24 stundir - 07.06.2008, Blaðsíða 50
50 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2008 24stundir
Güde er þýskt fjölskyldufyrirtæki sem
framleiðir hágæða hnífa samkvæmt alda-
gamalli hefð. Hver hnífur er handsmíðaður
frá grunni og sérstaklega hertur svo bitið
haldist sem best. Kokka býður upp á
Güde hnífa af ýmsum stærðum og gerðum.
JÓ
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
Sker
sig úr
náttúrlega yfir á okkur. Ég reyni að
elda á hverju kvöldi, svo fremi sem
ég er ekki boðinn í mat eða er ekki
að vinna. Ég reyni líka að hafa alltaf
eitthvað nýtt í matinn og prófa
nýja hluti en mér finnst íslenskt
lambakjöt og íslenskt lambalæri
alltaf vera frábært,“ segir Ragnar og
bætir við að ofnbakaður kjúklingur
sé í sérstöku uppáhaldi.
Heilt bókasafn af uppskriftum
Ragnar segist lesa mikið af upp-
skriftum þótt hann fylgi þeim ekki
þegar hann eldar. „Ég les mikið af
matreiðslubókum, horfi á mat-
reiðsluþætti og viða að mér hug-
myndum. Ég á orðið mjög gott
bókasafn af matreiðslubókum og
ég er alltaf að reyna að viða ein-
hverju að mér. Svo verður eitthvað
til í eldhúsinu sem er stundum
byggt á einhverju öðru en stundum
er það spunnið upp jafnóðum. Ef
hráefnið er gott þá verður eitthvað
gott til. Án góðs hráefnis þá verður
enginn almennilegur matur eldað-
ur. Það skiptir gríðarlega miklu
máli að vera með mikið af ferskum
kryddjurtum, góðum olíum, ferskt
hráefni og grænmeti sem ég held
að sé algjört aðalatriði,“ segir
Ragnar Freyr sem hefur líka mik-
inn áhuga á léttvíni. „Vínáhuginn
fer óþægilega vel saman við mat-
aráhugann,“ segir Ragnar og hlær.
„Mér finnst mjög gott að drekka
léttvín og það má eiginlega segja að
matreiðsluáhuginn hafi getið af sér
vínáhuga. Þetta fylgist mikið að og
þá fer maður að drekka betri vín og
aðeins að spá og spekúlera hvað
maður er að láta ofan í sig.“
Ragnar Freyr Ingvarsson:
„Ég les mikið af mat-
reiðslubókum, horfi á mat-
reiðsluþætti og viða að mér
hugmyndum.“
Ragnar Freyr Ingvarsson bloggar reglulega um matargerð
Rétta hráefnið
er aðalatriðið
Ragnar Freyr Ingvarsson
læknir hefur mikinn
áhuga á matseld og held-
ur úti bloggsíðu á netinu
þar sem hann fjallar um
eldamennsku. Blogg-
síðan er mjög vel sótt og
allt að 1400 manns skoða
hana daglega.
➤ Ragnar Freyr hefur bloggaðum matreiðslu í eitt og hálft
ár og hefur skrifað nálægt
200 færslum á þeim tíma.
➤ Hann byrjaði að blogga ummatseld vegna þess að hon-
um fannst hann vera staðn-
aður í eldhúsinu og væri allt-
af að elda sömu réttina aftur.
➤ Um 3000-4500 manns lesasíðu Ragnars á viku.
➤ Ragnar bloggar um mat áwww. ragnarfreyr.blog.is
BLOGGIÐ
Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu
svanhvit@24stundir.is
Ragnar Freyr Ingvarsson læknir
hefur haft áhuga á matargerð síðan
hann var unglingur en viðurkennir
að áhuginn hafi aukist umtalsvert
þegar hann fór að búa. „Það má
segja að síðustu árin sé þetta orðin
hálfgerð þráhyggja. Foreldrar mín-
ir hvöttu mig og bróður minn til að
læra að elda og verða sjálfbjarga og
sem unglingar byrjuðum við að sjá
um eina máltíð í viku og það þró-
aðist svona. Þau eru bæði mjög
áhugasöm um mat og hafa verið
mjög frumleg í gegnum árin, að
prófa nýja hluti og það smitast
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is matur
Ein þekktasta og virtasta víngerð Suður-Afríku, Bon Courage, hefur verið í eigu Bruwer-
fjölskyldunnar síðan 1818 þó að hún hafi ekki hlotið núverandi nafn fyrr en
1983. Feðgarnir og víngerðarmennirnir André og Jacques Bruwer leggja mikið
upp úr flaggskipalínunni Inkará. Nafn línunnar er óður til næstu kynslóðar vín-
gerðarmanna þar sem það er dregið af nöfnunum Inge, Karl og André, börnum
Jacques.
Uppskeran fer fram á nóttunni til að koma í veg fyrir hitastigsbreyt-
ingar í þrúgunum fyrir gerjun. Vínið er svo látið liggja á nýrri franskri
eik í 18-24 mánuði.
Opið í nefi með áberandi plómum, döðlum, mórberjum, myntu og
eucalyptus. Eikin er afgerandi með súkkulaði, espresso og reyktón-
um. Flókið í munni með einkennum sem minna helst á líkjörslegna
ávexti, sæt krydd og sólber svo eitthvað sé nefnt. Silkimjúk liðug
tannín fylgja löngum krydduðum endi.
Gífurlega stórt og mikið vín með kraft sem mætti mæla í hest-
öflum. Það er klárt strax en geymist vel næstu 7-8 ár. Pottþétt val
með nautakjöti með þungum soðgljáa og villisveppum, allskyns villi-
bráð og veigameiri ostum. Þrúga: Shiraz. Land: Suður-Afríka. Hérað:
Robertson.
Vín vikunnar
Elísabet Alba
Valdimars-
dóttir vínþjónn
Bon Courage Inkará Shiraz 2005