24 stundir - 07.06.2008, Page 54
„Við höfum gefið út tvær plöt-
ur, Góðir farþegar árið 2001 og
Selfoss árið 2004. Þær seldust ekki
mikið og ég held að við eigum
flest eintökin ennþá,“ segir Pétur
og hlær. „Reyndar auglýstum við
plöturnar ekkert. Þessi plata verð-
ur aftur á móti mjög skemmtileg
og vonandi sú mest auglýsta.
Framan af sáum við sjálfir um að
bóka bandið og gera allt en núna
er Páll Eyjólfsson hjá Prime um-
boðsmaður okkar. Hann er búinn
að gera kraftaverk og við gátum
því einbeitt okkur að því að gera
plötuna.“
Ásamt Pétri eru Bergur Geirs-
son, Stefán Örn Gunnlaugsson,
Einar Þór Jóhannsson og Hannes
Heimir Friðbjarnarson meðlimir í
Buffi en hljómsveitin tók plötuna
upp í Danmörku. „Það var ótrú-
lega gott að vera þar og ég var
berfættur á náttbuxunum í fimm
daga. Það var ekkert sem truflaði
því þetta var bara einhver sveita-
bær og það var ekkert í kringum
hann. Við hefðum aldrei getað
gert þessa plötu ef við hefðum
tekið hana upp á Íslandi enda tók
okkur átta mánuði að gera síð-
ustu plötu. Okkur langaði að gefa
út plötu og gera tónlist, það er
ekki nóg að spila bara á böllum.
Ég held að við getum gert
skemmtilegt popprokk, ekkert
merkilegra en það en samt eitt-
hvað skemmtilegt.“
Af glæpabrautinni ungur
Það má segja að líf Péturs hafi
verið markað frá upphafi þar sem
hann fæddist inn í mikla söng-
fjölskyldu. Faðir hans, Guðmund-
ur Benediktsson, var í hljómsveit-
inni Mánum og Brimkló og
amma hans var píanókennari sem
kenndi allri fjölskyldu sinni að
spila. Þó segir Pétur með kímni í
röddinni að það sé helst eitt atvik
sem hafi mótað hann fyrir lífstíð.
„Þegar ég var tíu ára þá var ég
með tveimur tólf ára vinum mín-
um. Þeir drógu mig í Blómaval í
Sigtúni og brutust inn. Lögreglan
kom og handtók okkur og
mamma og pabbi þurftu að sækja
mig á lögreglustöðina. Ég var
miður mín og vissi ekki af hverju
ég hafði gert þetta og af hverju ég
lét plata mig. Amma frá Selfossi
kom og sagði þessi ógleymanlegu
orð: „Elsku drengurinn, elsku
drengurinn, af hverju gerirðu
svona, þú sem ert svo góður.“ Það
þurfti ekki meira til, ég brotnaði
saman og hágrét. Þetta atvik ýtti
mér af glæpabrautinni og eftir
þetta hef ég aldrei íhugað glæpi.“
Þess í stað tók Pétur þá ákvörðun
árið 1993 að hætta í Háskóla Ís-
lands og taka tónlistina alvarlega.
Hann segir að það hafi ekki kom-
ið neinum á óvart og síst af öllu
foreldrum hans sem höfðu hálf-
partinn beðið þess að hann
myndi átta sig á hvar hjarta hans
lægi. „Fyrir utan sönginn spila ég
á gítar og píanó. Mig hefur alltaf
langað að læra á fleiri hljóðfæri
en ég lærði mestmegnis sjálfur á
hljóðfærin þótt ég hafi fengið
mikla aðstoð frá pabba.“
Tilbreytingin best
Aðspurður hvort Pétur hafi
meira gaman af því að syngja eða
spila á hljóðfæri segir hann að
honum finnist hvort tveggja
skemmtilegt en á ólíkan hátt. „Í
raun syng ég mun meira en ég
spila. Ég er í tveimur hljómsveit-
um, annars vegar Buffi og hins
vegar í hljómsveit sem heitir
Dúndurfréttir. Mér finnst alltaf
gaman að syngja en það getur líka
verið mjög þægilegt að vera til
baka. Þegar Dúndurfréttir spila
þá er Matthías Matthíasson að-
alsöngvari á móti mér og þegar
hann syngur þá finnst mér voða
gaman að geta sleppt mér á org-
elinu án þess að þurfa að hafa
áhyggjur af því hvar míkrófónn-
inn er. Tilbreytingin er svo
skemmtileg. Þessar hljómsveitir
eru mjög ólíkar, í Buffinu spilum
við á hverri árshátíðinni á fætur
annarri og stundum eru þetta lög
sem ég sjálfur hef takmarkaðan
áhuga á en verð að spila til að
koma fólki á dansgólfið. Dúnd-
urfréttir eru meira svona tóm-
stundagaman sem ég og Matti
stofnuðum til að spila uppáhalds-
tónlistina okkar. Svo við þyrftum
ekki að hafa áhyggjur af því hvað
fólkið úti í sal segði og við gætum
bara gert það sem okkur sýndist.
Dúndurfréttir eru mun meiri
tónleikahljómsveit á meðan Buff
er meiri ballhljómsveit.“
Bítlarnir sameina Buffið
Í núverandi mynd hefur Buff
spilað saman í fjögur ár og Pétur
segir að þeir hafi verið mjög
heppnir í gegnum tíðina. Við er-
haust kemur þriðja breið-
skífa hljómsveitarinnar
Buff út en þegar hafa
þrjú lög af plötunni
heyrst á öldum ljósvak-
ans og hlotið þó nokkra
spilun. Enda segist einn
söngvara Buffs, Pétur Örn
Guðmundsson, ætla að
eiga sem fæst eintök af
plötunni þegar yfir lýkur.
54 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2008 24stundir
Pétur Örn stefnir á sólóplötu eftir nokkur ár
Eftir Svanhvíti
Ljósbjörgu
svanhvit@
24stundir.is
VIÐTAL
Rólyndismaður
á náttbuxum