24 stundir - 27.08.2008, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 2008 24stundir
VÍÐA UM HEIM
Algarve 27
Amsterdam 18
Alicante 28
Barcelona 27
Berlín 23
Las Palmas 25
Dublin 18
Frankfurt 21
Glasgow 15
Brussel 19
Hamborg 19
Helsinki 16
Kaupmannahöfn 19
London 19
Madrid 31
Mílanó 24
Montreal 13
Lúxemborg 20
New York 18
Nuuk 5
Orlando 24
Osló 16
Genf 23
París 21
Mallorca 29
Stokkhólmur 17
Þórshöfn 14
Suðvestan og sunnan 5-10 metrar á sekúndu
og skúrir, einkum sunnanlands, en rigning
með köflum norðvestantil. Hiti verður 8 til 16
stig, hlýjast norðaustanlands.
VEÐRIÐ Í DAG
11
11
15
11
13
Allt að 16 stiga hiti
Þá er spáð austan og suðaustan 3-8 m/s og
dálítilli rigningu vestantil. Hvessir síðdegis
með rigningu sunnantil. Hiti verður 8 til 13
stig.
VEÐRIÐ Á MORGUN
12
13
11
14
12
Haustar heldur
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@24stundir.is
Makaskipti á fasteignum eru orðin algengari
en áður vegna þrenginga á fasteignamarkaðnum
nú, að sögn Sveinbjörns Halldórssonar, fast-
eignasala hjá fasteignasölunni Gimli. „Ef fólk
setur einbýlishús á sölu spyrjum við strax hvort
það ætli sér að byggja eða fara í minna. Ef það
ætlar að minnka við sig bendum við fólki
hikstalaust á að óska eftir skiptum.“
Í fasteignaauglýsingu nú um helgina kveðst
seljandinn ekki bara reiðubúinn að taka ódýrari
eign í skiptum, heldur býðst hann einnig til að
lána hluta kaupverðsins. Fasteignasalinn kveðst
hafa átt hugmyndina en það sé þó ekki algengt
að slíkt sé í boði.
,,Við höfum stungið þessu að seljendum því
að við finnum að kaupendur eru ekki tilbúnir til
þess að fara í banka til að taka lán. Ungt fólk
virðist ekki vera með þann pening sem þarf til
að greiða á milli kaupverðsins og 80% láns-
fjárhæðar. Fólk þarf að sækja 20% út á mark-
aðinn og það er dýrt. Við höfum heyrt að
skammtímalán banka séu með allt að 21% vöxt-
um en það fer auðvitað eftir viðskiptavinum og
lánamöguleikum,“ segir Sveinbjörn.
Seljandinn sem býðst til þess að lána hluta
kaupverðsins er búinn að byggja annað hús.
„Ætlunin er að eyða óvissu og leysa lausafjár-
kreppu geti fólk ekki fengið lán í banka. Það yrði
um tímabundið lán að ræða, kannski til tveggja
eða þriggja ára þar til aðstæður breytast.“
Sveinbjörn bendir á að nú sé erfiðara að fá
gott verð fyrir eignir sínar, heldur en þegar
bankarnir fóru að lána 90% af verði fasteigna.
„Þá voru fasteignir nánast greiddar út. En um
leið og forsendur bresta verður fólk að lækka
verðið til þess að geta selt. Fólk fær ekki uppsett
verð lengur.“
Seljendur fasteigna bregðast við þrengingum á markaðnum
Leggja til makaskipti og bjóða lán
„Ég á vart orð til þess að lýsa þakk-
læti mínu og gleði yfir því að fjöl-
skyldan sé nú sameinuð á þriggja
mánaða afmæli sonar okkar, Fídels
Smára. Ég er mjög þakklátur öllum
þeim hér á Íslandi sem hafa stutt
mig,“ segir Paul Ramses sem kom
til Íslands í gærmorgun eftir eins
og hálfs mánaðar dvöl á Ítalíu.
Paul segir að dvöl sinni á Ítalíu hafi
verið erfið og hafi reynt mög á sig.
„Ég dvaldi á gistiheimili með fólki
frá Mið-Austurlöndum sem telur fólk frá Afríku ekki vera mann-
verur,“ segir Paul. Hann segir einnig að sú framkoma og meðferð sem
hann upplifði hafi farið langt með að svipta hann öllu sjálfstrausti.
„Mér fannst ekki komið fram við mig eins og mannveru.“ Paul segir að
með ákvörðun sinni um að taka mál sitt aftur upp auk þess að leyfa
honum að komast aftur til Íslands og hitta fjölskyldu sína hafi dóms-
málaráðherra sýnt að íslenska dómskerfið sé mannvænt. ejg
Sameinuð á afmæli Fídels
Formaður menntamálanefndar
Alþingis telur að nú eigi að einka-
væða ríkisfyrirtæki. Sigurður
Kári Kristjánsson bendir á að
ekkert hafi verið einkavætt í tíð
núverandi ríkisstjórnar og hvetur
m.a. til einkavæðingar RÚV.
Staða RÚV á auglýsingamarkaði
verður endurskoðuð. bee
Nú er lag að
einkavæða
„Mér finnst það ekki góð tillaga
að láta reyna á þetta. Ég hef fullan
skilning á sjónarmiðum foreldr-
anna sem vita að eitt slys eru einu
slysi of mikið,“ segir Rósa Guð-
bjartsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins í Hafnarfirði.
Foreldrar barna í Hvaleyrarskóla
og stjórnendur skólans hafa gert
athugasemdir við deiliskipulag
sem gerir ráð fyrir að opnað verði
fyrir umferð af Reykjanesbraut
fram hjá skólanum. Foreldraráð
skólans hafnar tillögu bæjarstjóra
um að láta „reyna á þetta“ en
fagnar tillögu hans um samstarfs-
hóp til þess að vinna að sátt. ibs
Vita að eitt slys er einu of mikið
Eftir Björgu Evu Erlendsdóttur
beva@24stundir.is
Fjölskylduhjálpin skuldar Reykja-
víkurborg 2,5 milljónir. Ásgerður
Jóna Flosadóttir, talsmaður líknar-
félagsins, lætur illa af samskiptum
við borgina í fimm ára sögu félags-
ins. Hún gaf það út í viðtali við DV
að Fjölskylduhjálpinni yrði lokað.
Borgin vill leysa málið.
Þurfum fastan styrk
„Við þurfum 88 þúsund krónur
á mánuði í styrk frá borginni,“ seg-
ir Ásgerður Jóna. „Við erum 20
konur sem getum fætt 14 hundruð
fjölskyldur, ef við fáum frið og
stuðning. Ég hef hins vegar á til-
finningunni að okkar samtök þyki
ekki nógu fín miðað við aðrar líkn-
arstofnanir,“ segir Ásgerður Jóna.
Samtökin hafi leitað eftir stuðningi
þrisvar en aldrei fengið. „Við fáum
ekki einu sinni að hitta fulltrúana.
Ég beið í ár eftir viðtali við Björk
Vilhelmsdóttur og fékk aldrei. Ég
beið í mánuð eftir viðtali við Jór-
unni Frímannsdóttur, sem þá vís-
aði mér á embættismann og vill
ekki hitta mig.
Ég tel að kjörnir fulltrúar í
Reykjavík líti niður á fátækt fólk í
borginni og okkur sem erum hrein
sjálfboðaliðasamtök með engan á
launum,“ segir Ásgerður. Mæðra-
styrksnefnd útdeilir líka mat, en
Ásgerður segir markhópana ólíka.
„Við sáum brýna þörf meðal ein-
stæðra, heimilislausra karla og
fólks úr nágrannasveitarfélögun-
um. 1400 fjölskyldur eru á skrá og
það er þversögn í því að við fá
beiðnir fá velferðarsviði Reykjavík-
ur á sama tíma og okkur er synjað
um styrk. Í fyrra fengum við 1,5
milljónir af fjárlögum. Við eigum
fyrir skuldum við borgina og mun-
um standa í skilum,“ segir Ásgerð-
ur Jóna.
Jórunn Frímannsdóttir, formað-
ur velferðarráðs, segir vilja til að
leysa málið í samvinnu við Fjöl-
skylduhjálpina og kannast ekki við
að hafa látið ógert að svara Ásgerði.
Stella Víðisdóttir, sviðsstjóri vel-
ferðarsviðs, tekur undir.
„Ég hef boðað Ásgerði á fund í
vikunni. Fjölskylduhjálpin hefur
verið að gera góða hluti eins og
mörg önnur líknarsamtök.“
Sýnt tómlæti allt
frá fyrstu tíð
Talsmaður Fjölskylduhjálpar segir kjörna fulltrúa í Reykjavík líta
niður á fátækt fólk Velferðarsvið vill vinna með samtökunum
Ásgerður Jóna Flosadóttir
með þátt á Útvarpi Sögu.
➤ Fjölskylduhjálpin í Reykjavíkvar stofnuð fyrir fimm árum.
➤ Þetta gerðist eftir að kast-aðist í kekki innan Mæðra-
styrksnefndar og hópur
kvenna klauf sig út.
HJÁLPIN ER FIMM ÁRA
STUTT
● Ókeypis bílastæði Frítt verð-
ur í bílastæðahús Reykjavíkur
frá 17 til 21 í dag þegar íslenska
landsliðinu í handbolta verður
fagnað. Bílastæðahúsin eru
Vitatorg við Lindagötu, Trað-
arkot við Hverfisgötu, bílakjall-
arinn Ráðhúsi Reykjavíkur,
Kolaportið undir Seðlabank-
anum, Stjörnuport við Lauga-
veg og við Vesturgötu 7.
● Íslendingum fjölgar Íbúar
landsins voru 319.355 fyrsta
júlí samkvæmt upplýsingum
frá Hagstofu Íslands. Það
þýðir að Íslendingum hefur
fjölgað um1,9% eða 5.975 frá
1. janúar þegar þeir voru
313.376.
Leiðrétt
Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.
Kýr snúa sjálfkrafa í norður
þegar þær eru á beit í haga
vegna innbyggðs áttavita sem
lætur þær snúa samkvæmt lög-
málum segulsviðs jarðar. Þetta
er niðurstaða rannsóknar
þýskra vísindamanna við Duis-
burg-háskóla. Segir þar að
kýrnar hafi gott áttaskyn og
snúi flestar í norður. Vís-
indamenn fylgdust með hegð-
un kúa víðs vegar um heiminn
við gerð rannsóknarinnar. aí
Innbyggður áttaviti kúa
Snúa í norður
SKONDIÐ
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
S
F
G
42
04
0
04
.2
00
8