24 stundir - 07.06.2008, Side 70
Eftir Birgi Örn Steinarsson
biggi@24stundir.is
„Já, er það komið?“ spyr Sigurður,
söngvari Ultra Mega Techno-
bandsins Stefáns (eða UMTBS),
undrandi aðspurður um ástæðu
þess að vefsvæðið MySpace mælir
sérstaklega með síðu þeirra. Það er
eflaust ein besta kynning á netinu
sem ung sveit án plötusamnings
erlendis getur fengið þar sem millj-
ónir manna nota kerfið daglega.
„Það var Sigur Rós sem benti á
okkur. Umsjónarmaðurinn var að
vinna eitthvað með þeim og spurði
þá út í íslenska elektrósveit og þeir
bentu víst á okkur. Við erum orðn-
ir miklir aðdáendur þeirra eftir
þetta.“
Eurovision var draumurinn
Þótt ótrúlegt megi virðast var
það æðsti draumur UMTBS að
taka þátt í Eurovision. Lagið 3D
Love sem sveitin sendi frá sér í gær
var samið sérstaklega fyrir for-
keppni Eurovision í fyrra, en lagið
hlaut ekki náð fyrir eyrum þeirra
sem hleypa lögum inn í keppnina.
„Eurovision var aðalmálið. Við
vorum 15 eða 16 ára og bara viss-
um ekki betur. Við ætluðum með
þetta lag í Eurovision og okkar
hugsun náði ekkert lengra en það.“
Siggi segir það hafa verið gíf-
urleg vonbrigði að fá ekki einu
sinni tækifæri til þess að keppa í
forkeppninni og viðurkennir að
sveitin hafi verið nálægt því að
hætta. Hann segir sveitina reyndar
ítrekað hafa ætlað að hætta.
„Við höfum ætlað að hætta
svona tuttugu sinnum. En það
kom alltaf einhver heppni eða röð
tilviljana sem hélt okkur gangandi.
Fyrst Músíktilraunir, svo Airwaves.
Svo þegar við gáfum út fyrsta lagið
okkur, Story for a Star, þá fannst
okkur þetta vera orðið að ein-
hverju alvöru dæmi þar sem fullt af
fólki þekkti lagið.“
Siggi segist vonast til að þegar
fólk heyri nýja lagið velti það því
fyrir sér hvort þetta hefði átt erindi
í Eurovision.
„Hefði ekki verið skárra að
senda þetta út í staðinn fyrir Eirík
Hauksson?“ spyr hann að lokum.
Hægt verður að hlýða á vænt-
anlega breiðskífu UMTBS í heild
sinni á MySpace-síðu þeirra. Plat-
an, sem kemur til með að heita
Circus, hefur ekki hlotið útgáfudag
ennþá og virðist ríkja nokkur
leynd yfir því öllu saman.
Margt í pípunum hjá Ultra Mega Technobandinu Stefáni
Íslenskt teknó er
aðal á Myspace
Það var fyrir tilstilli Sigur
Rósar að MySpace mælir
sérstaklega með síðu
UMTBS þessa vikuna.
Nýtt lag kemur út í vik-
unni, er átti upphaflega
að enda í Eurovision.
Sigur Rós Í aðdáendahópi UMTBS.
UMTBS Þakklátir Sigur
Rós fyrir stórt tækifæri.
70 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2008 24stundir
HAFNAFJARÐARLEIKHÚSINU
ÞÖKKUM FRÁBÆRAR VIÐTÖKUR
SUN 31. ÁGÚST
FIM 4. SEPTEMBER
SUN 7. SEPTEMBER
FIM 11. SEPTEMBER
SUN 14. SEPTEMBER
5 AUKASÝNINGAR Í HAUST
TRYGGIÐ YKKUR MIÐA Í TÍMA
www.mammamamma.netwww.midi.is
„Þetta er skondin frétt um Kaþ-
ólikka á Íslandi, sem virðast ekki
hafa nokkurn húmor fyrir því að
jörðin er ekki flöt, heldur hnött-
ótt. Kannski þeir vilji rétta yfir
Jóni Gnarr – og fá því hnekkt að
jörðin er hnöttótt..... Kannski
ætti Hæstiréttur að úrskurða að
tunglið er ostur.“
Einar Ben Þorsteinsson
einar.eyjan.is
„...skilnaðartíðni á Austfjörðum
hefur snaraukist á tímum virkj-
ana. Það hafa skapast sömu skil-
yrði og í hernáminu hérna um ár-
ið. Enn og aftur hefur það komið
í ljós að karlmenn eru latir og
feitir heima hjá sér en mestu
sjentilmenni að heiman og bera
þá með sér ilm framandi slóða.“
Baldur Kristjánsson
baldurkr.blog.is/blog
„Championship Manager.
Eftir hverju er Björgólfur að
bíða?
Hvað er gaman við að eiga og
stjórna ensku úrvalsdeildarliði, ef
þú getur ekki keypt uppáhalds ís-
lenska leikmanninn þinn og sett
hann í sóknina?“
Andrés Jónsson
andres.eyjan.is
BLOGGARINN
HEYRST HEFUR …
Eitthvað voru upplýsingar á reiki á blaðamanna-
fundi Bjarkar og félaga á fimmtudag þegar tilkynnt
var að Náttúru-tónleikar hennar og Sigur Rósar
yrðu í Grasagarðinum. Rétt er að tónleikarnir verða
ekki í garðinum sjálfum, heldur á bak við hann á
túninu, við gömlu þvottalaugarnar í Laugardal.
Sviðið snýr að brekkunni upp að Áskirkju. Brekkan
myndar þannig náttúrulega stúku fyrir gesti. bös
Næsta hefti Monitor kemur út föstudaginn 13. júní
samkvæmt heimasíðu blaðsins. Lítið er gefið upp
um innihald fyrir utan að Sigur Rós verði á forsíð-
unni og að Ellý Ármanns láti allt flakka í liðnum
Satt og logið. Spurningarnar eiga víst að vera
svæsnar og Ellý hikar ekki við að svara. Meðal ann-
ars svarar hún því hvort hún hafi nokkurn tímann
verið ber að neðan undir þuluborði hjá RÚV. tsk
Á meðan tónleikahaldarar strögla við að ná fólki
inn á tónleika erlendra ellismella virðist Ásgeir Kol-
beinsson ekki vera í neinum vandræðum með að
selja miða á teknóveisluna í Laugardalshöll þann
16. júní. Miðasalan fór af stað með látum síðasta
mánudag og allt útlit fyrir að GusGus, David Gu-
etta og BB&Blake spili fyrir pakkfullri höll af sprikl-
andi teknóaðdáendum. bös
„Þetta eru fernir tónleikar á fjór-
um dögum í fjórum borgum í
tveimur löndum,“ segir Högni Eg-
ilsson, söngvari Hjaltalíns, sem
spilar í Árósum í kvöld en hljóm-
sveitin heldur til Kaupmannahafn-
ar á morgun. Svo er flogið til Bret-
lands þar sem sveitin spilar í
Brighton og London.
Búið er að ganga frá dreifingu
plötu þeirra í Skandinavíu og hlut-
ir virðast vera byrjaðir að rúlla í
Bretlandi þar sem sveitin lék ný-
verið fyrir fullum sal á Time for
Peace-verðlaunaafhendingunni er
verðlaunar sérstaklega fyrir mann-
úðartengd sjónarmið innan kvik-
myndageirans. Margir hafa unnið
verðlaunin í gegnum tíðina, þar á
meðal Steven Spielberg, en í ár var
það Michael Winterbottom
(24Hour Party People og The Road
to Guantanamo) sem var heiðr-
aður.
Hjaltalín var sérstaklega beðin
um að flytja lagið Trees don’t like
Smoke á hátíðinni.
„Þetta hljómaði eins og apíl-
gabb þegar við fengum þennan
póst. Það var undarlegt að lag sem
fjallaði ekkert um svona málefni af
viti væri notað á svona hátíð. Við
spiluðum fyrir þrjátíu sendiherra
frá Sameinuðu þjóðunum sem
voru í verðlaunanefndinni. Ég hélt
smá-tölu yfir liðinu um hvaða
þýðingu það hafði að bera með sér
fjölskyldunafn á Íslandi í gamla
daga. Hvernig það hefði borið með
sér merki yfirstéttarinnar. Hálf
undarlegt fyrir fullum sal af aristó-
krötum. Svolítið fyndið.“
biggi@24stundir.is
Hjaltalín í túr til Danmerkur og Bretlands
Óskasveit alþjóð-
legra aristókrata
Hjaltalín Spiluðu nýverið fyrir fullum sal
af sendiherrum Sameinuðu þjóðanna.
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Su doku
5 4 3 9 6 8 1 7 2
1 6 7 2 3 4 9 5 8
2 8 9 1 5 7 3 4 6
6 5 4 3 8 1 2 9 7
8 3 2 5 7 9 4 6 1
7 9 1 4 2 6 8 3 5
3 1 6 7 4 2 5 8 9
9 7 5 8 1 3 6 2 4
4 2 8 6 9 5 7 1 3
Þetta er fullkomið, Vignir minn.
Sturla, verður þetta einskonar X-L flokkur?
Sturla Jónsson vörubílstjóri hefur stofnað nýjan
stjórnamálaflokk, Lýðræðisflokkinn. Honum hefur þó
enn ekki verið úthlutað listabókstaf.FÓLK
lifsstill@24stundir.is a
Það er nú of snemmt að segja.
En við stefnum á að koma að
minnsta kosti einum manni á þing.
fréttir