem tónlistarmanni en
svo sá ég ferna tónleika með hon-
um og núna finnst mér hann mjög
góður,“ segir Ólafur Gaukur.
Hver er minnisstæðasta uppá-
koman úr tónleikaferðinni?
„T.d. þegar okkur var skipað að
hitta Alexander Lúkasjenkó, for-
seta Hvíta-Rússlands, eftir sýningu
þar í landi. Þar vorum við látin
setjast til borðs með honum, Alex-
ander mér á hægri hönd en Julio á
þá vinstri. Á móti okkur sat utan-
ríkisráðherrann sem skalf eins og
hrísla af hræðslu við forsetann. Al-
exander vildi að allir skáluðu í
vodka. Ég tók smásopa en þá sagði
hann: Nei, nei, þú móðgar þjóð
okkar ef þú drekkur þetta ekki allt!
Við skelltum þessu í okkur. Ég hef
aldrei drukkið svona vodka áður,
drykkurinn bókstaflega brenndi
okkur að innan. Svo var farið að
hella aftur í staupin en Julio sagði:
Veistu það, ég dey ef ég þarf að
drekka meira! Þá sagði Alexander:
Ég ætla að taka stelpurnar með mér
í ferð í nóvember. Julio var sem
betur fer fljótur að hugsa, sagði að
við værum því miður að vinna í
nóvember og reddaði okkur þann-
ig út úr þessu.“
„Á þessum tíma vildum við helst
heyra í henni á hverjum degi.
Stundum var það ekki hægt og þá
vorum við að drepast úr hræðslu,“
segir Ólafur.
Árið 2000 hætti Anna Mjöll að
syngja með Julio Iglesias.
„Þetta var gaman á meðan á
þessu stóð en ég var orðin þreytt.
Við ferðuðumst að meðaltali í tíu
mánuði á ári. Ég fór aftur til L.A.
þar sem ég vann m.a. við að syngja
í Barbie-auglýsingum fyrir Mattel
og Disney Channel.
Íslendingar spyrja gjarnan „hvað
ertu að gera núna“ á meðan
Bandaríkjamenn spyrja frekar
„hvernig hefurðu það“? Kannastu
við þetta?
„Það er nokkuð til í þessu.
Reyndar spyr fólk í L.A. líka hvað
maður sé að gera. Kannski er öðru-
vísi andi þar en annars staðar í
Bandaríkjunum. Ég tek samt eftir
breytingu hér á landi. Allir eru
orðnir svo kurteisir og jákvæðir í
búðum og bakaríum.“
En hvað ertu að gera núna? Og
hvernig hefurðu það?
Hún hlær hjartanlega. „Ég er allt-
af að búa til einhver lög og skrifa
tónlist. Eiginmaður minn er tónlist-
armaður og við erum með stúdíó
heima hjá okkur. Ég hef það svaka
fínt. Svo lengi sem ég hef eitthvað
að gera þá er ég hamingjusöm.“
Ástin bankar upp á
Umræddur eiginmaður er Neil
Stubenhaus bassaleikari en honum
kynntist Anna Mjöll í L.A.
„Við kynntumst í gegnum sam-
eiginlegan vin eitt kvöldið árið
1997 og náðum vel saman. Við er-
um mjög lík. Kannski of lík. Erum
á mjög svipaðri bylgjulengd.“
Neil er einn besti bassaleikarinn
í L.A., svokallaður A-lista-leikari
sem hefur komið fram með tónlist-
armönnum á borð við Aliciu
Keyes, Donnu Summer, Quincy
Jones og Barbra Streisand. Í ágúst
er hann væntanlegur á Djasshátíð í
Reykjavík.
Eigið þið börn?
„Nei! En við eigum hunda. Gild-
ir það?“ spyr hún.
Heldur betur. Hvernig hunda
eigið þið?
„Þeir eru þessi fræga blanda:
„Það veit enginn“. Þeir segja voff
og hafa fjóra fætur. Við fundum þá
á hundahæli. Þeir eru líka ljósið
mitt.“
„Svona hundar eru betri en
nokkur Securitas-vörn,“ bendir
Ólafur á. „Þeir eru alltaf á verði.“
„Það er rétt! Svo eru þeir vinir
manns. Það er ekkert eins og góðir
voffar. Nema kannski ísbirnir?“
segir Anna Mjöll sposk á svipinn.
Anna Mjöll er mikill dýravinur
og segir að eitt það erfiðasta sem
hún hafi gengið í gegnum í lífinu
hafi verið að missa þá hunda sem
hún hefur átt í gegnum tíðina. Slík-
ur missir sé áfall á vissan hátt.
Í lífi Ólafs Gauks hafa skipst á
skin og skúrir. Dúr og moll. Fyrir
aðeins einum og hálfum mánuði
lést dóttir hans sem hann eignaðist
í sínu fyrra hjónabandi. Einnig
syrgir hann nú góðan vin sinn,
Kristján Kristjánsson, stofnanda
KK-sextetts. Þau feðgin leika ein-
mitt lag honum til heiðurs í kvöld.
„Það eru sorgir víða. En dauðinn
er hluti af lífinu og maður verður
bara að reyna að skilja það. Það er
nokkuð sem við verðum öll að
gangast undir. Ég er að vonast til að
það sé eitthvert líf eftir dauðann,“
segir Ólafur Gaukur.
„Ég held að það sé voða margt
sem við vitum ekkert um,“ segir
Anna Mjöll.
Hafið þið leitað eftir staðfest-
ingu á slíku?
„Nei, en ég fór einu sinni með
vinkonu minni í dáleiðslu. Hún
ætlaði að láta dáleiða sig til að
finna út hver hún hefði verið í fyrri
lífum og ég átti að vera vörðurinn
hennar. Svo byrjaði maðurinn að
dáleiða. Ég náttúrlega vaknaði ein-
um og hálfum tíma seinna!“ segir
Anna Mjöll og skellihlær. „Ég
skynjaði ekkert. En þetta var fínt.
Ég var samt ekki ráðin aftur sem
vörður.“
Ólafur segist vantrúaður á þess
háttar fyrirbæri. „En við skiljum
ekki allt. Við getum alveg bókað
það.“
Þegar Anna Mjöll er beðin um
að lýsa föður sínum orðar hún það
m.a. þannig að hún hafi valið hann
mjög vel.
Hvað áttu við með því?
„Ég fór einu sinni til spákonu og
hún sagði: Þú valdir foreldra þína.
Af því þú vissir að þau myndu
skilja þína leið í lífinu. Þau hafa
þolað öll uppátækin í mér. Eitthvað
hlýtur að vera til í þessu.
„Annað hvort stendur maður
með vinum sínum eða ekki,“ segir
Ólafur ákveðinn og horfir hlýlega á
dóttur sína.
Dóttirin ranghvolfir augum.
„Það eru nú takmörk.“
24stundir/Valdís Thor
a
Við kynntumst í
gegnum sameig-
inlegan vin eitt kvöldið
árið 1997 og náðum vel
saman. Við erum mjög
lík. Kannski of lík. Erum á
mjög svipaðri bylgju-
lengd.
44 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2008 24stundir
Anna Mjöll
um Ólaf Gauk:
Með fullkomnunaráráttu,
risastórt hjarta, mjög næmur,
alltaf skapandi og opinn fyrir
öllu nýju. Besti pabbi í heimi.
Ólafur Gaukur
um Önnu Mjöll:
Skynsöm, harðdugleg, mús-
íkölsk og góð stúlka.
a
En dauðinn er hluti
af lífinu og maður
verður bara að reyna að
skilja það. Það er nokkuð
sem við verðum öll að
gangast undir.
Í húsnæði gítarskólans
„Það eru mörg ár síðan við
komum fram saman síðast.“