24 stundir - 07.06.2008, Page 58
58 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2008 24stundir
Mikki Mús
Dýragarðurinn
MATURINN VAR
ALVEG FRÁBÆR!
KOMDU MEÐ MÉR INN Í
STOFU OG SESTU VIÐ
PÍANÓIÐ. GUFFI GETUR SETT
UPPÞVOTTAVÉLINA
Í GANG
TÆKNIN ER SVO FRÁBÆR GUFFI, ÉG ÞARF NÚ VARLA AÐ
SEGJA ÞÉR AÐ RUGLA EKKI
ÞVOTTAVÉLINNI OG UPPÞVOTTA-
VÉLINNI SAMAN! HA! HA!
HA! HA!
UPP-
ÞVOTTA-
VÉL
ÞVOTTAVÉL
Tvíburasysturnar Elísabet og
Margrét Friðriksson ganga í fyrsta
bekk í Fossvogsskóla og segjast ald-
eilis ætla að skemmta sér í sumar.
„Við getum hoppað á trampólíni í
garðinum,“ segir Elísabet. „Svo
ætlum við til Kaupmannahafnar,
Ísafjarðar og í Legoland,“ bætir
hún við. „Ég hlakka svo til að fara í
Legoland,“ segir Margrét og báðar
skella þær upp úr af einskærri til-
hlökkun.
En skyldi þeim stundum finnast
flókið að vera tvíburasystur? „Nei,
það er svo gaman,“ segir Elísabet.
„Sumir í skólanum vilja helst að
við séum með nafnspjald í frímín-
útum.“
„Aðallega strákarnir,“ bætir
Margrét við.
Spurðar um á hverju þær hafi
helst áhuga hrópa þær báðar ein-
um rómi: „Drekum!“
„Ég elska dreka,“ segir Margrét.
„Frostdrekar frá Grænlandi eru
ægilega fallegir,“ segir Elísabet og
bætir því við að í skólanum séu
tvær stelpur til viðbótar sem hafi
líka áhuga á drekum.
„Við erum í leynifélagi með
þeim,“ bætir hún við leyndar-
dómsfull á svip. „Það má ekki segja
neitt meira um það,“ leggur hún
áherslu á.
„En við eigum rauða drekaskó,“
segir Margrét til að dreifa athygli
blaðamanns frá háleynilegu leyni-
félagi og bendir á fætur þeirra sem
prýddir eru afskaplega fínum rauð-
um skóm með myndum af kín-
verskum drekum.
dista@24stundir.is
Tvíburasysturnar Elísabet og Margrét rífast aldrei!
Hafa mestan áhuga á drekum
Við erum bestu vinkonur!
„Krakkarnir í skólanum ruglast
oft á okkur,“ segir Margrét.
„En það er bara skemmtilegt,“
bætir Elísabet við.
GÆLUDÝRIÐ MITT
VÍSINDAHORNIÐ
-Að í Bretlandi ratar ein af hverj-
um fjórum kartöflum djúpsteikt
á matardisk Breta.
-Ef það væri mögulegt að standa
á Plútó þá virtist sólin ekki vera
mikið skærari en stjarnan Venus
á næturhimni okkar.
-Að Kermit froskur í Prúðuleik-
urunum er nefndur eftir æsku-
vini Jim Hendersons, Kermit
Scott, sem starfaði lengi sem pró-
fessor í heimspeki við Purdue-
háskóla í Bandaríkjunum.
Tyggjó bannað í Singapúr
Vissir þú þetta?
„Ég myndi segja að hann sé afar
fjörugur,“ segir Gabríel Eyjólfsson,
9 ára strákur í Vesturbænum, um
hundinn sinn, hinn þriggja ára
gamla Garp. „Hann er oftast hlýð-
inn og góður en stundum stingur
hann af. Einu sinni var hann kom-
inn alla leið út á Ægisíðu,“ segir
Gabríel.
„Garpur kann ýmsar brellur,
hann hendir sér niður á jörðina og
liggur alveg grafkyrr eins og hann
sé dauður ef maður segir hátt og
snjallt: PÆNG! Svo kann hann líka
að skríða og setjast,“ bætir Gabríel
við.
Gabríel segist ætla að hafa það
gott í sumar. „Ég verð á fullu í fót-
boltanum. Þá ætla ég í skóla-
garðana með mömmu og systur
minni henni Glóeyju. Þar ræktum
við kartöflur, radísur, rófur og
hvítkál. Mér fannst skemmtilegast
að taka upp kartöflurnar.“
dista@24stundir.is
Í Vesturbænum má finna ansi fjöruga félaga
Garpur og Gabríel
Hjá okkur fáið þið mikið úrval af
kerrum og vögnum fyrir börnin
Skeifunni 8 - s. 568 2200 - Smáralind - s. 534 2200
www.babysam.is
Skýin sem við sjáum á himn-
inum eru safn örsmárra vatns-
dropa. Þau myndast þegar
vatnsgufa í andrúmsloftinu
kólnar. Við það þéttist hún og
skýin verða til. Þegar loft
streymir upp á við lækkar bæði
þrýstingur og hiti þess. Upp-
streymi verður til
dæmis þegar
vindur lendir á
fjöllum en þá
þvingast loftið
upp á við. Þegar
það gerist kólnar
loftið, vatnsgufan þéttist og ský myndast. En ský-
in eru ekki bara á himninum. Stundum eru þau alveg við jörð-
ina og þá köllum við þau þoku. Þokan tengist auðvitað ekki
uppstreymi heldur oftast kólnun vegna snertingar loftsins við
kalt yfirborð jarðarinnar, til dæmis á fjöllum. Tilviljanakenndar
hreyfingar skýjadropanna leiða stundum til þess að þeir rekast
hver á annan. Við það fækkar dropunum og þeir stækka. Þegar
þeir eru orðnir nógu stórir falla þeir loks til jarðar, annað hvort
sem rigning eða snjókoma.
Með því að setja orðið ský inn
í leitarvél Vísindavefsins má
finna ýmislegt fleira fróðlegt
og skemmtilegt um skýin.
Daníel Heiðar Tómasson 7 ára spyr:
Hvernig verða skýin til?
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is a
Hvað segir feita
músin við kisu?
– Komdu hér, kisi kis …
krakkar